Kvennablaðið - 01.02.1896, Side 2

Kvennablaðið - 01.02.1896, Side 2
10 svo vel tekið, að hún heflr verið prent- uð tvisvar sinnum. Til síðasta alþingis sendi frú Elín beiðni um styrk til að koma á fót hússtjórnar og matreiðsluskóla í Reykjavík, og þótti mörgum illa farið, að þingið sinnti ekki því máli, af því margir munu vera farn- ir að sjá, að mest þörf muni vera á þess konar skóla fyrir stúlkur, enda hugðu allir gott til slíkrar stofnunar undir for- stöðu hennar. Enn líklegt er að næsta alþingi gjöri því máli betri skil. Iðnaður og útsala. > ________________ JLj^lú hefir „hið íslenzka kvennfjelag“ tekið að sjer, að koma hjer á útsolu á ýmsurn heimilisiðnaði. Það er nytsam- legt fyrirtæki, og getur orðið til mikilla hagsmuna, ef vel er áhaldið. En árangur- inn er að ö^wleyti kominn undir því, hvern- ig aimenningur tekur þessu máli, eink- anlega undir undirtektum kvennfólksins. Vonandi er, að það taki þessu máli vel, með því að öllum hlýtur að liggja i aug- um opið, hvaða gagn það gæti verið fyr- ir konur, að geta átt sjer vísan markað fyrir ýmsa hluti. Auðvitað ætti allt, sem sent væri til þessarar útsölu, að vera svo vandað sem föng eru á, með því tilgang- urinn er, að vekja atbygli útlendinga á iðnaði vorura, og geta boðið þeim, sem vildu sinna honum, gbðan varning. Öll- um, sem nokkuð hugsa um sóma og fram- farir þjóðarinnar, hlýtur að gremjast að sjá, hvað útlendingum eru oft boðnir ó- vandaðir og hroðalegir munir. Af því leiðir eðlilega það, að þeir álíta að hjer sje ekki um annað að velja. Með þessu móti er loku skotið fyrir, að nokkur markaður geti fengizt erlend^ is fyrir íslenzkan íðnað. Útlendingar, sem hingað koma og vilja kaupa eitt- hvað, fá sjaldan neitt sem mjög vel og smekklega er gjört. Þeir kaupa oftast að eins þá hluti, sem þeir endilega þurfa á að halda, nema einstöku sjervitringur, sem kaupir hvað sem býðst, rjett að gamni sínu. í öðrulagi er flest sem selt er með svo uppsprengdu verði, að enginn fátæk- ur getur gengið að því. Hjer þyrfti því að geta verið á boð- stólum góðir og velgjörðir hlutir með sanngjörnu verði. Auðvitað er orðið allt of áliðið vetrar til að geta búizt við mikl- um birgðum í þetta sinn, því þegar blöð- in komast nú út um landið, verða flest- ar konur langt komnar að vinna upp ull sína. En þó ætti, ef viljinn væri góður, mörgum konum að vera innan handar að senda eitthvað. Vel unnir vetlingar og sokkar mundu að líkindum ganga út, falleg prjónuð sjöl, dúkar og vaðmál. Væri tíminn nægur, ættu konur að geta sent allskonar vandaða vefnaðarvöru og væri þá talsverð líkindi til, að slíkt gæti vakið samkeppni milii kvenna, bæði með að framleiða sem mestan og einkaniega sem beztan iðnað. Sveitakonur, sem nóga og góða ull geta haft, ættu að reyna að vinna sem mest sjálfar af henni. Þá þyrfti minna að taka út í búðunum. Þær ættu að vinna sjer falleg sjöl, því í þeim liggja oft mikiir peningar. Kæmist nú þessi útsala á, og yrði

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.