Öldin - 01.12.1895, Síða 1
Oldin.
Entered at the Winnipeg Post Otfice as second class inatter.
III., 12. Winnipeg, Man. Desember. 1895.
Tvö kvæði
eftir
Stephan Q. Stephansson.
"Uta,n af' línunni.”
Fyrir dag, raeðan vagninn um vetrarloft
Til vinnunnar göngum hér sveinar, [skín,
í trjá-limi uglan in úrilla hrín
Og úlfur í runninum veinar.
Og snjór er á jörðu og járnkaldan súg,
Sem jökul-gust leggur oss kringum ;
f hog-göngum skógarins mjallhvítum múg
Við mætum sem dansar í hringum.
Nú skímar í austri — og skolgrátt er loft
Og skuggarnir bæla sig niður;
En frost-golan blæs nú svo biturt og oft
Að brakar inn stálfrosni viður.
Og nú leggur gadd yfir granir á oss
Og gránar af blómanum snauð kinn —
Því skammdegis-nóttin hún kveður með
koss
Eins köldum og frændi’ ennar— dauðinn !
En blóðrauðar glæður úr blaðlausum skóg
Sjást bjarma við útgOngu nætur —
In rúmlata Desember-sól upp úr sjó
Um síðir er risin á fætur.
Og sígandi máninn hann sofnar nú fast,
Er sól bjarmar ský-gluggann inn um
Á náttvöku-andlit lians bleikt eins og bast,
Með bláleitar holur í kinnum.
En snæ-fjalla-bólstrar við blávesturs-djúp
Sig breiða’ upp að himninum víðum,
Með hábjartan dag um hvern náhvítan núp
En nóttina, utan í hlíðum.
Eg segi ei oi’ð meðan áfrain ég þýt
Um einstigu hljóðlátra seggja.
Mun þögnin svo alvarleg, auðnin svo hvít
Sinn anda’ yfir huga vorn leggja ?
Uns skrúðlaufgri greni-röð liikum við hjá
Með hjarntröf um limarnar sínar —
Við altarið forðum eins fagurt ég sá:
Þær fermingar-systurnar mínar!
Og kannske að þrásinnis, þrátt fyrir alt,
Er þegjandi snjóinn við kögum
f sál okkar lýsi upp svartnættið kalt
Eitt sólbros frá umliðnum dögum.
En gjörvalt það litla sem önd okkar á
Af unað og fegurð og viti
Sem afiið í vöðvum legst út af í dá
Af erfiði dagsins og striti.
Hjá tannlækninnni.
In fyrsta tönnin fara varð.
Iíún féll samt eftir mikið þjark !
Og þetta “fyrir skildi skarð”
Menn skoða elli-mark.
I skrokknum eru hundrað hjól,
Þau in'ynja svona eitt og eitt.
Svo loksins eftir æfi-ról
Ei eftir verður neitt.
Og þú ert, læknir, þarna minn
Að þessu skrifii velkominn !
Og, gemla, alt sem meiðir mig
Eg missi létt, sem þig !