Öldin - 01.12.1895, Blaðsíða 5

Öldin - 01.12.1895, Blaðsíða 5
ÖLDIN. 183 Æfisögu-ágrip af Einari -Jónssyni sterka. Fæi't í letur af Gunnari GIslasyni. Maður er nefndur Árni Grímsson ætt- aður undan Jökli í Snæfellssýslu á Vestur- landi. Hann var fæddur nálægt 1720, en kemur ekki til sögunnar fyr en 1744, að hann komst í kynni við Guðmund Sigurðs- son sýslumann, sem bjó á Ingjaldshóli Árni var hinn mesti atgerfls og listamaður eins og síðar mun sýnt verða. Guðmund- ur sýslumaður var gróðamaður og ekki vandur að með hverju móti auðurinn fókst. Er því sagt að hann hafl gint Árna til að smíða lykla að vöruhúsum sem voru I Grundarflrði og Danir áttu, til að geta stol- ið úr þeim; hafi svo haft Árna til að stela, en staðið sjálfur vaktina. Þessi iðja varð uppvís þannig, að menn komu að.* Skaust þá sýslumaður úr glugga þeim sem ha.in var í, en Árni var tekinn sem virkilegur þjófur og settur í járn eftir tilhlutun sýslu- manns, sem nú ætlaði að verða dómari hans. En svo var Árni veglyndur, að hann opinberaði ekki um sýslumann, enda hefði það ekki verið nein málsbót fyrir Árna, þó sýslumaður hefði orðið ólukku- legur. En fyrir tilstilli Árna var settur annar dómari í málinu; en vér höf- um aldrei getað uppgötvað hver hann var. Nú var höfðuð þjófssök á hendur Árna og stóð það mál yfir um tíma.** Bar Árni sig vel. Eitt sinn þegar Árni kom inn í dóm- *) Þessi stuldur fór fram aðfaranótt jóla 1745, eða þá varð það uppvíst, eftir því sem Jón Espólín segir (sjá 10. bindi Arb., bls. 7). **) Espólíu segir að Arní hafi veriðdæmd- ur til kagstríkingar og Brimarhólraserviðis en náðist ekki. Dómarinn vissi hvernig málið var lagað, en mátti ekki dæma hann sýknan, og tók því það ráðið, að hjálpa honum til að strjúka. arahúsið, og sá þar Guðmund sýslumann kastaði hann fram stökum þessum : “Ætíð heyrist eitthvað nýtt, Þa öl er nóg á gangi. Hvað er í fréttum, hvað er títt'? Hvert er ég orðinn fangi ? Að mér berast efnin vönd, Er ég þó máta glaður; Hafið þér séð hann glugga-Gfvönd ? Göfugi sýslumaður. Ljótan sýndi lasta-hrekk, Lundur stála ríkur, A flauelskjólnum græna gekk í glug-gann Ólafsvíkur. Einn dag meðan málið stóð yfir, gekk liinn setti dómari í útiskemmu þá sem Árni var geymdur í, til að yfirheyra hann. Að því búnu gekk dómarinn að tunnu sem stóð í horni fram við bjórþil skcmmunnar, og mælti þessum orðum : “Hefði ég verið þriggja manna maki, þá skyldi ég hafa brotið af mér járnin í nótt, hlaupið svo á bjórþilið og hrundið því út, tekið svo nest- ið og þrenna leðurskó með fleiru, sem geymt er í tunnunni hérna, farið síðan upp á fjallið á bak við bæinn og falid mig þar í þrjá sólarhringa, meðan leitin er sem á- köfust; að því búnu hefði ég farið norður í Þingeyjarsýslu og reynt þar til að skýla mér undir uppgerðu nafni.” Að svo mæltu geklc dómarinn burtu. Árni lét ekki segja sér þetta tvisvar, en braut af sér járnin um nóttina, og hag- aði öllu eins og fyrir hann var lagt. Næsta morgun sáu menn að bandinginn var horf- inn og fanst ekki annað í skemmunni en blað með kveðiingi á, og er lag við hann sem kallast “hurðardráttur hinn minni” : “Grundarfjarðar fjandinn, hurðum fleygir og beigir, sig teigir með limsku í læsta gátt. Lundarharður handaburðum hneigir og sveigir, en þegir, með svik um svarta nátt, Undirjarðar anda furðar. eigi þó segja frá megi, því herra boðið er hátt. Sundurmarður í sandi og urðu sleginn og ffeginn sé greyið ; ég enda þulinn þátt.”

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.