Sunnanfari - 01.07.1892, Page 7
7
Aini Einarsson er fæddur á Vilborgarstöðum í
Vestmannaeyjum 14. Júní 1823. Faðir hans var
Einar Sigurðsson, sem og bjó á Vilborgarstöðum.
Arni hefir verið meðhjálpari i Vestmannaeyjum
síðan 1850 og sóknarnefndarmaður siðan þær
nefndir voru stofnaðar; sáttasemjari hefir bann
verið siðan 1874, en varaþingmaður Vestmánna-
eyja var hann 1859—74 og sat á þingi 1861.
Hann var hreppstjóri 1861— 64 og fékk heiðurs-
pening »ærulaun iðni og hygginda« fyrir liðugum
þrjátiu árum. Á yngri árum sínum var Arni um
tíu ár vertíðarformaður í Vestmannaeyjum og auk
þess utan aðalvertíðar formaður um langan tima;
skipasmiður hefir hann verið góður, búhöldur í
betra lagi, vel greindur og sérstaklega stálminn-
ugur, mesti hófsemdarmaður
um alt, stiltur og ráðsettur
og hefir mannað öll sín börn
(sex, öll uppkomin) mjög
vel. Kona hans er Guð-
finna dóttir séra Jóns Aust-
manns, jafngömul bónda
sinum. Árna má telja fyrir
allra hluta sakir merkastan
af bændum á Vestmanna-
eyjum.
[Eptir bréfi fiá þoistcini lækni
Jónssyni].
Sigurjón Jóbannesson
dannebrogsmaður á Laxa-
mýri er fæddur 15. júní
1833 á Breiðumýri í Helga-
staðahrepp. Hefir hann nú
búið á Laxamýri um 30 ár,
og er hann einn af hinum
þjóðkunnustu bændum á
Norðurlandi fyrir rausn, og
atorku, enda ér Laxamýri
nú fyrir dugnað hans orðin
eitt hið mesta höfuðból norð-
anlands. Hefir hann reist
þar 2 timburhús og bygt upp
öll úthýsi. Ennfremur hefir
hann lagt til jarðarinnar
nokkrar smájarðir þar í nágrenninu, og hafa þær bætt
jörðina stórum. I búskapartíð hans mun æðarvarpið
á Laxamýri hafa aukizt um helming, en auk lax-
veiði og æðarvarps mun hann hafa eitt af stærstu
búum norðanlands, enda hefir hann bætt jörð sina
bæði tún og eingi, og munu óvíða dæmi til svo
mikilla umbóta á úteingi sem á Laxamýri. Sigur-
jón hefir sneitt hjá hluttekningu i þjóðmálum og
sveitamálum til þess að geta stundað bú sitt þess
betur, enda á hann ábýlisjörð sína alla og er það
mikil eign. Hann er sagður fjörmaður mikill og
áræðinn og hinn gestrisnasti.
Kona hans er Snjólaug Guðrún þorvaldsdóttir;
hafa þau átt 13 barna, en af þeim lifa 8. Tvo af
sonum sínum hefir hann sett til skólanáms, og er
annar þeirra nú í Vesturheimi, en hinn í latínu-
skólanum.
Bökmentir.
Ljóðmæli Gísla Brynjólfssonar. Kmh. 1891.
8vo VII +■ 504 bls.
J>að er dönskum manni að þakka, Schultz
prentara, að Ijóðmæli þessi eru komin út. Gísli
heitinn hafði reyndar byrjað að gefa út safn
af kvæðum sínum nokkru áður en hann dó (29.
maí 1888), en entist að eins aldur til að láta
prenta 12 arkir af þeim. Útgáfan lá nú í dái um
hríð og hefði sjálfsagt aldrei komið fyrir manna
sjónir, ef Schultz hefði ekki hlaupið undir bagga
og feingið þá Haldór Bjarna-
son og Bjarna Jónsson til
að halda áfram útgáfunni
á sinn kostnað. þ>að litur
svo út sem þeir hafi leyzt
starf sitt fljótt og vel af
hendi, og loksins komu
svo kvæði Gísla Brynjúlfs-
sonar út í fyrra.
J>egar alls er gætt, má
telja ljóðmæli þessi eitt
hið tnerkastaljóðasafn, sem
komið hefir út á íslenzka
tungu, og eru þó mörg
af kvæðunum fremur
óaðgeingileg vegna þess,
hve þau eru fornkveðin,
en það borgar síg að brjóta
þau til mergjar, því opt
leynast gullfallegar hug-
myndir bak við torfið.
Svo lítur út sem Gísla hafi
verið stirt urn að kveða,
og má marka það af því,
að víða eru hendingavillur
í dróttkvæðum vísum og
sumstaðar stuðla villur og
höfuðstafa, en einkum
sést það á því, að Gísli
hefir opt ruglast í ríminu og það þótt rímið sé
sumstaðar mjög létt þar, sem þetta kemur fyrir,
t. d. í kvæðinu um Skúla fógeta (408, 10., 18.,
22., 24., 25. og 28. er. líka má nefna 1. bls. 2.
er„ 44-3, 158—4, 193—2, 218—3, 384—2). Á
sumum þessum stöðum lítur jafnvel svo út sem
orð hafi fallið úr handriti Gísla. Yfir höfuð að
tala er einhver stirðleikablær yfir flestum kvæð-
um Gísla, en einginn ætti þó að láta hann fæla
sig frá að lesa þau. Lángbezt hefir Gísla tekizt
með ferskeytt kvæði og eru nokkur þesskonar
kvæði í bókinni full-liðug.
Eg hefi nú minzt á aðalgallana hjá Gísla,
en aptur hefir hann mart sér til ágætis. Hann
er að jafnaði kjarnorður og orðheppinn, og þótt
SlGURJÓN JóHANNESSON.