Sunnanfari - 01.05.1897, Page 1
Odd ur Hjaltalíii.
Oddur Jónsson Hjaltalín fæddist 12. júlí 1782
á Kálfafelli. Foreldrar hans voru Jón prestur
Oddsson Hjaltalín og fyrri kona hans, Guðrún
Jónsdóttur. Sjera Jón var 9. raaður í beinan
karllegg frá Jóni biskupi
Arasyni (sjá Andvara 11.
ár, æflsögu dr. Jóns Hjalta-
líns). Móðir Jóns, en kona
Odds lögrjettumanns Jóns-
sonar, var Oddný Erlends-
dóttir Brandssonar lög-
sagnara og hjeraðsdómara
í Reykjavík, Bjarnhjeðins-
sonar. Guðrún, kona síra
Jóns, var dóttir síra Jóns
Bergssonar í Bjarnarnesi,
sonar Bergs próf. Guð-
mundssonar s. st. Bergur
próf. átti tvo Jóna fyrir
syni og voru báðir prest-
ar, Jón eldri var prestur
á Ásum í Skaptártungu
og síðar á Kálfafelli og
prófastur í Skaptárþingi
hinu vestra (d. 1773), en
Jón yngri var prestur í
Bjarnanesi eftir föður sinn
(d. 1784). Síra Bergur
lifði báða sonu sína og dó 1789, 89 ára gam-
all. Kona síra Jóns í Bjarnanesi var Herdís
Hjörleifsdóttir prófasts á Valþjófsstað í Múla-
sýslu Þórðarsonar.* Guðrún kona Jóns prests
Hjaltalíns dó 1789 og varð þeim 14barnaauð-
ið; síðar kvongaðist hann Gróu Oddsdóttur
*) Hjörleifur pröf. var mesti merkisklerkur; hann dö 178 5 ní-
ræður aö aldri og hafði þá gjört grafskrift yíir sig bæði á latínu
og islen^ku.
prests Þorvarðssonar á Reynivöllum í Kjós og
áttu þau 8 börn og var Jón landlæknir eitt
þeirra; Gróa dó 1834, en maður hennar ári
síðar.
Oddur fluttist ársgamall (1783) með foreldr-
um sínum frá Kálfafelli að Hvammi í Norður-
árdal og þrem árum síðar
(1786) að Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd. Hann út-
skrifaðist úr Reykjavíkur-
skóla hinum fyrri 1802
og sigldi árið eftir til há-
skólans í Kaupmannahöfn
og lagði þar stund á lækn-
isfræði, en tók aldrei próf
í þeirri grein. Árið 1807
(4. des.) var hann skipað-
ur fjórðungslæknir í syðri
hluta Vesturamtsins og
tók við því embætti árið
1808; settist hann þá að
í Stykkishólmi. Þegar
Tómas Klog landlæknir
hafði feingið lausn frá em-
bætti, var Oddur settur
3. ágúst 1816 til að gegna
þeim starfa, en danskur
inaður, er Clausen nefnd-
ist, var settur til að gegna
ombættiOdds. MeðanOdd-
ur var landlæknir, bjó hann á Nesi við Sel-
tjörn, og gaf þá út inarga ritlinga læknisfræð-
islegs efnis, er hann sjálfur hafði samið Land-
læknisembættinu gegndi hann til 1. júní 1820,
er Jón Thorstcnsen tók við því, og þótti hon-
um hafa vel tekist í mörgu. Fluttist Oddur
þá vestur aftur og tók við embætti sínu og
settist að í Grundarfirði og síðar á Hrauni í
Oddur Hjaltalín.