Austri - 20.09.1898, Page 2
NÍP 26
AUSTEI.
102
lega annað peirra, „Hollingwortlis
Mejeri". Vinna véiarnar nálega allt,
skilja að! rjóraann og undanrenning-
una, strokka, hnoða smjörið, búa til
ostana o. s. frv. Örfáiv iuenn stjórna
vélunum og húa ura vöruna til sölu.
Jafnvol pótt hagnýting mjólkurinnar
liaíi tekið mjög raiklum fraraförnm á
íslandi, á síðari árum og nokkur heim-
ili hagnýti mjólkina á líkan hátt og
gerist eriendis á mjólkurbúum, ná
íslendingar í peirri grein ekki nándar
nærri þur sem Norðraenn hafa hælana.
Sala á smjörí og ostum út úr landinu
er þvi nær engin, ef tekið er tillit til
tölu búfjár og mannfjölda, þar við
bætist hið skakka verð, sem lagt er á
mjðlkurgripioa nrestum almennt, að
dæmagæði peirra einungis eptir nythæð,
en hugsa minna um kostina, smjörið
og ostinn. fau tæki, sem höfð eru til
að prófa gæði mjólkurinnar, verja hana
skemmdum, og gera hana hollari, ef
kynnu að vera í henni „baktoríur“ af
veikum gripum, ættu að vera almenn-
arihér álandi. Hin svokallaða „ías-
teurisering“ vinnur mikið að pví að
gera mjölkina haldbetri og hollari.
Hinar margvíslegu mjólkur vörur,
smjör, ostar niðursoðin mjólk o. fl.
sem sjá má á sýningunni, benda manni
á liversu margbro.tna verzlunarvöru má
gera úr mjóikinni, hversu pað cr hagan-
legt að geta geymt suma peirra um
langanjtíma óskemmda, jafnvel fleiri ár,
og hversu pað er arðsamt fyrir bóndnnn
að geta hagnýtt mjólkina eins og vera
á. fað væri pörf stofnun fyrir land
vort, að stofnað yrðí mjólkurbú á
hentugum stað, par sem bændur í ná-
grenni gætu lagt saman mjólk sína
og hagnýtt hana á sama hátt og gerist
á samskonar búum erlendis. Af pess-
háttar stofuun mætti mikið læra, hún
yrði pjóðinni til mikils gagns, ef hún
hefði nægilegt fé og góða forvígismenn.
Framh.
t
Snorri Wiimri.
—o—
Og pú ert líka lagður kaldur nár!
Hve ljúft, — en pungt, að fella
saknaðs tár
á pína ailtof, alltof ungu gröf.
prí áttirðu’ ekki hjá oss lengri töf.
Hvi spyr eg svo? Hin bezta Guðs
vors gjöf
ei glatast skal í timans regin höf.
Og pegar honum pykir vera mál
pá segir hann: „Eg kalla pig mín sál“.
Og Drottinn vissi’ að björt og
barnhrein sál
nú barna sinna fengi’ að skilja mál.
Og Snorri rétti feginshendi hönd
peim, hann er leiddi burt at tára-
strönd.
Allt gott og drenglynt, Drottins
eigið mál
var, dýri vinur, lagt í pína sál.
Og pökk og heiður, pað er æðsti
krans
sem pekur moldir sérhvers dánumanns-
11. S. B.
Ú TSKRIPT
úr
gjörðabók sýslunefndar Suður-Múlas.
Ar 1898, hinn 17. dag ágústm. var
a,ukafundur sýslunefndar Suður-Múla-
sýslu haldinn að Egilsstöðum og voru
allir sýslunefndarmennirnir mættir að
undanteknum sýslunefndarraanni Geit-
hellahrepps scm varð veikur á leið-
inni og varð pví að snúa heim aptur.
Fundarskrifari var kosinn síra Jón
Guðmundsson sýslunefndarmaður Norð-
fjarðarhrepps.
1. Fyrst var nefndinni tilkvnnt 3
bréf frá amtinu dags 25. og 26. júlí
p. á. innihaldandi athugasemdir við
sýslufundargjörð 1897; athngasemd við
sýslusjóðsreikninginn 1897 og athuga-
semd við sýsluvegasjóðsreikning 1897.
