Austri - 26.08.1916, Blaðsíða 2
4'
ADSTII
00
yrirkomulaginu annarsvegar og
kjósendadekri þingmanna hins-
-
vegar. Pví með hrossakaupunum
,gera léttúðugustu fjármálamenn-
irnir sig að átrúnaðargoði skamm-
sýnna kjósenda.
Þessi hrossakaup þingmanna
verða að takmarkast sem auðið
er, eða helst afnemast með öllu
— en — hvernig verður það?
Framh.
Ursus.
*)• Kg heíi veitt því eftirtekt að P J. i
Crautl. greiddi eiiiusimii atkv. gegu fjárveit-
ingu tíl þingejjasýslu, af því honuœ fanst
annað nauðsynlegra eiga að ganga á undan
*em varð að fella. Hvort fleiri slík dæmi
■aætti finna skal eg ekkert fnilyrða um, ea
býst eg við að þau séu fá.
-----♦♦♦--------
‘tJtto-CL
—:x:—
Góð tíðindi fyrir Austrrlandl
Landsbankastjórnin hefir áhveðið
að slofna útbúið innan skams.
Sýslumanni Norður-Múlasýslu
hefir nýlega borist bréf frá stjórn
Landsbankans, þar sem þess er
getið að hún hafi nákveðiðað setja
á stofn innan skams útbú frá
Landsbankanum, á Austurlandi«.
Beiðist bankastjórnin umsagnar
aýslumansins um það, þar eð hún
%é ekki nægilega kunn staðháttum,
hvar hann telji útbúið best homið
t. d. hvort heldur á Eskifirði eða
Seyðisíirði, með tilliti til stofnunar-
innar og viðskiftama nna á Aust-
Qörðum yfir höfuð.
Þetta er »Auslra gleðiefni þar
eð hann hefir látið sér sérstaklega
ant um þetta mál, og það má vera
<Jllum oss gleðiefni, að bankastjórn-
in hefir tekið þá langþráðu ákvörð-
un að stofna útbúið hér eystra.
»Landið« skýrir frá því 28. f. m.
að bankastjörnin hafi sagt sér »að
ákveðið hefði verið þegar í vor«
að stofna útbúið. Hvað bahka-
stjórnin og »Landið« kalla »i vor«
vitum vér ekki, en hitt vitum vér
og allir þeir er lesið hafa 39. tbl.
Austra þ. á., að 18. maí í vor s. 1.
hafði bankastjórnin ekki tekið
þessa ákvorðun, heldur visar þá
tilbréfs síns um málið, til stjórnar-
ráðsins dags. 4. marz s. 1. og í
því bréfi visaði hún til bréfs síns
dags. 20. febr. f. á., og i öllum
þessum bréfum felzt neitun um
að stofna útbúið »að minsta kosti
ekki fyrri en styrjöldin er um garð
gengin, og að sæmilegt lag er kom-
ið aftur á viðskiftin í Evrópu* t'ins
og stendur i bréfi bankastjórnar-
innar 4. marz s. 1.
Það er þvi algerleya raiujl að
bankastjórnin ekki hafi neitað að
stofna útbúið, þar til 28. f. m. að
hún opnaði hjarta sitt fyrir »Land-
inu«. Ummæli »Austra« og »ísa-
foldar« um málið eru algerlega
rétt, eins og tilvitnunin í framan-
greind bréf bankastjórnarinnar
sanna.
Þó það sé dálítið óviðkunnan-
Iegt að bankastjórnin hefir leynt
þessari ákvörðun sinni fyrir Aust-
firðingum síðan í vor (hafi hún
veríð tekin þá?) en finnur sig aft-
ur knúða til að skýra reykvízka
blaðinu »Landið« fyrst af xíllum
frá mikilvægu atriði er snertir
Austfirðinga, þá skal ekki fjölyrt
um þann einkennilega atbnrð.
