Öldin - 01.06.1893, Síða 3

Öldin - 01.06.1893, Síða 3
ÖLDIN. 35 hugsana, heldr meistaralega skygðir gimm- steinar formfegrðar—setningar, sem eru fagrar eins og blóm og angandi af inndæl- um hugmyndum. Og svo hefir hann það, sem sérhver al- þýðlegr ræðumaðr verðr að hafa, djúpa, næma, viðfaðma tilflnningu fjTÍr öllu manniegu. Eg minnist á það síðar. Hér vil ég að eins segja það, að það er ekkert það til snertandi hugðmAl eða velferð manna, sem ekki eigi sér bergmál í hjarta hans og heila. Tilflnninga-afl hans er á- kaflega sterkt. 0g þetta held ég sé fremr öllu öðru, sem ég þekki, lykillinn að meg- ineðli hans. Hann er þ'i að mínu áliti voldugasti, áhrifamesti alþýðlegi inálsniJdarmaðr heimsins nú á t mum, og það jafnt um hvaða efni sem hann talar. Hann er elcki mælskr að eins þegar hann er að tala um trúmál. I fyrsta sinn sem ég heyrði til hans, var hann að tala um stjðrnmál; og ég gat þá ekki varizt því, ýmist að lirist- ast af hlátri eða komast svo við að ég gat ekki tára bundizt, alt eítir því sem hann kaus að leika á nn'na hjartastrengi — engu síðr en þegar ég hefl hlustað á hann, er hann hefir talað uin önnur efni. Þá heflr hann og aðra gáfu, sem mjög eykr áhrif' lians á almenning, enda er hún engum öðrum rikulegar gefin en honum, og fAum jafn vel, en það er fyndni, spaugiieg gamansemi. Það er ekki af á- setningi, ekki af fyrirhugaðri illkvitni, að hann gerir eitthvað lilægilegt. Fyndnin, kátínan sýðr upp úr honum cins náttúrlega eins og vatn vellr upp úr hveri. Hann gerir sér enga leit eftir gamanyrðum sín- um óg fyndni. Eg hefl heyrt til hans heilt kveld í samtali við kunningja sína, og kýmnin og fyndnin streymdu cinlægt út frá honum eins náttúrlega eins og geislastatírnir fr.i sólunni á heiðríkum sumardegi. Iíann er einn inn skemmti- legasti maðr í viðta.li, sem ég hefl nokkru sinni þekt,. Þetta eru þeir eiginleikar, sem gera hann svo áhrifamikinn sem alþýðlegan framsögumann hvers þess, sem hann kýs að halda- fram. En er hann nú hreinskilinn maðr ? Heflr hann sjálfr trú á því, að hann hafl köllun til að vera endrbóta-maðr ? Eða er hann hversdagslegr, lítilsverðr uppgerðar-trúðr, sem leikr 1. tum sínum * til að draga að sér athygli, og misbeitir þessum guðdómlegu gáfum, sem ég hefl nú verið að lýsa, til þess að græða við það fé ? — Þetta er sú sök, sem honum er svo einatt borin á brýn. Og það er bezt að segja það um leið, að það er hér um bil sú eina ásökun, sem gerð er á hendr honum, og það af þeirri eftirtektaverðu á- stæðu, að það er ekki auðið að koma fram með ncina aðra sakargift á liendr honum, sem gæti eitt augnablik við hann loðað. Mér dettr nú ekki í hug að segja, að ég sé sérstaklega bær um að svara þessari spurningu. Þegar ég geri það, þá læt ég að eins í ljósi mína einstaklings-skoðun. En ég fyrir mitt leyti er sannfærðr um það, að honum er eins einlæg alvara eins og þeim var nokkru sinni John Calvin, Richard Baxter eða Jonathan Edwards. Hvort sem þér viljið nú heldr kalla skoð- anir hans um trúarefni, hans trúarskoðanir eða hans trúleysis-skoðanir, þá er ég alveg viss um, 'að honum er eins einlæg alvara með þær eins og nokkrum öðrum manni, sem nokkru sinni hefir lifað eða talað. Lítið eitt augnablik á málavöxtu. Þar/ hann að halda fundarræður um trú- mál til þess að græða fé ? Ef hann ætti ekki annars úrkosta, eða ef hann gæti grætt þrefalt 'meira á þessu, en á nokkru öðru, og gæfl sig einvörðungu eða mest megnis við því, þá gæti verið einhver á- tylla til að reisa þessa sakargift á. Satt er það, að ef hann auglýsti það, í hverj- um bæ svo að segja, sem vera vildi, í landinu, að hann ætlaði að tala um eitt- hvert trúarlegt mál, og þótt hann hefði engan nema umboðsmann sinn einan til að auglýsa það, þá gæti hann, án nokkurs

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.