Sunnanfari - 01.03.1893, Page 5

Sunnanfari - 01.03.1893, Page 5
85 brands biskups er getið i Landfræðissögu f>or- valds bls. 212—13 og svo er því lýst nákvæmlega í ritgjörð þeirri eptir mig, sem getið hefir verið um. Eg skal því ekki fjölyrða um það hér, en láta mér nægja að taka það fram, að ómögulegt er að kortið hafi verið gert eins úr garði af Guðbrandi biskupi og það er prentað hjá Orteliusi og Merca- tor, því bæði er hér um bil hvert einasta nafn rangt, og svo eru ýmsar klausur á kortinu, eink- um hjá Orteliusi, sem Guðbrandi biskupi gat ekki dottið i hug að setja á það. A Reykjanesi er t. d. látin vera lind, sem sagt er að breyti svartri ull í hvíta, en önnur í Selvogi, sem sagt er að breyti hvítri ull í svarta og sér hver heilvita maður hve fjarstætt er, að eins lærður maður og Guð- brandur biskup var, hafi ritað slíka lokleysu. En þó ber kort Guðbrands biskups, eins og það liggur nú fyrir, af öllum Islandskortum, sem áður voru til eins og gull af eiri. (Framh.). ___________ Ó. D. Ljóðmæli Jóns Ólafssonar (Winnipeg 1892), i annari útgáfu, hafa oss borizt. það er að öllum ytra frágangi vandað kver og fylgir því mynd skáldsins. Myndin virðist oss þó ekki meir en svo góð. Kvæðasafn Jóns kom fyrst út á Eski- firði 1877 og var kvæðunum þar raðað eptir aldri, og svo er í þessari útgáfu. Er hér þvi nær alt prentað, er i fyrri útgáfunni stendur, en frekur fjórðungur nýju útgáfunnar er þess utan kvæði, sem síðan eru kveðin, og hafa sum þeirra áður verið prentuð á víð og dreif. Sumt af þvi eru þýðingar. Hin eldri kvæði Jóns Olafssonar eru svo þjóðkunn, að hér gerist ekki þörf að ræða um þau. En benda megum vér á þau kvæði, er hér standa, en ekki í fyrri útgáfunni, og oss finst mest um vert, og er þá fyrst að geta vísna »Við barn mitt« (bls. 128). J>að eru hjartnæmar og fallegar stökur. »Mínir vinir«, (bls. 135—37), »Til gamals manns« (bls. 140—41), »Staka« (bls. 142) og »Ný BjarkamáU (bls. 158—(51) eru alt ágæt kvæði. Erfiljóðin eptir Jón ritara (bls. 143 —44) eru einhver hin beztu i sinni grein og ein hin sannorðustu, er vér munum eptir. Töluvert er af keskniskvæðum i þessum kafla bókarinnar, og höfum vér einna mest gaman af »Auglýsingunni« (bls. 145—146)Einars prentara, og er húnþó nokkuð nærgaungul við lifandi merkismenn. Efnismesta og merkilegasta kvæðið i nýja kaflanum er »Opið sendi- bréf til séra Jóns Bjarnasonar« (bls. 164 — 68). Mjög smellið kvæði. »Ættjarðarminni Vestur-ís- lendinga« er og gott kvæði. Kvæðasafn þetta er einkennilegt og þetta litla kver er eigulegt, og mart af enura »politisku« kvæðum, þeim sem i því eru, hafa meiri þýðingu en ýms önnur samskonar kvæði, af því að höfundur þeirra er svo »historiskur« maður og hefir haft svo mikil afskipti af islenzk- um þjóðmálum langa leingi. Gerðist 18 vetra gam- all ritstjóri og hefir síðan æ verið riðinn nokkuð við blaðamensku, og stundum látið heldur en ekki til sín taka, og er kver þetta dálitið sýnishorn af stefnu hans og athöfnum. Ferðir útlendinga til íslands. J>orvaldur Thoroddsen hélt 24. Febrúar fyrir- lestur i »Touristforeningen« i Kaupmannahöfn um skemtiferðir til Islands; hvatti hann Dani og aðra til þess frekar en áður að ferðast til Islands á sumrum, því þar væri mart að sjá; þar væri heilnæmt lopt og hressandi ferðalag og fjörgandi fyrir sálu og líkama; lýsti hann náttúru íslands og náttúrufegurð og sérstaklega einstökum stöðum, er útlendingar eiga hægt með að skoða. A íslandi er mart ný- stárlegt fyrir útlendinga að sjá, náttúran er hrika- leg og þó blíð og fögur á milli; litbreytingar á lopti og fjöllum kvað hann alveg eins fagrar á Is- landi eins og í Suðurlöndum við Miðjarðarhaf. Hvergi í Európu eru jafnmargar eldmenjar og jafn ægileg brunaklungur einsog á íslandi og hvergi eins stórir jöklar, en víða eru lika grösugar sveitir, grænar hlíðar og blikandi vötn, birkiskógar og litfögur fjallablóm og mörg önnur litbreyting þægileg fyrir augað. þ. Th. lýsti nokkuð dýra- og jurtalífi á íslandi og talaði um veiðifugla og lax og silungsveiði í ánum. Fossar margir á Is- landi eru undrafagrir og taldi hann Dettifoss einn hinn hrikalegasta foss i Európu. Á íslandi er þjóðlíf einkennilegt og lífshættir rnanna frábrugðnir því, sem annarsstaðar er, og er þar mart merkilegt að sjá og læra fyrir þá, sem bera eitthvert skyn á fornsögu Norðurlanda oggamlar bókmentir; hinar seinni bókmentir íslendinga þekkja menn í útlönd- um því nær ekki og eru þær þó á sinn hátt mjög merkilegar. Að lokum talaði J>. Th. um ferðalög á íslandi, hvernig þeim væri hagað og hvern út- búning þyrfti að hafa, og gat þess einnig hve skakkar hugmyndir margir hefðu um ísland og hve mjög hið íslenzka þjóðlíf væri misskilið í mörgum ferðabókum; þar væri mörgu rangt lýst af van- þekkingu höfundanna, fiestir þeirra eiga heima í stórborgum og þekkja ekki einu sinni bændalíf i sínu eigin landi og vantar því öll skilyrði til þess að dæma um alþýðulíf í öðrum löndum. Loks minti ræðumaðurinn ferðamenn á að haga sér eptir landsháttum, þar sem þeir færu, eða sitja heima að öðrum kosti; kvað hann alla góða dreingi velkomna til íslands, og sagði, að Islendingar mundu taka þeim eptir faungum og liðsinna eptir megni, sérstaklega ef þeir væru af frændþjóðunum norrænu. þorvaldur Thoroddsen hefir einnig i vetur haldið fyrirlestra um ísland i landfræðinga- og náttúrusögufélaginu hér í Höfn, og auk þess haldið fyrirlestra i Sviþjóð, sem getið hefir verið um áður í íslenzkum blöðum, Hann fer og nú bráðlega til

x

Sunnanfari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.