Aðalatriði málsins er fullnægt, fái
Ausfirðingar útbúið »innan skams«
eftir þeim skilningi erleggja verð-
ur í þau orð. —
Og þó bankastjórnin ætli »að
ala upp menn, sem hentugir sé í
stöðuna« eins og »Landið« segir,
þá vonum vér að þeir menn séu
ekki »fæddir í gær« svo að upp-
eldinu verði lokið innari skams, a.
m. k. fyrir næsta vor, svo að vér
getum átt vísa von á útbúinu þá,
og væri æskilegt að fá skýringu
bankastjórnarinnar á því, hvort
þessi skilningur á uppeldi og inn-
an skams í svona tilfelli, sé ekki
nærri sanni.
Það væri gott að ekkert yrði
lengur tvírætt né teygjanlegt fund-
ið í orðum bankastjórnarinnar er
snerta útbússtofnur.ina. —‘
En þrátt fyrir þetta er ákvörð-
un bankastjórnarinnar gleðiefni og
sízt mundum vér viljalasta banka-
stjórnina fyrir hana. —
----^♦♦^---------
Eidaskólamá?i<).
—:x:—
Niðurskurðarsamþykt /menniny-
anna Sunn-Mýlsku ódœma
markleysa!
Sýsl umanni Norður-M ú 1 asýal u
hefir nú borist svar stjórnarráðs-
ins við bréfi því, er hann reit
stjórnarráðinu 9. júní s. 1. og birt
hefir verið í ».4ustra«, út af lög-
leysusamþyktinni á sýslufundi
Suður-Múlasýslu s. 1. vor, um að
leggja niður Eiðaskólann.
Bréfið hljóðar svo:
»STJÓRNARRÁÐ ÍSLANDS.
Reykjavík, 25. júlí 1916.
Jafnframt því að skýra frá því,
að sýslunefnd Suður-Múlasýslu hafi
á síðasta fundi sínum með / at-
kvæðum (þarmeð atkvæðí oddvita)
gegn 6, ályktað að hætta fyrir sitt
leyti að starfrækja búnaðarskól-
anná Eiðum og slíta sameign
sinni við Norður-Múlasýslu um
skólann, allar eignir Eiðaskóla og
alt það laust og fast, er skólanum
fylgir, með nánari ákvörðunum,
hafið þér, herra sýslumaður, i bréfi,
dags. 9. f. m.. þótt þér eftir mála-
vöxtum teljið þessa einhliða álykt-
un sýslunefndarinnar markleysu
einá, skotið þessu máli til stjórnar-
ráðsins til þess að það fellí þessa
ály tun sýslunefndarinnar úr gildi.
Útaf þessu skal yður hérmeð
tjáð til leiðbeiningar og frekari
birtingar. að þar sem ályktunin
brýtur bág við gildandi ákvæði
um Eiðas ólann og sýslunefnd
annarar sýslunnar brestur altvald
til að breyla eða afnema þau á-
kvæði upp á eindæ'mi sitt, er téð
ályklun aiger markleysa og því ó-
þarlt ao fella hana úr gildi, þar
sem bún heíír ekkert gildi ogget-
ur ekki baft það.
3 skjöi, er fylgdu framannefndu
bréli yðar, eru yður endursend
hérmeð.
Einar Arnórsson.
Jón Hermannsso.
Til
sýslumannsins í Norð ur-M i í l as ýs lu«.
Ótvíræðari staðfesting en sú, er
felst i þessu bréfi Stjórnarráðs ís-
lands, á því, að það sé rétt sem
»Austri« hefir haldið fast fram í
þessu máli, verður ekki fengin, og
má það vera ánægjuefni öllum
þeim, sem unna tilveru einu menta-
stofnunar Austfirðingaíjörðungs og
bera menningarheiður íjórðungsins
fyrir brjósti.
