Sunnanfari - 01.07.1900, Blaðsíða 2

Sunnanfari - 01.07.1900, Blaðsíða 2
34 prófi vorið eftir (1886) og var vígður þar 17. júní s. á. Fór þá beina leið til íslenzku safnað- anna í Norður-Dakota og þjónaði þeim 8 um sex ár; síðan fjórum. Arið 1888 kvæntist hann Guð- rúnu Olöfu Thorlacius, Magnúsdóttur, prests að Hafsteinsstöðu m. Staða hans var ekki sérlega glajsi]eg, þegar hann byrjaði prestsskap sinn. Ohætt mun að fullyrða, að allur þorri bænda í nýlendunni hafi þá verið í stórskuldum, og vanséð, hve margir mundu komast klaklaust út úr örðugleikunum. Hug- myndir manna um félagsskap allan virtust æði- óljósar og þokukendar og þó sjálfsagt einna ó- skýrastur, þar sem um kirkjumál var að ræða. Kirkjufélag Vestur-Islendinga var alveg nýstofnað og sú stofnun þá naumast meira en nafnið eitt, enda skilningurinn alrnent nauðalitill á því, er fyrir forgöngumönnum þess vakti. Og mótþrói gegn allri kirkju og kristindómi hafði fest all- djúpar rætur í nýlendunni. Fyrir þeim mótþróa gengust ungir og efnilegir hæfileikamenn; þeir virtust staðráðnir í því, að flæma þennan unga prest á burt sem fljótast. Nú er þessu öllu annan veg farið en þá. Bændur þar hafa yfirleitt komist í ágæt efni. Þó að nú megi svo kalla, sem öll mótspyrna gegn kirkjufélaginu sé horfin, stendur það fráleitt nein- staðar fastari fótum en í Dakota. Og allur and- róður gegn síra F. J. B. er nú fyrir löngu hætt- ur; fyrverandi mótstöðumenn hans sýna honum nú ekki annað en góðvild og telja það mikinn sóma fyrir Vestur-Islendinga, að eiga slíkan mann í sínum flokki, hvað sem trúarágreiningnum líður. Síra F. J. B. hefir lengst af verið varaforseti kirkjufélagsins vestur-íslenzka, og hefir að líkind- um átt eins góðan þátt og nokkur annar maður í eflingu þess. Hann er óþreytandi starfsmaður, þótt heilsuveill hafi hann verið, einkum síðari ár- in. Þau sex ár, sem hann þjónaði mörgu söfn- uðunum, var hann á sífeldu ferðalagi í sumar- hitunum og vetrarkuldunum. Þó fekk hann tíma til þau árin að vanda sínar rnörgu prédik- anir einkar-vel, halda sæg af fyrirlestrum og lesa mestu kynstur af bókum. Hann er vafa- laust með lærðustu prestum íslenzkum á þessari öld og á fyrirtaks-bókasafn. í ritum sínum hefir hann stundum þótt nokk- uð orðhvatur í garð kirkjulífsins hér á landi. Hann hefi stöðugt haldið þvi fram, að Islendingar séu lítt kristin þjóð og að íslenzka prestastéttin sé framkvæmdarlítil og kunni ekki að beita sér. Sum af ummælum hans í þá átt eru naumast rituð af fullri sanngirni — nægilega skýrri hlið- sjón á þeim miklu örðugleikum, sem prestar hér á landi eiga við að búa. En á hinu getur enginn vafi leikið, að þau eru rituð af eldfjörugum á- huga á velferð þessarar þjóðar. Og jafnframt er það óneitanlega takandi til greina, að síra F. f. B. getur að því leyti djarft úr flokki talað, að hann hefir flestum mönnum meira á sig lagt sjálfur; og eins hitt, 'að sé alls vandlega gætt, eru mikil líkindi til, að óhætt sé að segja, að hann kunni sjálfur öllum íslenzkum prestum bet- ur að beitast fyrir þvi málefni, er hann berst fyrir, I jafn-litlu blaði og Sunnanfara er enginn kost- ur á að gera nákvæma grein fyrir ritum hans, er sum eru með þvi veigamesta, sem ritað hefir verið á íslenzku á síðari áratugum. Hin Irelztu þeirra eru prentuð í »Aldamótum«, ársriti kirkju- félagsins, og hefir síra F. J. B. verið ritstjóri þess frá því er það var stofnað. En þungamiðja allra ritstarfa hans er sýnilega sú sannfæring, að kristindómurinn eigi að sam- þýðast 'óllu lífi þjóðar vorrar og gagntaka það alt. Þess vegna er ekki kristindómurinn einn honum svo mikið áhugamál, heldur og alt menningarlíf þjóðarinnar. En hann lítur ævinlega á það í sambandi við kristindóminn. Hann getur aldrei skilið prestinn við sig, eins og hann komst sjálf- ur að orði í samkvæmis-ræðu sinni hér í Reykja- vik í fyrra sumar. Sira Jónas A. SigurÖsson hefir 5 síðustu árin verið skrifari kirkjufélagsins vestur-íslenzka. Hann er bóndason úr Húnavatnssýslu, nam búfræði í Olafsdal og útskrifaðist þaðan með hæstu ein- kunn, 6 í öllum námsgreinum. Haustið 1887 fór hann til Vesturheims, og kvæntist, þegar hann var nýkominn vestur, Oddrúnu Frímannsdóttur frá Helgavatni i Vatnsdal. Hann lagði hið rnesta kapp á að menta sig, eftir er hann var vestur korninn. Og haustið

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.