Austri - 31.08.1899, Síða 2
Níl. 24
ADSTfil.
94
optast hefir verið nefnt, og spurði hann
hvort hann hefði ritað petta, kvað
hann skýrt nei við. „Eg er saklaus“,
sagði hann sem fyr, og við öllum á-
kærum kvað hann skýrt nei.
Næstu daga rannsakaði hermanna-
dómurinn leyniskjölin fyrir lokuðum
dyrum. og pví næst byrjaði vitnaleiðsl-
an. Herforingjarnir bera jafnt og
pétt sakir á Dreyfus, en fremur virð-
ast pað vera getsakir og ágizkanir
heldur en sannanir. Eitt merkasta
vitnið var Casimir Perier, sem var
forseti Frakklands pegar Dreyfusmálið
kom fyrst fyrir. Hann lýsti pví yfir
fyvir réttinum, að hann hefði sagt af
sér af pví að ráðgjafarnir hefðu sýnt
sér mótpróa. Sló í talsverðar deilur
milli hans og Mercier hershöfðingja
íyrir réttinum. Mercier var hermála-
ráðgjafi er Dreyfus var dæmdur, og
játaði hann að hafa afhent herdómin-
um leyniskjöl pau, er Dreyfus var
dæmdur eptir, en sem hvorki Dreyfus
eða málfærslumaður hans fengu neitt
að vita um; en kvaðst hafa gjört pað
til að bjarga Erakklandi frá ófriðivið
pýzkaland, en pví neitaði Casimir
Perier. Mercier kvaðst vera sann-
færður um sekt Dreyfusar og endaði
sína löngu ræðu á pessa leið: „Ef eg
gæti fyrir samvizku minni komizt að
annari niðurstöðu, mundi eg með glöðu
geði segja við hann: fér eruð sak-
laus“. Sneri hann sér pá að Dreyfus,
sem hafði rólegur hlustað á allar sak-
argiptirnar, en gat nú ekki lengur setið
á sér, stökk á fætur og hrópaði prút-
inn af bræði: „]?að ættuð pér að segja,
pað er skylda yðar að segja pað nú
pegar“.
Hlur kurr var í áheyrendunura við
Mercier, og einn blaðamaður hrópaði
í eyra honum: „Morðingi“. Sá var
reyndar tekinn fastur, en síðar sleppt.
Margt misjafnt hefir sannazt um að-
gjörðir hermannaráðsins fyrir réttinum,
en málið lítur út fyrir að verða nokk-
uð langvinnt og verður pví tæplega
lokið í pessum mánuði.
Hermálaráðgjafi fýzkalands hefir
lýst pví yfir, að sögusögn Mercier um
að þjóðverjar hafi ætlað í stríð við
Frakka út af Dreyfusmálinu um árið,
sé á engum rökum byggð og algjör-
lega gripin úr lausu lopti.
Dreyfus kvað vera mjög ópolinmóð-
ur yfir að málið dregst svona lengi,
en Demange inálfærslumaður hans hefir
beztu vonir um úrslitin, og segir dóm-
endur vera alveg óvilhalla. Hafa peir
Demange og Labori og Piquart ofursti
lagt margar ópægilegar gagnspurningar
fyrir hershöfðingjana.
Vitnisburður Piquarts var Dreyfusi
mjög í vil, var ræða hans hin sköru-
legasta og sýndi hann ljóslega fram á,
að hinar svo nefndu sannanir Merciers
og hinna hershöfðingjanna voru mest-
megnis byggðar á ýmsum falsbréfum.
J>að hefir vakíð mikið hneyxli, að
Mercier bar pað fram í ræðu sinni,
að útlendar .pjóðir, fjóðverjar og Eng-
lendingar, hefðu varið 35 millíónum
franka til að knýja áfram Dreyfus-
málið.
J>ann 14. p, m. var Labori, mála-
færslumanni Zola og Dreyfusar, veitt
banatilræði í Pennés. Hann var á
leiðinni að réttarhöllinni með Piquart
og skrifara sínum, pegar maður einn,
sem hafði falið sig á bak við brúar-
stólpa, hlejpti á hannúr skammbyssu.
