Kirkjublaðið - 01.03.1897, Síða 16
48
andvörpum«. En með svo hægu móti verður eigi lífs-
anda blásið í dauð og skinin bein.
Fyrir mörgum árum sendi Pjetur biskup brjef öllum
próföstum, og óskaði tilaga þeirra um, hvernig ætti að
»auka vald og verksvið sýnódusar«. Hvað aðrir hafa
tillagt, veitjeg ekki; en mín tillaga var, að sýnódus yrði
lögð niður; og get jeg enn eigi sjeð, að annað sje rjett-
ara. Ávextirnir eru vondir, en rótin er þjóðkirkjufyrir-
komulagið, og vont trje getur ekki borið góðan ávöxt.
Afleiðingarnar af þjóðkirkjufyrirkomulaginu eru í
stuttu máli þessar:
1. Að í söfnuðunum standa fjölda margir menn, sem ann-
aðhvort eru með öllu kærulausir um kristna trú eða
jafnvel andvígir henni. Þeir geta verið sóknarnefnd-
armenn og safnaðarfulltrúar, svaramenn brúðhjóna,
skírnarvottar barna, og eru þá kallaðir »elskuleg
guðsbörn«, o. s. frv.
2. Að öll gjöld til presta og kirkna eru ákveðin með
lögum. Gjaldendur geta ekki fundið til þeirra sem
þess, er þeir af frjálsum vilja leggi fram til stuðn-
ings málefni kristindómsins. Gjöldin eru lögtæk
skyldukvöð, en ekki frjáls framlög.
3. Að söfnuðirnir eru meira en hálfómyndugir, og geta
því hvorki haft þá hvöt tll framkvæmda nje þá
heillavænlegu ábyrgðartilfinningu, sem leiðir af því
að hafa bæði rjett og skyldu til að ráða öllum mál-
um sínum til lykta eptir eigin sannfæringu.
4. Að safnaðarmeðvitund og safnaðarlíf dofnar svo mjög
af öllum þessum orskökum til samans, að ekkert
verður eptir, nema nafnið tómt, og þá ernafnið ekki
lengur rjettnefni. (Niðurl.).
Kirkjublaðið — tiorg. t. 15. ,júlí — skriíieg uppsögn sje kom
in til útgetanda iyrir 1 októb.— 12aikirauk smárita. 1 kr. 50 a.
1 Vesturbeimi 60 ots. Eldri árg. tást hjá útgef. og útsölum.
Sameiningin, mánaðarrit hins ev. lút. kirkjufjel. isl. í V.-l .
12 arkir. 11. árg. Ritstj. sr. Jón Bjarnason í Winnipeg. Verð hjer
2 kr. Hjá bóks. Sig. Kristjánssyni í Rvík o. íl. víðsv. um land.
RITST.TÓHI: ÞÓRBALLUB BJARNARSON.
Prentað i ísafoldarprentsmi?»ju. Reylsjavík 1897.