2. Las sýslumaður upp brjef frá
flestum hreppum sýslunnar viðvíkjandi
bólusetning sauðfjár, og með pví hrepp-
arnir létu í ljósi að peir viídu að
sýsluuefndin annaðist útvegun á bólu-
efni og bólusetningarverkfærum, sam-
pykkti sýslunefndin að fela oddvita
sínum framkvæmdir á pví sem allra
fyrst, og gáfu hinir einstöku fundar-
menn upp parfir hreppa sinna pegar
á fundinum pannig.
Hreppar. Skammtar. Verkfæratala.
Skriðdalshr. 1000 1
Yallahreppur 2000 1
Eiðahreppur (hefur aldrei-borið á fári)
Mjóifjarðarhr. 1500 1
Norðfjarðarhr. 2000 1
Eeyðaifjarðarhr. 2000 2
Fráskrúðsfj.hr. 3000 1
Breiðdalshr. 3000 1
Berunesshr. 1200 1
Geithellahreppur hefir pegar útvegað
sér bæði verkfæri og efni.
þegar bóluefnið og veikfærin eru
fengin, skal pað sent hreppsnefndum í
hreppunum, sem pá borga pað og
annast um framkvæmdir á bólusetn-
ingu í hreppnum.
3. Sampykkti sýslunefndin að út-
nefna menn í ýmsum hreppum sýsl-
unnar til pess að skoða og gefa skýrslu,
eptir formi er sýslunefndin samdi, um
allar póstleiðir í sýslunni, í pví skyni
að sækja um fjárupphæð til næsta al-
pingis til endurbóta á póstleiðunum í
sýslunni, sem niega heita, pvi nær und-
antekningarlaust, allar íllfarandi.
í nefndina voru kosnir:
Frá Eskifirði og upp á Urðarflöt,
kaupmaður Möller á Eskifirði og
Tryggvi Hallgrímsson á Eskifirði.
— Urðarfleti og að Eyvindarárbrú,
skólastjóri Jónas Eiríksson á Eið-
um og Bóra-rinn Benediktsson í
Gilsárteigi.
— Eyvindarárbrú og yfir Gilsá, Stef-
án læknir Gíslason, Jón Bergs-
son og Gunnar Pálsson á Ketiís-
stöðum.
—1 Gilsá og að sæluhústópt í Víði-
gróf, Jön Isleifsson á Hryggstekk
og Stefán þórarinsson á Mýrum.
— Sæluhústópt og suður á há Beru-
fjarðarskarð. Páll Benediktsson á
Gilsá, Jón Finnbogason á As-
unnarstöðum og Jón Halldórs-
son á Dísastaðahól.
— Há Berufjarðarskarði ogaðDjúpa-
vog, séra Benedikt Eyjólfsson í
Berufirði og St. Guðmundsson
verzlunarstjóri á Djúpavogi.
— Djúpavogi að Lónsheiði, Jón Hall
á Starmýri og Ólafur læknir Thor-
lacíus á Djúpavogi.
Borgun fyrir pessi störf greiðist úr
sýslusjóði eptir reikningi frá viðkom-
andi mönnum sem sýslunefndin úr-
skurðar á næsta aðalfundi. Reikn-
ingur og skoðunargjörð verður að vera
sent oddvita sýslunefndarinnar fyrir
iok næstkomandi september mánaðar.
4. Sýslunefndin veitti meðmæli sín
með pví, að yfirsetukonurnar Jóhanna
porsteinsdóttir, Helga Jónsdóttir og
Jónína Stefánsdóttir fengju veitingu
fyrir peim umdæmum, sem pær hver
um sig hafa sótt um. 1
5. Umsöknarbréf frá Jónasi Eiriks-
syni skólastjóra á Eiðum um 200 kr.
styrk til ferðar til sýningarinnar i
Björgvin. Beiðnin var sampykkt með
meira en helming atkvæða.
6. Umsókn frá Jónasi Eiríkssyni um
200 kr. styrk til jarðabóta á Eiðum,
erfrestað var á síðasta aðalfundi, var
feld með 6 atkvæðum gegn 2. Uppá-
stunga. kora fram að fresta pessu máli
til sameiginlegs sýsluncfndarfundar á
morgvm, en sú uppástunga var feld
og sampykkt í pess stað að útkljá
málið hér á fundinum.