Skotið kom í bak Laboris og hné hann
í fang peim Piquart, sem pegar létu
veita morðingjanunr eptirför. Sárið
var í fyrstu álitið hættulegt, en svo
vel hefir tekizt að lækna pað, að 20.
p. m. var Labori farinn að stíga á
fætur aptur, og ætlaði að reyna að
mæta í réttinum næstu daga; en á
meðan hann lá lét hann skrifara sína
rita allt upp sem gjörðist í réttinum.
Svo Dreyfsféndur fá ekki pá ánægju,
að liann hverfi af vígvellinum; en af
mælsku hans og snilli stendur peim
mikill ótti; og tilkomumestur pótti
hann allra peirra er staddir voru í
réttarsalnum.
Frakkastjórn hefir látið taka fasta
allmarga menn í París 13. p. m. grun-
aða um samsæri á móti pjóðveldinu.
Fyrstur úr peirra flokki var formaður
„p>jóðvinafélagsins“, Deroulede, sá er
ætlaði að vekja uppreist í París dag-
inn sem Faure forseti var grafinn, og
margir heldri menn úr pví félagi,
ýmsir úr flokki könungssinna og Gyð-
ingaóvina (Antisemita). Flestum pess-
um var komið að óvörum og peir
mótstöðulaust hnepptir í varðhald, en
formanni Antisemítafélagsins, (iuerín,
tókst með nokkrum félögum að loka
sig inni í samkomuhúsi félagsins, og
bjuggust peir til að verja pað með
vopnum. Hervörður var settur um
húsið, en stjórnin hikar sér við að
byrja blóðsúthellingar með pví að láta
ráðast á pá með vopnum, ogmunætl-
anin að svelta pá til að gefast upp.
U p p p o t áilmikið gjörði skríllinn
í París 20. p. m. undir forustu tveggja
anarkista og sló í hart með peim og
lögreglunni, sem vildi tvístra, hópnum.
Skríllinn braut rúður í ýmsum kirkj-
um og brauzt inn í eina peirra, braut
og bramlaði allt lauslegt, altöru, skírn-
arfonta, ljósastjaka, myndastyttur og
alla helga dóma kirkjunnar og tróðu
pað undir fótum sér. Er sagt að æði
skrílsins hafi verið líkt og í stjórnar-
byltingunni 1870. Loks tókst lögregl-
unni að yfirbuga óaldarmenn pessa, er
peir voru byrjaðir að kveykja í kirkj-
unni. 56 særðust af hvorumtveggja.
Foringjar skrílsins voru handsamaðir
og hnepptir í varðhald,
England. Mjög öfriðlega lítur út
milli Englendinga og Búanna í Trans-
vaal í Suður-Afríku, pví ekki hefir
getað komizt samkomulag á milli peirra
um kosningarrétt útlendinga. Sendu
Englendingar herlið pangað suður, Qjjfc
hinir hervæðast líka í ákafa, en pó er
enn ekki útséð um að málið verði
jafnað á friðsamlegan hátt.
Skæður fellibylur hefir gengið yfir
flestar Yesturheimseyjar. Einnamest-
an skaða hefir hann gjört á eyjunni
Puerto liico. Laudstjórn Bandamanna
par segir, að fimmti hluti allra húsa á
eynni séu fallin, 1000 manns hafi far-
izt, og 100,000 séu hælislausir; og til
að bjarga fólkinu frá hungurdauða
pyrfti minnst 1000 smálestir matvæla
á vilcu. Mest öil uppskera eyðilögð.
Og pessu líkar eru fréttirnar frá mörg-
um hinum eyjunum.
Eldsvoði stórkostlegur hefir nýlega
orðið í Árósum í Danmörku; er srgt
að um 20 hús hafi brunnið og skaðinn
skipti millíónum.
Gyðingar í Chicago hafa safnað sam-
an miklu fé til að sæma pá Dreyfus,
Zola og Piqvart heiðursgjöfum.
Dreyfus að fá forláta sverð, allt sett
gimsteinum, Zola gullpennastöng með
gullpenna í, en Piqvart drykkjarhorn
úr gulli.
