Sunnanfari - 01.06.1893, Side 3
107
5>að má segja með sanni að síðan Madvig lézt
er einginn danskur vísindamaður jafnkunnur um
víða veröld og Steenstrup, og eins og nærri má
geta hafa landar hans ekki látið sitt eptir liggja
að sýna honum sóma. þ>egar hann hafði verið
háskólakennari í 25 ár, 1870, stofnuðu vinir
hans og lærisveinar sjóð og átti að verja
vöxtunum til að kosta merkisrit um náttúrufræði
og hina elztu sögu Norðurlanda og hefir sjóður
þessi þegar orðið til að styðja að útgáfu ýmsra
merkisrita. Steenstrup er dr. phil. og med. frá
háskólanum í Lundi og félagi í öllum hinum
frægustu vísindafélögum í Norðurálfu.
Nú skal þess getið að nokkru, hvað Japetus
Steenstrup hefir átt við náttúrufræði íslands
beinlínis. Eins og getið er um; hefir hann ekki
samið neina bók um ferð sína á íslandi og er það
skaði, en það mun liafa verið í ráði að þeir
Jónas Hallgrímsson semdu náttúrufræði íslands.
f>eir höfðu ferðast saman á íslandi 1839— 40 og
voru beztu kunníngjar; var Jónas hjá Steenstrup
í Sórey heilt ár, skömmu áður en liann dó. En
Jónas dó frá öllu hálfköruðu og varð þá ekkert
úr því að Steenstrup semdi náttúrufræði íslands,
enda sóktu þá aðrar annir að við, háskólann
o. s. frv. Aptur er drepið á náttúrufræði íslands
í flestum af ritgjörðum hans um dýrafræði og
nokkrar smáritgjörðir hefir hann ritað um ís-
lenzka náttúrufræði. í ritum danska náttúru-
fræðisfélagsins 1876 er t. a. m. ritgjörð um ís-
lenzkar steinbítstegundir og heldur hann þvi
þar fast fram, að »hinn ágæti« Eggert Olafsson
hafi fyrstur manna lýst hlýranum og vill láta
kalla hann »anarrhichas minor Eg. 01afs.« eptir
Eggerti, en þeir Steenstrup og Jónas Hallgríms-
son lýstu fyrstir úlfsteinbítnum »anarrhichas lati-
frons Stp. Hlgr.« Ekki munu þessar nafrtgiptir
vera almennar, en virðíngarvert er það af Steen-
strup að halda fram sóma Íslendínga í þessu,
þótt litlu skipti. þ>ess má geta t að Steenstrup
ber mestu virðíngu fyrir Eggert Olafssyni og eg
hefi sjálfur heyrt hann segja í fyrirlestri, að
Eggert hafi verið 100 ár á undan tímanum. í
ritum náttúrufræðisfélagsins 1867 er ritgjörð eptir
hann um spendýr á íslandi, mest um mýs, og heldur
Steenstrup því þar fram, á móti ýmsum náttúru-
fræðíngum, að eingir, músategund muni vera til
á íslandi, sem ekki sé til annarsstaðar. í sömu
ritum 1855 er laung ritgjörð um geirfuglinn; ;er
þar fyrst og fremst talað um geirfuglinn á ís-
landi eptir öllum þeim ritum og skýrslum, sem
Steenstrup gat náð í og þar næst sannar hann
að geirfugl hafi verið til miklu víðar en á ís-
landi, bæði á Norðurlöndum og jafnvel í Vestur-
heimi. Enn hefir hann ritað stutta ritgjörð í
sömu ritum um »díatómeur« í íslenzkri barna-
mold. Eins og áður er drepið á hefir Steen-
strup ritað margar ritgjörðir um kolkrabba og
sannað meðal annars, að ýms ferlíki sem getið
er um í gömlum ritum, voru ekkert annað en
stórir kolkrabbar. I skýrslunni um hinn 5. fund
norrænna náttúrufræðínga (1847) er fróðleg rit-
gjörð eptir Steenstrup um tvo risavaxna kol-
krabba frá íslandi, sem hafði rekið þar 1639 og
1790; ér getið um annan í annálum Björns á
Skarðsá en hinn í ferðabók Sveins Pálssonar,
sem ekki er til prentuð. J>essar voðaskepnur
eru til þann dag í dag og á dýrasafninu í
Kaupmannahöfn eru til partar^ af geysistórum
kolkrabba, sem rekið hafði í Olafsfirði í manna
minnum. Enn hefir Steenstrup haldið ýmsa
fyrirlestra um íslenzka dýrafræði, sem eg veit
ekki til að séu prentaðir svo sem urn tertsíer-
myndunina á íslandi (1842) og um liridýr sem
lifa í ósöhu vatni á íslandi (1846).
Auk þess hefir Steenstrup hlynt að könnun
íslands, að því er snertir náttúrufræði, af öllu
megni. Hann átti mikinn þátt í að Grön-
lund fór um lsland um árið til að rannsaka
jurtalíf á íslandi og er »Islands Flora» tileinkuð
honum. Eins hefir hann stutt ýmsa útlendínga
sem hafa ritað um íslenzka náttúrufræði með
ráðum og dáð. Plnn má geta þess að StCen-
strup er kunnugri sögu íslands að fornu og
nýu en flestir aðrir útlendíngar og yfir höfuð að
tala hefir hann ávalt haft hinn mesta áhuga á
öllu því, sem íslenzkt er. Honum hefir því ef-
laust verið hin mesta ánægja þegar hann fékk
færi á að koma aptur til íslands, 1874, því
hann var fulltrúi háskólans á þjóðhátíðinni.
Japetus Steenstrup er nú áttræður að aldri
og hafa fáir menn unnið vísindunum jafnmikið
gagn, því svo má heita að hann hafi verið vak-
inn og sofinn í vísindunum 50 ár samfleytt. Ef
honum endist aldur nokkur ár ennþá má vera
að hann gefi út eitthvert merkisritið enn, en
þótt hann íiefði ekki starfað nema helmínginn
af því sem hann hefir gjört, væri það þó nóg
til þess að hann yrði ávalt talinn með hinum
merkustu náttúrufræðíngum, sem uppi hafa verið
á þessari öld og hinum ágætustu vísindamönnum,
sem Danmörk hefir átt frá aldaöðli.
Olafur Davíðsson.
Ymnabrot eptir Pindar.
Sendi guð þér sorg og þrautir
segðu eigi neinum frá,
gaktu ei út á gatnabrautir
að gráta svo að aðrir sjá; —
en — ef aptur happ þig hendir,
hann, sem alla gæfu sendir,
lofaðu í augsýn allra þá.
Gr. p.
Legsteinar i Skálholti.
I II. árg. Sunnanfara 2. tölubl. stendur grein
um »fornmenjar«; kann eg höfundinum þökk fyrir
L