Öldin - 01.12.1895, Page 10

Öldin - 01.12.1895, Page 10
188 ÖLDIN. skipverjar hvar Einar iabbaði upp fjöruna heill og ósakaður. Segja sumir að hann hafi hvílst á ásnum undir skipinu á meðan skotin dundu. En þegar Einar var kom- inn upp á land, léttu duggarar atkerum og sigldu í haf og gerðu ekki vart við Sig framar. Eínar bjó nokkur ár í Sköruvík og flutti svo þaðan skömmu fyrir brunamóðu- hallærið 1783, að Ytri-Brekkum á Langa- nesi. Um þær mundir bjó á Syðra-Lóni Sigurður Olafsson Skörvíkings. Ila.nn var óþýður í lund og kallaður ósanngjarn í viðskiftum, hár vexti, gildur og luralegur, en nokkuð sterkur. fc-inar og hann áttu selveiði saman í Þórshöfn ; hón er á milli Syðra-Lóns og Ytri-Brekkna, en er í Lóns landi og því átti Einar ekki að hafa nema þriðjung af veiðinni. Eitt sinn gekk Ein- ar sem oftar út í höfnina að vitja um, og var Illugi sonur hans með honum, þá um tvítugs aldur. Þeir sáu að í nótunum var úteyja selur, sem kallast “rauðhöfði” eða “rauðkampi”* og var illa flæktur. Einar fer strax fram og lætur Illuga vera í and- ófl, en fyrir miklar stimpingar og óhönd- uglegt andóf, hvolfdi bátnum undir þeim. Einar náði Illuga og byttunni og synti í land, kom þar öllu I lag og fór svo fram af'tur. Skifti þá fljótt um. Einar drap selinn og kom honum á land. Gaf hann þá syni sínum kinnhest fyrir klaufaskap- inn og sagði Illugi síðar frá, að það hefði verið það versta högg, sem hann hefði fengið á æfi sinni. Eftir þetta kom Sigurður bóndi að heiman til að fara að vítja um. Einar vildi þá hafa helming af þessum sel, þar hann liefði verið öðrum tapaður en sér, en það vildi Sigurður með engu móti gefa eftir. Jókst þannig þræta orð af orði, þar til bóndi var orðinn svo reiður að liann *) Þessir Rauðkampar veiddust sjaldan; þeir eru bæði stórir og spikþykkir; bafa frá 300—400 pund af spiki og þótti mikið happ að fá þá meðan útselsveiði vár á íslandi. 0. 0, gaf Einari á hann. Einar mælti þá stilli- iega: “Því gerir barnið þetta ?” Síðan þreif hann með annari hendi framan í brjóstið á Sigurði og rétti hann upp seiling sína og hristi hann eins og flík, en slepti honum svo. Að því búnu þreif hann öxi sína og klauf selinn að endilöngu, rak rauf í annan helminginn, stakk þar í axarskaf't- inu, kastaði á öxl sér og gekk heim. Sig- urður snautaði heim líka og var svo vesall, að hann hélt við rúmið hálfan mánuð eftir hristinginn. Einar bjó nokkur ár á Ytri-Brekkum og þar misti hann konu sína. Dundi þá vflr brnnamóðu-hallærið 1783 og gengu eigur hans af honum sem fleirum. Þá brá hann búi og ætlaði sér í elli sinni að f'ara vestur til sinna f'ornu átthaga á Vestfjörð- um, því nú var hann búinn að dvelja full 30 ár á Austurlandi, frá því hann slapp úr varðhaldi og var nú orðinn f'rjáls maður eftir íslenzkum lögum. Hann gat því lif- að það sem eftir var æfinnar sem frjáls- maður. En Illugi* sonur hans giftist og bjó á Ytri-Brekkum. *) Kona Illuga hét Ingibjörg, enn son- ur þeirra var Þorsteinn bóndi Illagason sem Jengi bjó að Tunguseli á Langanesi. góður drengur og sæmilegur trésmiður. Hans kona hét Þórunn Pétursdóttir, alsystir Jakobs Péturssonar umboðsmanns á Breiðumýri í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu; hann var þingmaður Þingeyjarsýslu á fyrsta alþingi, 1845. Þórunn var vel gáfuð og skáldkona og trúkona inikil og sérlega ráðvönd í öllu. Af hennar sögusögn höfum vér flest sem hér er ritað um heimilislif Einars sterka. En Illugi tengdafaðir hennar sagði henni, og var hann kallaður réttorður maður og allvel viti borinn en nokkuð skrítinn og einkennilegur. Þór- unn áttu 4 börn sem giftust. 1. Kristlaugu er átti fyrir mann Samson Björnsson, ættað- ann úr Húnavatnssýslu. Þau hjón voru vel gáfuð og skáldmælt; Friðbjörn og Jónas heita synir þeirra og eru nú bændur í Dakota. Enn Jón og Sigurveig búa heima á Islandi. 2. Dóttir Þorsteins heitir Guðrún er átti fyrir mann Vigfús Sigfússon Jónssonar eldra á 7ftkurstöðuiji í Yopnafirði, Sigfús sonur

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.