Sunnanfari - 01.02.1896, Side 2

Sunnanfari - 01.02.1896, Side 2
58 safn bræðranna Grimms og fundizt mjög til um það, en vissu á hinn bóginn, að Island var mjög auðugt að þesskonar fræðum. Magnús átti einkum að safna þjóðsögum, en Jón öllu öðru þjóðtrúar- dóti. J>ó safnaði hvor með öðrum, og benti hvor öðrum þangað, sem liðs var að leita. Magnús safnaði fjölda af þjóðsögum eptir skólapiltum á vetrum, en á ferðum sínum á sumrum eða þá eptir sveitungum sínum, Borgfirðingum, því þar var hann stundum á sumrin, og sendi Fornfræðafélaginu af- skript af þeim; er talsvert af þeim nú í safni Árna Magnússonar 968, 4to, en flestar eru þær prent- aðar í íslenzkum æfintýrum 1852, sem átti að vera sýnishorn af safni þeirra félaga. Allur fjöldinn af sögum þeim, sem Magnús hafði safnað var þó óprentaður þangað til eptir lát hans, því hann var dáinn þegar þjóðsögur Jóns Arnasonar komu út, 1862. þeim Jóni Árnasyni og Magnúsi Grímssyni hefir eflaust verið jafnant um íslenzk fræði þjóðleg og þeir hafa eflaust verið jafnnatnir að safna þeim, en þó hafa þeir litið nokkuð misjafnt á þau. Jón vildi segja sögurnar sem líkast því sem þær væru sagðar manna á millum, og þessari reglu hefir hann fylgt í þjóðsögum sínum. Magnús vildi aptur skreyta þær með náttúrulýsingum og íburð- armiklu orðskrauti og er Selið, fyrsta sagan i Is- lenzkum æfintýrum 1852, sýnishorn af því hvernig hann vildi fara með sögur, því eingin efi er á því að frágangurinn á þessari sögu er eptir hann, þótt annað sé látið í veðri vaka í formálanum. Fyrst er inngangur, laung landslagslýsing, sem i raun réttri kemur sögunni alls ekkert við. þá kemur sagan sjálf, og er huldumaður látinn halda þar langa og háfleyga tölu um ástina; »hún þarf ekki við yls sólarinnar, þvi hún er sjálf sól; hún þarf einungis andstæði1) til að hvíla á«. Eptirmáli er á eptir sögunni, og er sama að segja um hann og innganginn. Islenzk æfintýri munu vera í fárra manna hönd- um og þykir því réttast að taka hér upp þjóðsögu, sem Magnús hefir gert úr garði til þess að sýna meðferð hans á þjóðsögum: Hornafjarðarfljót. »það lítur svo út, sem aflmestu höfuðskepn- urnar hafi tekið sér bólfestu á Islandi, og gert það að leiksviði sínu. f>ar geysar eldur i iðrum fjall- anna og hristir láglendið og fjöllin með ógurlegum skjálfta, svo að svellhjúpurinn mikli á jökultopp- unum brestur opt fram með ógurlegu vatnaflóði og eyðileggur alt, sem fyrir verður. Einginn hlutur stendst fyrir ósköpum þessum; jökulbrotin líða á straumnum og róta um fjöllunum og hrífa með jarðgróna hamra. Láglendið alt er hulið vatni og blágræna ísjaka ber við loptið, og hér er ekkert að sjá nema is og vatn. Á svipstundu eru fegurstu vellir orðnir að graslausum sandi, hin þéttbygða ') líklega danska orðið Genstand. sveit horfin og húsin og bæirnir flotið út i sjó. Hér, þar sem auðæfi bóndans, lagðfögur sauða- hjörð, heystakkar og afli skemtu fyrir einum degi auga ferðamannsins og fullvissuðu hann um efnuga bændur og dugandi'smenn — hér er nú ekkert að sjá nema öræfi og sanda, sem vatnið hringar sig um, eins og það sé hróðugt yfir sigri sínum, og storki enn hinum nálægu sveitum og ói þeim með afli sinu. Nú eru reyndar jakafjöllin horfin og runnin á haf út, og eigi er annað að sjá, en hér hafi frá alda öðli verið graslaus sandur og jökulvatn. Ferðamaðurinn á hér nú einskis annars von en þess, sem hann sér. Hann fer áhyggjulaus yfir sandana, og dáist i huga sínum að fegurð náttúrunnar. Hann undrast breidd ár- innar, þvi hún er fjórðungur milu á breidd. Hann ríður óhræddur yfir hana og gætir nákvæmlega að stikunum, sem i henni eru. Honum finst hann vera að fara yfir sjó, og hólmarnir grænu, sem nú eru grónir upp á milli kvíslanna í á þessari, finnast bonum vera eins og dálitil eylönd, er hann fari fram hjá. Hann dáist að jöklinum fyrir ofan sig, en Hornfirðingurinn óttast hann; honum er illa við hann og fljótið, sem í fyrndinni eyðilagði hér á einni nóttu hið fegursta land, og hina beztu sveit. Hann segir ferðamanninum margar sögur, sem enn eru eptir af sögnum um hinn ógurlega atburð. Svo bar til einn fagran sumardag, þremur árum síðar en jökulhlaupið varð og Hornafjarðar- fljótin eyðilögðu sveitina, að smalamaður einn var á gangi við ósa fljótsins á sandinum fram við sjó. Hann var áhyggjulaus og að mestu hafði hann þá gleymt þessum voðalega atburði. Rakki hans rann með honum og snuddaði til og frá um sandinn. Hann nam staðar við þúfu eina dálitla, er þar stendur, græn og fögur, eins og einhver álfur hefði átt hana og hlíft henni til merkis um hvernig landið hefði einhverntíma verið. Smalamaðurinn gaf eingan gaum að þessu og ætlaði að ganga áfram, en rakki hans veik sér að honum, flaðraði uppá hann og dillaði rófunni og þaut svo eins og eld- ing að þúfunni aptur. þá leit smalinn við og heyrðist honum þá eitthvað buldra niðrí þúfunni. Hann gekk þangað og lagði eyrað við. þá heyrði hann gelt niðrí þúfunni. Hann rótaði upp þúfunni og varð frá sér nurninn er hann sá hér koma upp mey eina fagra og dálitinn rakka með henni. Mærin hafði verið þarna frá því jökulhlaupið varð. Fljótin höfðu tekið bæinn hennar eins og hann var og grafið hann í sandinum, og hafði hún og rakkinn hennar lifað þarna í þrjú ár á matvælum þeim, er í bænum höfðu verið. Smalinn fór heim með fund sinn og mærin varð að segja sögu sína, og sú saga hefir siðan lifað í minnum Hornfirð- inga og lifir þar enn. En fljótin og sandurinn eru æfinlegt merki hins hryllilega atburðar, og sanna þær sögur, sem um hann eru«. þegar útgáfa þessi er borin saman við söguna eins og hún er prentuð i þjóðsögum Jóns Árnasonar

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.