Öldin - 01.12.1895, Síða 11

Öldin - 01.12.1895, Síða 11
ÖLDIN. 189 Einar sterki bjóst nú til ferðar og var staðráðinn í að fara vestur, eins og fyr er ritað. Vér ætlum að það hafl verið árið 1784. Þegar hann kom að Svalbarði í Þistilfirði, var þar prestur séra Olafur Jóns- son.* * Þegar prestur fékk að vita um fyr- Guðrúnar býr nú á Hvammi í Þistilfirði og er gildur bóndi. Þriðja dóttir Þorsteins er Þór- unn ; hún átti fyrir maDn Jóhannes Jónsson Marteinssonar bónda á Sveinungavík í Þistii- firði. Fjórða ba.rn Þorsteins og Þórunnar skáldkonu, hét Einar ; hann var smámenni á vöxt en góður smiður og lipurmenni í öllu. Hann átti fyrir konu Margréti Sigurðardóttir, Olafssonar SKörvíking en móðir Margrétar var Sigurlaug Jónsdóttir eldra á Vakurstöðum og alsystir Jóns yngra á Vakurstöðum sem nafnkunnur var fyrir valmensku og sann kallaður bænda öldungur. Börn Einars Þorsteinssonar og Margrétar, eru Sigurður bóndi í Dakota, hans kona Hall- dóra Guðmundsdóttir söðlasmiðs Olafssonar, prests að Hjaltabakka í Húnaþingi; annar sonur Einars er Sigfús málari í Winnipeg, hans kona Vilborg Helgadóttir Bjarnasonar, ættuð úr Staðastaðssókn á Olduhriggi í Snæ- fellssýslu; þriðja Jóhaionn klæðagjörðarkona ógift í Winnipeg til heimilis hjá bróðir sínum. Fjórða, Ouðrún ógift stúlka, Jieima á íslandi. Fimta barn þessara hjóna hét Þorsteinn og var organisti, hann er dáinn fyrir nokkrum árum hann var lipurmenni og vel skáldmælt- ur. Þetta fólk er alt vel að sér og mjög vin- sælt. svo að Einar sterki hefir verið mikið kinsæll maður. Vér þekkjum ekkert var- menni í þeirri ætt, og er hún þó orðinn fjöl- menn, þó hún gengi seint fram í fyrstu. G. G. *) Séra Olafur Jónsson var vígður til Svalbarðs 1761 og var þar prestur til 1786 að hann fékk Kvíabekk í Ólafsfirði; þar var hann til 1794 að hann dó 59 ára, hann var með vin- sælustu prestum á Svalbarði og til marks um örlæti má telja eitt, að hann hélt þrjár veizl- ur á ári öllum hjónum í sókn sinni, sem komu til kyrkju á hátíðum. Séra Ólafur kom upp með það við bændur í Svalbarðssókn, að það stæði í gömlum máldögum kyrkjunnar að hún ætti lambseldi á hverri jörð í þingunum. Buðu því bændur presti i endurgjaldsskyni fyrir veiziur og veitingar að taka af honum þetta aukafóður, sem í gamla daga meðan papizka var, hét ýmist Péturs eða Marjulamb, irætlun Einars, bauð hann honum að setj- ast að hjá sér, því séra Olafur var veglynd- ur og höfðingi í lund, en Einar var vel lið- inn og vinsæll alla þá tíð sem hann var í Þingeyjar og Múlasýslum. Þetta sómaboð þáði Einar og settist þar að. Einar var vel haldinn hjá séra Olafi, en eigí vitum vér með vissu hvað lengi; samt mun það hafa verið nokkuð á annað ár. Hann d<5 á útmánuðum veturinn 1786. Hann tók banaveikina í Marzmánuði, en næsta sinn að fólk kom til kyrkju eftir að hann veikt- ist, var hann glaður og skrafhreifinn eins og hann var að jafnaði. Höfðu menn því ávalt gaman af að ræða við hann og eins var í þetta sinn. Sló hann þá upp á gam- an og bað menn að koma í krók við sig, svo þeir gætu vitað hvert hann lægi í hor- sótt, en enginn þorði það. Það sagði Ein- ar messufólki þá, að það yrði í síðasta sinn sem þeir sæju sig lifandi, og reyndist það satt. Hann dó í næstu viku. Hann bað séra Olaf að leggja öxi sína ofan á kistu- lokið í gröfinni, því hún mundi fáum hæf, enda skaðaði sig þá enginn á henni. Það væri líka eftirtíðarmönnum til minningar, ef þeir kæmu ofan á hana; þeir vissu þá hver þar hvíldi undir. Þetta var gert, en ekki hefir enn hittst á leiði hans.* Lúk- og var þá fóðrað af hverjum búanda. Enn tveim nóttum fyrir krossmessu 1510, lét Stefán byskup Jónsson í Skálholti ganga 24 manna dóm yfir það, að þessí fóður legðist niður, enn heytollur kæmi í staðinn. Og þessi dómur hefir fullkomið gildi þann dag í dag. Þegar séra Ólafur flutti burt frá Svalbarði skrífaði hann í kyrkju skjölin, að þessi kvöð fylgdi brauðinu frá ómunatíð. 1853 var þessi kvöð dæmd af öllum býlum í Svalbarðssókn. En lderkar hafa enn allar klær úti að missa ekki þessa ófrjálsu lambasteik því flest étur svangur prestur og soltinn djákni. G. G. *) Séra Ólafur orkti nokkrar stökur eft- ir Einar Sterka og kalla ég þær gilda sönnun fyrir því, að Einar hafi verið mikill maður. Vísurnar lærði ég í æsku af Guðrúni Einars- dóttir og set þær hér eftir minni: “Jónsson dauður Einar er, útlegð þarf ei kvíða ;

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.