7. Bréffrá sýslumanni Norður-Múla-
sýslu og fleirum um að sýslunefnd
Suður-Múlasýslu semji og sendi áskor-
un til ráðgjafans um lagning frétta-
práðar upp að Austfjörðum og um-
hverfis landið og að heita ákveðinni
fjárupphæð, ef á parf að halda til
stvrktar lagning fréttapráðurins; varles-
ið upp og rvett all-lengi, en með pví
sýslunefndin veit að amtsráð Austur-
amtsins hefur saraið og sent áskorun
til ráð'.’jafans um petta efni. og með
pví að nefndin sér eigi að fast ákveð-
ið peningaframlag frá sýslunni geti
haft neina pýðingu, eptir pví sem
málinu nú er komið, lætur nefndin sér
nægja, að lýsa pví yfir. sð hún sé
mjög hlynt máli pessu og muni fús
til að leggja sitt ýtrasta fram málinu
til styrktar ef til pess kemur.
8. Kom fram kæra frá Antoni Jacob-
sen á Eskifirði yfir kosningu Gísla
Helgasonar til lireppsnefndar Reyðar-
fjarðarhrepps með umsögn kjörstjóru-
arinnar.
Eptir all-langar umræður komst
nefndin að peirri niðurstöðu að kosn-
ingin væri ólögmæt,, og ákvað sýslu-
nefndin að kjósa skyldi í hreppsnefnd-
ina á ný í hans stað.
9. Kom fram beiðni frá Lúðvík
Jónssyni á Djúpavogi um vínveitinga-
leyfi sem vert á Djúpavogi. og var
veitt með sjö atkvæðum gegn 3.
10. Kom fram beiðni frá hreppsnefnd
Norðfjarðarhrepps um að mega jafna
niður á sveitina í haust meira álagi
en lög tala um, ef hún parf á að halda.
petta leyfi var veitt af sýslunefndinni.
11. Sigríði Oddsdóttur á Ósi veitt-
ar 40 kr. sem yfirsetukonu í Reyðar-
firði innan við Hólmaháls yfirstandandi
ár (1898).
12. Sampykkt var að láta prenta
fundargjörð pessa í „Austra" og borga
fyrir pað allt að 10 kr.
13. Sampykkt að halda næsta aðal-
fund a Eskifirði í apríl næstkomandi.
14. pví næst var sampykkt að greiða
fyrir fnndarhald og átroðning 50 krónur.
Fundargjörðin var lesin upp og sam-
pykkt og fundi slitið.
A. V. Tuliníus.
Bened. Eyjólfsson. Friðrik Möller.
B. Stephánsson. G. Högnason.
Antoníus Björnsson. p. Halldórsson.
Jón Guðmundsson.
Ósampykkur úrslitum málsins í 6.
gr. fundargjörðarinnar.
Jónas Eiríhsson.
* *
*
Rétta útskript staðfestir
Skrifstofu Suður-Múlasýslu,
Eskifirði 5, septbr. 1898.
A. V. Tuliníus.
ÚTLENDAR FRETTIR.
Eitthvert hryllilegasta níðingsverk
pessarar aldar vann ítalskur maður í
Genf á Svisslandi pann 10. p.m., er hann
myrti Elísahetu keisaradrottningu frá
Austurríki. Rak hann drottningu í
gegu úti fyrir gistihöll einni, svo að
oddurinn á morðkutanum gekk út um
bakið.
Mannfýla pessi heitir Lurchesi, og
kveðst hafa verið anarkisti frá pví
hann var 13 ára, og er hreykinn yfir
níðingsverki sínu.
Elísabet drottniug var af hinni ógæfu-
sömu konungsætt í Bayern, náskyld
Ludvík konungi, er fyrirfór sér fyrir
nokkrum árum, og hirium núverandi
geðveika konungi Ottoaf Bayern. Hún
var á yngri árum talia einhver fríð-
asta kona i Norðurálfunni; en var
varla mönnum sinnandi eptir hið vo-
veiflega fráfall Rudolphs einkason-
ar peirra keisarahjónanna, og skipti
sér ekki af stjórnmálum, en lifði fyrir
að bætaneyð fátækra manna og sjúkra,
og er pví níðingsverk pctta enn við-
bjóðslegra.
