Öldin - 01.06.1893, Blaðsíða 10

Öldin - 01.06.1893, Blaðsíða 10
42 ÖLDIN. glóðheitu hjarta og guðmóð í anda, mann- lega heit'og mannlega fríð ? Er þör gefið að geta glaðzt með kynslóðum, sem ííðr hafa lifað, geta hatazt með þeim og elskað, verða frú þör numinn eins og þær, undrast, fyrirlíta, bölva og bannfæra með þeim, lif'a með þeim, í einu orði að segja, með heilum hjartslætti, en ekki með eintómum köldum og skoðandi skilningshyggindum ? Kom þá 'og fyig mér eftir! Eg fer með þig niðr í djúpið; hönd mín er Areik, og dauf er mín skuggsjú, en hjarta þitt rnun betr leiða þig; það reiði ög mig á—og tek svo til máls. 1. Bardaginn vid Breitenfeld. I sögu Þýzkalands og Svíþjóðar hcfir nú öldum saman liljómað nafn, sem lætr hvern sænskan mann hefja upp höfuð sitt, og hvern frjálslyndan Þjóðverja lyfta hatti fyrir. Það er Leipzig, Breitenfeld og 7. September 1631. Gústaf konungr Aðólf stóð með Svía sína og Finna ú þjóðverskri lóð til varnar inu hæsta og helgasta: frelsi manna og trú. Tilly, voðaseggrinn gamli, hafði vað- ið inn á Saxland og konungrinn veitti nú karli eftirför. Tvisvar sinnum hafði þá fundum þeirra áðr borið saman; tígrisdýrið hafði skorað ijónið á hólm, en Ijónið stóð kyrt. Nú stóðu þeir í þriðja sinn hvor öðrum andspænis; nú skyldi til skarar sltríða með þeim, og Þýzkaland skalf af kvíðalirolli fyrir afdrifunum. Árla morguns sóttu inar sænsku og finsku hersveitir suðr yfir lækinn Loder, skamt frá bænum Breitenfeld, og fylktu sér þar á völlunum. Þá fylkingarskipan hafði konungrinn sjálfr upp fundið: fótgöngu- liðinu var skift í stórdeildir, hestliðinu sömuleiðis, en sér, og skotmenn á fæti mitt í mili; allr herinn í tveim fylkingarröðum nema Saxa-her, honum var fylkt sér í lagi. Nú reið konungr fram með fylkingarröð- unum, rcndi skörpum augum og lagaði skjótt, það er honum þurfa. þótti, og mælti mörg orð til uppörvunar. Hann horfði með únægjusvip ú þessa hreystimenn ; þar stóð Gústaf Horn vinstra megin með hest- lið sitt; í miðfylkingunni vai' afreksmaðr- inn Tcuffel, og fyrir framan hann Torsten- son með leðrfallbyssurnar léttu, en voða- skæðu; í hinni fyikingunni stóðu þeir kappamir, Banér með Líflendinga sína, og Hepburn með inar hörðu skozku liðsveitir. Síðast reið konungr út að hægra armi hersins, sem hann sjúlfr var fyrir. Þar stóðu fimm stór-sveitir (regiment) afhestlið- inu: Tott með sína menn, Soop með Vestr- Gauta, Stenbock með Smúlendinga, og yztr allra Stúlhanzki með Finnana. Svipr kon- ungs varð æ bjartari sem hann reið lengra fram með röðunum og allir heilsuðu lion- um. „Stálhanzki11, mælti hann og stöðvaði inn risavaxna jarpa gæðing sinn frammi fyrir yztu röðum þeirra Finnanna, ,,yðr mun fullljóst, fyrir hverja sök að ég hefi skipað yðr utast í fylkingu. Gagnvart oss stendr hann Pappenheim með Vallón- ana,—hann mun heldr cn ekki hafa liug á að finna oss,“ bætti hann við brosandi; ,,er það ætlan mín, að vér komumst í krappan dans, gangi hann hér megin að oss með sinn grúasæg. En ég treysti því, að þér og Finnar yðar takið snarplega í móti.“ Síðan hóf hann raustina, svo að heyra mátti um allan riddaraherinn : „Sýnið nú, sveinar, að þér liöggvið ekki sverð yðar sijó á spangabrynjum þessara dólga, fellið heldr fyrst hesta þeirra, því að úr því verða inir þungu riddarar yðr auðunnir.“ Finnska riddaraliðið skiidi vel bæði háskann og heiðrinn, sem stöðu þess fylgdi, en þeir þóttust vaxa af hvorutveggja. Traust konungs fylti alla hughreysti og sigrvon. Þar var enginn maðr, sem hopað hefði þá á hæli fyrir sjúlfum honum Papp- enheim berserknum. Liti menn yfir þessa venjulega lágu og gildu menn, sem sútu á litlum og óálitlegum hestum, máttu menn í fyrstu ætla, að ekki væri þeirra færi að veita viðnúm inum risavöxnu Vallónum á inum ólmu og sterklegu góðhestum.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.