INyjustu fréttir.
(Með s. s. „Vikingi“ skipstj. Hansen).
í Verkfallið í Danmörku heldur pví
; miður áfram, og stækkar óðum.
‘ Yinnnveitendur ætluðu í byrjun p.
: m. að gar.ga að peim friðarkos'tum, er
! peir Henna.nn Trier, formaður bæj-
j arfulltrúanna, bankastjóri Heide og
j bæjarfulltrúi Bing — allir menn óvil-
j hallir og beztu drengir — lögðu til.
j En viunumenn vildu eigi sættast upp
! á annað, en að peir eða yfirstjórn peirra
réði vinnunni. Að pví vildu vinnu-
veitendur ekki ganga, og pá fjölgaði
vinnulausum mönnum um * c. 15,000;
svo alltaf hlýtur neyðin að vaxa meðal
alnrennings, pó mikið gefizt vinnumönn-
um, bæði innan lands og utan.
Dáinn er í Kaumannahöfn skáldið
og rithöfundurinn HHk Bntjh, rúmlega
77 ára gamall.
Hýlátinn er hinn heimsfrægi efna-
fræðingur, Robert Bunsen, í Heidel-
berg, 89 ára gamall. Frægastur er hann
fyrir Ijósgeislarannsóknir sínar á sól-
unr.i (Spectralanalysen) o. m. fl. Bun-
sen ferðaðist hér um land 1840.
Frá austurströnd Grænlands, 75° n.
br., eru komnar fregnir af leiðangri
prófessors Nathorst með hvalaveiða-
skipinu „Cecilie“, og bafði Nathorst
og hans félagar hvergi getað fengið
vitneskju um Andrée.
Embættaskipun. Strandasýsla er
11. p. m. af konungi veitt cand. juris
Marinó Hafstein..
Konungur hefir nú sampykkt hér-
aðaskipti peirra læknanna Bjarna
Jenssonai’ og Friðjóns Jenssonar, er
áður hefir verið á minnzt héríblaðinu.
Leiðarvísir
til að verða ríkur.
—0—•
Nokkrir „sjálfgjörðir“ menn í Ame-
riku (o: menn sem í fyrstu hafa verið
fátækír, en fyrir dugnað sinn og bag-
sýni hafa orðíð mikilsmetnir menn og
stórríkir) hafa ritað um petta efni í
amerískt tímarit. Köfn peirra eru
Bouss, Huntingdon, Kussel Sage, Mills
Carnegie, Vanamaker og fröken
Hetty Green. Einum peirra, Itouss,
sem nú er orðinn blindur, farast pann-
ig orð:
„Vinnan er svo heiðarleg, að engiun
heiður jafnast á við pann sem iðni og
starfsemi hefir í för með sér. Hæfi-
leikar til pess verklega eru æðri öll-
um gáfum.
Iðni, ráðvendni, sparsemi og pöss-
unarsemi eru aðalskilyrði til pess að
komast áreiðanlega og heiðarlega á-
fram í lífinu.
Verðleikar eru „vörumerki“ gæfunn-
ar. Hið sanna verð fer eptir gæð-
unum.
Gæfan er ekki komin undir tíma,
stað eða hendingu; hún er eingöngu
undir manninum sjálfum komin, en pví
stærra sem verksviðið er, pess meiri
verður árangurinn.
Lánveítingar og félagskapur í verzl-
unarsökum er svipa í verzlunarsögunni
og eitur í verzlunarreynslunni.
Vari menn sig á gjöfum hrekkja-
mannanna; peir tæla og eyðileggja.
Lántaka er freistandi, en vissulega
eyðileggjandi.
Brenndu höfuðbókina og lærðu að
segja nei. J>etta er bezt bæði fyrir
kaupanda og seljanda.
Lærðu, hvenær pú átt að kaupa,
hvernig pú átt að kaupa, og hvar pú
átt að kaupa.
Kauptu fyrir borgun út í hönd og
seldu fyrir borgun út í hönd.
Ef pú kaupir ódýrt, skaltu selja ó-
dýrt.