Hinn háaldraði keisari Franz Jóseph
kvað sig mest furða á pví, að nokkur
maður gat fengið af sér að myrða pví-
lika konn. erengum hafði nokkru sinni
mi'in gj 'rt, en varið öllu l:fi sínu til að
gjöra Lott og láta blessun af sér leiða.
Keisari er ákaflega hryggur, en ber
sig pó eptir öllum vonum.
pau hjón áttu að halda 50 ára
ríkisstjórnar afmæli sitt 2. desbr. n. k.
Lítur út fyrir að ítalir ætli sér sð
skara frammúr öðrum pjóðum með pví-
lík níðingsverk, pví peir voru báðir
ítalskir, níðingarnir, er myrtu þá Car-
not, forseta lýðveldisins á Frakklandi
fyrir fám árum síðan, og forsætisráð-
gjafa Spánverja, Canovas dd Castillo,
í fyrra.
Eiginlega ætlaði Lucchesi að mvrða.
hertogaun af Orleans, en hitti hann
ekki í Genf, en vildi ekki hafa farið
pangað ónýtisför, og réði svo af að
vinna á keisaradrottningu, er engum
hafði komið til hugar að láta nokkurn
lífvörð gæta.
Englendingar og Egyptar hafa nú
gengið milli bols og höfuðs á liði sol-
dánsins í Súdan, í ákaflega mann-
skæðri orustu, er stóð við borginæ
Omdurinan, og féllu par af Der-
visjum, liði soldáns, ytír 10,000 raanna
og meira en 14,000 særðust og voru
handteknar. Börðust menn soldáns
af mikilli hreysti, en ekkert stóðst
við marghleypum Englendinga og hinum
hraðskeytu fallbyssum peirra bæði á
landi og af fallbyssubátum þeirra á
Nílfljótinu. Orustan stóð 2. p. m.
^Síðan náðu Englendingar borginni
Kartum, og eltu soldán, er komst
nauðlega undan með fáa meun úr
orustunni, og höfðu Englendingar göð-
ar vonir um að ná í hann; og er þá
protin öll mótstaða gegn Englending-
um í pessum hluta Mið-Afríku og úti
um allt mannsal par, sem betur fer.
Hershöfðingi Englendinga þar, heitir
Kirschener.
Allar horfur voru nú á pví, að
Rússar og Englendingar mundu
miðla málum með sér í Kína, og
mun keisarinn hafa gjört pað að vilja
Englendinga, að afsetja utanríkisráð-
gjafasinn, gamla Li- Hung- Chang,
sem þeim pótti draga um of taum
Rússa par eystra.
Frakkland. Hermálaráðgjafi Ca-
vaignac, er mest gekk á móti Drey-
fus og Zola, hefir orðið að leggjanið-
ur völdin, og heitir sá Zurlinden,
er nú stýrir hermálum Frakka; og telja
menn pað víst, að hann láti bráðlega
réttlátari dómara dæma mál Dreyfus
og Zola.
Hin unga drottning Vilhelmina á
Hollandi er nú myndug, og hélt inn-
reið sina i Amsterdam p. 6. p. m.
með mikilli viðhöfn og fögnuði borg-
arbúa.
Fiskprísar. Frá Kaupmannahöfn
segja seinustu áreiðanlegu fréttir frá 8.
p. m.: „Nú seinustu dagana hefir verð-
ið verið lægra og ekki fengist meira
en 45 kr. fyrir stóran fisk, 38 kr. fyrir
smáfísK og 34 ýsu. pað er ómögulegt
að segja hvort petta verð kunni að
haldast framvegis“.
Seyðisfirði 20. sept. 1898.
Tíðarfar hefir verið kalt og rosa-
samt undanfarandi, en er nú heldur að
hlýna.
Fiskiafli alltaf nokkur, pegar gefur.
Síld hetír veiðzt vel í net, en mjög
lítið í nætur enn sem komið er, pó
mikið sé af henni yzt i firðinum.
„Vesta“ skipstjóri Corfitzon kom
híngað í gær og fór héðan samdægurs
suður með fjölda Sunnlendinga. Með
skipinu fóru og ritstjóri Jóu Ólafsson,
alpm. Jón Jakobsson, grasafræðitigur
Helgi Jónsson, fiskiíræðingur Bjarni
Sæmundsson með frú sinni, fröken
Guðlaug Arasen, prófastnr Jón Jóns-
son frá Stafafelli o. m. fl.