Öldin - 01.12.1895, Side 3

Öldin - 01.12.1895, Side 3
ÖLDIN. 181 snemma ímyndunaríkur og eftirtektasam- ur, enda af því berg-i brotinn, eins og ætt- artala hans sýnir, og — að hann þegar á unga aldri fékk óbeit á Dönum, enda ent- ist hann ekki lengi til að Iúta í lægra haldi hjá þeim. Tveimur árurn eftir komu hans til Danmerkur, iagði hann af stað, einn síns liðs til Kómaborgar. Hann var þá drengur á 15. ári og má af því ráða: að hann hafði sjálfstæðar skoðanir og undir eins meiri kjark til að framfylgja þeim, en alment er með íslendinga; að hann vildi alt til vinna að losast undan yfirráð- um Dana, og að hann var ímvndanaríkur, er hann þannig lagði af stað einsamall svo ungur, í því skyni að vinna sér frægð og frama í suðurlöndum, — nokkuð sem hon- um tókst miklu meir en í meðallagi vel. I Rómaborg dvaldi hann og hélt á- fram skólanámi tii þess vorið 1859. Þá fór hann til íslands ogdvaldiþar til haustsins. Undir vetur hélt hann út þaðan aftur og hefir hann ekki síðan séð fjaliatinda Garð- arshólma rísa vfir byigjur norðurhafsins. Tók hann þá far — ekki til Danmerkur — heldur til Edinborgar á Skotlandi og stað- næmdist þar um hríð. Fyrir viðkynningu við enskan fræðimann, Dr. Bichneli, komst hann í kynni við ýmsa stórhöfðingja. Um það leyti var danskan og norðurlandamál í hávegum meðal höfðingja allra á Eng- iandi, sem orsakaðist af því einkum, að prinzinn af Wales var þá i undirbúningi með að mægjast við Dani. Allir sem þá töldust tilheyra “fyrstu stærð” þjóðféiags- ins, vildu læra dönsku og komast niður í norðurlandafræðum. Af því leiddi að Högni, þótt ungur væri (rétt tvítugur) náði ákjósanlegustu kennarastöðu. Fékk hann þá fyrir nemendur marga ríka og nafn- fræga höfðingja. Hafði hann enda í flokki nemenda sinna um veturinn eina af dætr- um Victoriu drottningar, 5. bam hennar, Helenu Augustu Victoriu, prinzessu, er sex árum síðar giftist Frederich Christian, prinzi af Schleswig-Holstein, Etc. En æskufjör þessa framgjarna íslend- ings leyfði honum ekki að setjast þannig í “helgan stein” til langframa. Vorið næsta á eftir (18fi0) bauð vinur hans, Dr. Bichneli, honum að fylgjast með sér í ferð um Aust- urlönd og það þáði Gunnlögsson með glöðu geði. Um tíma ferðaðist hann þannig um Grikkland, Litlu-Asíu, Arabíu og Egyfta- land. En svo kom þar, að skiftust leiðirn- ar. Dr. Bichnell hélt áfram ferðum sínum en Gunnlögsson, sem nú hafði fengið löng- un til að kynna sér meira en landslag og rústir í Litlu-Asíu, sigldi norðvestur um Miðjarðarhaf til Sikileyjar og þaðan, eftir stutta stund til Neapel. Undir eins og til Neapel kom, tók hann til að kenna og hafði af því nægilegt viðurværi öll þau ár sem hann dvaldi í borginni. Jafnframt stundaði hann háskólanám af kappi miklu um fleiri ár. Lagði hann sig einkum fram til að nema Austurlandatungumál, einkum sanskrit og persnesku, og samanburðar- málfræði. Við burtfararpróflð náði hann fyrstu einkunn í þessum námsgreinum, þrátt fyrir að hann eingöngu varð að vinna fyrir sér sjálfur á meðan á náminu stóð. Eftir að hann útskrifaðist af háskól- anum, héit hann áfram kennslustörfum i Neapel til 1868. Auk þeirra starfa sinna byrjaði hann þá á að þýða merkisrit af út- lendum málum á Itölsku og var þannig lagður hornsteinn þess, er síðan jafnhliða kenslunni, hefir verið lífsstarf hans. Um áramótin 1868—69 kvaddi Gunn- lögsson Neapel og hélt til Lundúna. Hitti hann þar fjölmarga forna og nýja vini, alla háttstandandi í þjóðfélaginu. Sumir voru í miklum metum við hirðina, en sumir í heimi bókmentanna og af því leiddi, að líf- ið varð honum yfir höfuð þægilegt. Sett- ist hann þá að í Lundúnum og tók fyrir al- vöru að rita, jafnframt því er hann hélt á- fram fyrri ára starfi sínu — tungumála- kenslu. Árið 1880 fiutti hann sig seti vestar enn. Flutti þá frá Lundúnum til Chicago.

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.