Nærrí óhugsandi virðist annað
en að þeir sem feigan hafa viljað
Éiðaskóla, óg séð hafa árangurinn
af þeirri tílraun, sem 7 sýslu-
nefndarmenn Sunn-Mýlina gerðu
í vor til þess að færa skólann á
»hoggstokkinn«, að fengnum öll-
um þeim upplýsingum og skýring-
um, sem síðan eru framkomnar í
málinu, sjái, út á hvaða óheilla
braut þeir hafa leiðst í afskiftum
sínum af Eiðaskóla, og að eini
vegurinn til að bjarga sóma þeirra
er sá, að reynast þeir drengir að
viðurkenna þetta og sýna það
eftirleiðis í vilja og verki að þeir
óski að bæta fyrir þessa yfirsjón,
sem þeir í stundarhita og að lítt
athuguðu máli hafa látið sig henda.
0llum getur yfirsézt, og þó hér
hafi mikið að orðið, er það ekki
ógleymanlegt vilji aðeins mennirn-
ir breyta stefnu sinni í Eiðaskóla-
málinu til betra horfs, sem ekki
er vanheiður heldur sómi, begar
auga verður komið á hið rétta og
heillavænlega. En hitt, að halda
æ lengra út í foræðið, væri ófyrir-
geíánlegt, og ótrúlegt um menn
með fullri skynsemi. — Niður-
stöðuna í þessu efni fá menn að
sjá á því, hvort gerð verður til-
raun til að framfylgja 7mannasam-
þyktinni sður eigi. En um það
atriði má búast við að sýslum,
Sunn-Mýlinga taki ákvörðun eftir
að hann hefir meðtekið bréf sýslu-
manns Norður-Múlasýslu dagsett
21. þ. m. er hljóðar svo:
»í framhaldi af bréfi mínu til
yðar, lierra sýslumaður, um Eiða-
skólamálið, dags. 9. júní þ. á. til-
kynnist yður hér með til birting-
ar fyrir .sýshmefnd Suður-Múlasýslu
að stjórnarráðið hcfir ritað mér
á þessa leið 25. f. m. (sjá stjr.
bréíið hér að framan).
Jafnframt skal yður bentá það,
að stjórnarnefnd Eiðaskólans hefir
síðast verið kosin á sameinuðum
sýslufundi á Eiðum 9. júní 1913
fyrir tímaliilið frá 15. seftember s.
á. til jafnlengdar í ár og er þvi
kjörtími núverandi stjórnarnefnd-
ar útrunninn þá. Eftir 5. gr. nii-
gildandi reglugcrðar fyrir skólann
verður því að iialda sameinaðan
sýslufund í haust meðal annarstil
að kjósa stjórr.arnefnd fvrir skól-
ann og vil eg byðja yður er þér
hafið fengið þetta bréf mitt og at-
hugað málið að hringja mig upp
í símann svo að við getum ráðg-
ast um og ákveðið hvar og hve-
nær sýslufundur þessi skuli hald-
inn.
Jóh. Jóhannesson.«
Verði þessi sameinaði sýslufúnd-
ur haldinn og ný stj'!rnarnefnd
Eiðaskóla kosin þá er auðvitað
hin marg-umrædda 7mannasam-
þykt þar með úr sögunni.
----♦♦♦♦--------
Askoru ii.
Stjórn bókmentafélagsins hefir
ákveðið að gefa út helstu rit Jón-
asar skálds Hallgrímssonar í
bundnu og óbundnu máli og
kosið til að sjá um útgáfuna, i
samráði við forscta félagsins, þá
Hélga Jónsson, dr. pliil. i Reykja-
vík, Matthias Þórðarson, íörn-
menjavörð í Reykjavík og Jón
Sigurðsson í Kaldaðarnesi.
Til þess að rit þetta geti orðið
sem fullkomnast eru það tilmæli
útgáfunetndarinnar til allra þeirra.
er hafa í höndum eða vita um
handrit frá Jónasi Hallgrímssyni,
kvæði, sendibréf eða annað, o«>‘
sömuleiðis bréf til Jónasar, að Ijá
eða útvega nefndinni alt slíkt til
afnota, hclst í frumriti, ella í staf-
réttu eftirrili, og enn fremur önn-
ur gögn, er lúta að æfi Jónasar,
svo sem frásagnir eðaummælium
hann í bréfum samtíðarmanna.
Nefndin beiðist þess og, að henn