Öldin - 01.12.1895, Side 2
180
ÖLftlN.
0g svona gengur gjörvöll þjóð,
Sem gemsa-hjörð á Fróni kunn,
Sem lét sig eftir litla slóð
En lagð á hverjum runn.
0g strákar týndu’ upp hár og hár
Með hlökkun yfir slíkum fund,
Og svo í lcauptíð sérhvert ár
Þeir seldu ullar-pund!
En ant um lagð minn er mér sízt,
Og enn þá get ég lilegið víst
Og ort og sopið, klappað, kyst,
Svo hvað er reyndar mist ?
Bertel Högni Gunnlögsson.
Hér birtist lesendum Aldarinnar mynd
af þeim Yestur-Islendingi, er í fjölfræði
stendur öllum öðrum Vestur-Islendingum
langtum framar, sem í tungumálafræði ber
ægishjálm yfir öllum samtíðamönnum sín-
um íslenzkum, og enda fjölda mörgum hér-
lcndum mönnum, sem taldir eru tungu-
málafróðir. Það er spursmál, hvert Ame-
ríka á nokkurn hans jafna í Austurlanda-
tungumálum og Austurlandafræðum yfir
höfuð.
Islendingar flestir hafa heyrt nafn
prófessors Gunnlögsons og Vestur-íslend-
ingar flestir hafa kynst honum eitthvað of-
urlítið fyrir þýðingar á ritgerðum eftir
hann sem Öldin hefir fært. En fæstir
þeirra hafa séð hann fyrri en nú, að Öldin
færir þeim andlitsmynd hans, eftir Ijós-
mynd hans tekinni fyrir hálfu öðru ári síð-
an. Vér vonum að allir hafi ánægju af að
sjá þetta íslenzka mikilmenni og vér get-
um fullvissað þá um að myndin er svo góð
—svo vel tekiu—sem Ijósmynd getur verið.
Hún vitanlega sýnir ekki eldfjörið, sem
enn þá dansar í augum hans, og ekki við-
kvæmnina og blíðuna, sem skín ftt úr þeim,
þegar umræðuefnið slær á þá strengi lijart-
ans. En myndin sýnir andlitslögun, and-
litsdrætti og svip, svo vel sem mynd getur
gert.
Bertel Högni Gunnlögsson er maður á
sextugsaldri, fæddur 29. Maí 1839. Hann
er sonur Gunnlögs landfógeta á Islandi,
Stefánssonar prests Þórðarsonar, á Hall-
ormsstað í Norður-Múlasýslu, Högnasonar.
Móðurnafn hans vitum vér ekki, en móður-
afi hans var Benedikt Jónsson Gröndal.
Ofanrituð nöfn sýna að Próf. Gunnlögsson
er ættstór maður, enda sýndi Ólafur rnók-
Beutel TTögvi Gunnlögrsox.
dalín, er árið 1840 tók saman ættartölu
hans (þá áttræður), að hann í beinan karl-
legg er kominn af Freysgyðlingum. Þeg-
ar hann var 4 ára gamall (1843) fór faðir
hans utan og dvaldi vetrarlangt í Kaup-
mannahöfn. Sumarið eftir (1844) komu
þeir feðgar til Reykjavíkur aftur og dvaldi
þá Ilögni á íslandi frá þeim tíma til þess í
Nóvember 1851. Þá, á þrettánda ári, fór
hann aftur utan, með föður sínum, til
Kíiupmannahafnar og tók að stunda nám
á latínuskóla.
Það var hvorttvcggja, að Ifögni var