Öldin - 01.06.1893, Qupperneq 1
ÖlcLin.
Entered at the Winnipeg Post Office as second class matter.
Nr. 3. Winnipeg’, Man. 1893.
E F NI : Kristinn Stbpanssom: Ástagöngur
(kvæði). — M. J. Savagb : Ingersoll og
kenning hans (prédikun). — Topblius :
Sögur herlæknisins (Framh.)—Bitstjóra-
spjall : Anda-ljósmyndir.
ÁSTAGÖNGUR.
Þegar gríma glóstirnd felur
Grund og strauma mararflóðs,
Neistann fjörs og ástar elur
Unaðsleiðsla hals og fljóðs;
Enginn blær er enn þá vakinn,
Ylvolgt hvílist hauðrið sveitt,
Brjóstin heflr nóttin nakin,
Nú er blóð í æðum heitt;
Húmið seyðir,
Svarta breiðir
Sólarlausa arma’ í kring ;
Sezt er njóla
Á stjörnustóla,
Stefnir ást á munarþing.
Hér á samleiö hold og andi,
Hálsar vefjast armahandi.
Þá um aftna’ er Amor kátur,
Æska’ að gleðiboði fer,
Bennur út í rökkrið hlátur,
Rós-ilm ber í skauti sér ; .
Þögul rödd með hlóðsins boða
Berst í gegn um hjartað fljótt,
Hár sitt yfir hörundsroða
Heitra kinna breiðir nótt;
En stundir líða
Ljúfra tíða,
Lít’r upp mánans hyrnan bleik ;
Það fer að daga
Og þrjóta saga,
Þátta-skifti verða í leik.
Upp á makkann mararstrauma
Morgunn leggur rauða tauma.
Kristinn Stefansson.
INGERSOLL
og kenning lians.
Prédikun eftir séra M. J. Savage,
Unítara-prest í Boston,
Ingersoll ofursti er lang-færasti og
lang-merlcasti maðrinn af þeim, sem flytja
hér í landi þær kenningar, sem hann fer
með. — Þessar kenningar eru ekki nýjar.
Eg er viss um, að hann lieldr því ekki
fram sjálfr, að þær sóu nýjar. Aðferð hans
er heldr ekki ný að öðru leyti en því, sem
hún sprettr af gáfnalagi hans.
Hugmyndir hans eru að miklu leyti
inar sömu hugmyndir, sem þeir höfðu
Yoltaire, Gibbon, Ilume, Thomas Paine,
Thoinas Jefferson, Benjamin Franklin og
margir aðrir af stórmennum vorum á tím-
um frelsisbaráttunnar í lok síðustu aldar.
Og það sem merkiiegast er, það eru að
miklu leyti hugmyndir margra gáfuðustu
biblíuf'ræðinga nú á tímum. Margir af þess-
um biblíufræðingum standa enn að nafn-
inu til í inum svo kölluðu rétttrúnaðar
kyrkjufélögum. Þær sömu skoðanir, sem
Ingersoll ofursti liefir um biblíuna, þær
sömu skoðanir hafa að miklu leyti 'aðrir
eins menn og Colcnso byskup, prófessor
Robertson Smith, inn nafnkunni enski guð-
fræðingr og biblíudómfræðingr, og margir
aðrir, sem hér mætti nefna, ef þörf gerðist.
Þessar hugmyndir eru þannig ekki nýjar.
En almenningi eru þessar skoðanir kunn-
astar sem Ingei-soll’s skoðanir, svo að hann
stendr í almennings meðvitund eins og
einn af samtíðarinnar inerkisberum. En
það er, ef til vill, heldr ekki nema sann-
gjarnt að kannast við, að þessar liugmyW-