Fljót sala og lítill ágóði hefir í för
með sér stærri umsetning og meiri
árangur.
Að selja með óhæfilega miklura á-
vinningi getur orðið til pess . að pú
seljir ekkeit og liafir pá engan á-
vinning.
Ódýr kaup án ódýrrar sölu er
? metorðagirnd, sem kollhleypur sig og
er jafn óviturleg sem skaðleg.
Langur gjaldfrestur með stórum á-
vinningi freistar bæði seljanda og kasip-
anda, en vekur sírenu sönginn, sem
ætíð syngur líksöng yfir peim sem
tortínist. Kaupandi og seljandi eru
aðal syrgendurmr, en fógetinn sér um
jarðarförina.“
(Lauslega þýtt úr „Sells’ Commercial
Intelligcnce11)
J. G.
Seyðisfirði. 31. ágúst 1899.
Tíðarfar fremur óstillt og rnjög
votviðrasamt.
Fiskiafli nú fremur góðurpessa
viku, og síld veiðist lítið eitt í lagnet.
„K orðfjörðu r“, fiskigufuskip
„Garðars", kom liingað frá Engiandi
24. p. m. Með skipinu kom fram-
kvæmdarstjóri Hermann og skipstjóri
Mattbías I’óroarson.
„I n g a“ kom frá útlöndum 24. p. m.
Útgjörðarmaður skipsins, herra stór-
kaupmaður Thor E. Inhnius, ásamt
frú sinni, kom nú nreð pví til Eskifj.
„Hólar“ komu að norðan 25. p. m.
„ A 1 b a t r o s s,“ flutningsskip „Garð-
ars,“ kom hingað frá Lundúnum 30.
p. m., með fimm aðal hluthafa fél-
agins.
„V a a g e n“ og „R ó s a“ komu í
gær að norðan, og „V í k i n g u r“ og
„L y n a“ frá útlöndum.
Garðarsfélagið hefir leigt einn af
neðstu fossunum í Fjarðará fyrir 125
kr. ársleigu í fimtán ár. Ei' í orði
að leggja pangað elektriskan sporveg
til pess að flytja ís eptir til sjávaro.
m. fl.
Tóiiljóð.
Islenzkur hátíðasöngur eptir
síra Bjarna porsteinsson . . kr. 1,50
Sex sönglög eptir sama ... — 0,75
er til sölu hjá undirrituðum.
Allir peir, sem sönglist iðka og
unna, ættu sem fyrst að kaupa pessi
fögru lög, er merkir útlendir söng-
fræðingar hafa lokið lofsorði á.
Seyðisfirði, 20, ágúst 1899.
Í’orsteinn J. G. Skaptason.
Samkoma 1900.
Undirskrifaðir hafa tekið að sér,
að gangast fyrir pví, að piltar, sem
gengið hafa á Möðruvallaskóla, haldi
samkomu á Möðruvöllum í Hörgárdal
sumarið 1900, eins og pegar var ráð-
gjört meðal pilta hið fyrstaár skólans
og opt síðan.
Samkomudagurinn verður síðar á-
kveðinn og auglýstur í sömu blöðum,
sem auglýsing pessi birtist í.
I>eir lærisveinar skólans, sem hugsa
til að sækja samkomu pessa, eru vin-
samlega beðnir að láta einhvern af
oss undirrituðum vita pað fyrir 1.
febrúarm. 1900,
Þorv. Davíðsson, M. B. Blöndal,
Akureyri. Akureyri.
Páll Jónsson, Guðm. Guðmundsson,
Akureyri. púfnavöllum.
Stefán Stefánsson,
Fagraskógi
Sijimavérar.
peir, sem vilja kaupa spunavélar frá
herra Álbert Jónssyni á Stóruvöllum,
geta fengið pær hjá mér undirrituð-
um. Einnig geta menn hjá mér séð
hvernig vélar pessar vinna og feng-
ið aliar upplýsingar peim viðvikjandi.
Akureyri 24. júní 1899.
Jakob Gíslason.
Líkkistuskrúfnr og lauf
eru alltaf til hjá
Stefáni í Steinholti.