Kvennablaðið - 01.02.1896, Page 3

Kvennablaðið - 01.02.1896, Page 3
n nokkuð til muna, gæti það líka verið mik- ið hagræði fyrir marga, sem panta hjeð- an ýmsar nauðsynjar, að þurfa ekki að senda peninga, sem ávallt eru af skorn- um skamti hjá mörgum. Þá væri svo þægiiegt, að láta eitthvað á útsöluna, og þannig hafa vöru skifti. En fyrst og síðast verður að hafa það hugfast, að vanda allt vel sem sent er. Útsala þessi verður líka sýning, þó í smáum stýl sje. Hún verður opin hálf- an þriðja mánuð, bæði tii að sýna og selja, og því ætti ekki að senda þangað annað enn það, sem enginn þyrfti að skammast sín fyrir. Þetta tækifæri ætti nú kvennfólkið að nota. Þangað ættu konur líka að senda vandað smjör og osta. Heimasæt- urnar og vinnukonurnar ættu nú að nota tíma sinn og ullina sina, til að senda eitthvað fallegt, sem þær gætu fengið peninga fyrir. Hannyrðastúlkurnar ættu að búa til fallega smáhluti, einkum bald- íraða, handa útlendingum. Kunni ein- hver spjaldvefnað, flos, knippl, gamlan út- vefnað eða aðrar gamlar hannyrðir, ætti að hugsa upp nýja hluti, sem slíku yrði kom- ið að. Yfir höfuð ætti allt það, sern sent væri, að vera sem einkennilegast fyrir ís- land, þótt fleira mætti senda. gæti þau orðið kunn, og ef til vill orðið seld til muna. Eitt af því, sem áður hefir talsvert verið gjört að, en nú er hjer um bil út- dautt, er körfu tilbúningur úr tágum. Það gæti verið þægilegt verk fyrir stálp- uð börn og gamalmenni, og mjög hentug- ir hlutir bæði á sýningu og útsölu. Körf- urnar gætu verið margskonar: stórar ull- arkörfur, kembukörfur, brauðkörfur, fisk- körfur, saumakörfur, heklkörfur og margt fleira úr tágum, ef svo mikið fengist af þeim án skemmda á jarðveginum. í Nor- vegi er nú við iðnaðarskóla í Kristjaníu kennt að bregða úr tágum ýmsa snotra og gagnlega hluti. Það gæti verið gagn- legt fyrir einhverja stúlku, sem siglir til útlanda sjer til gamans og gagns, að læra það, og síðan að kenna það hjer. Sömuleiðis mætti bregða ýmislegt smá- vegis úr trjespónum, en þá þarf að hafa sjerstaka hefla til þess, svo að trjespæn- irnir verði hæfilegir. Takist útsalan vel, er líklegt að ekki líði á löngu áður enn kvennfölkið tekur sig saman til að efna til almennrar sýn- ingar á allskonar iðnaði. En til þess þarf nægan tíma, góða forstöðukonu og áhuga, alúð og eamtök kvenna yfir höfuð. Karlmennirnir ættu líka að senda velgjörða smíðisgripi, hvort sem væri heldur úr trje, járni, kopar, silfri eða gulii. Allt smekklegt og einkennilegt ætti að senda, en einkum væri þó vel til fallið, að senda ný áhöld, sem væri þægilegri eða á einhvern hátt praktisk- ari enn áður hefir tíðkazt. Með því móti Jólagjöfln. að er nú ekki svo sjerlega langt til jólanna, bara hálfönnur vika, og hún er ekki lengi að líða“, sagði Kristin hús- freyja við Ólaf mann sinn, sem var að búa sig í „suðurtúrw, „og því vildi jeg

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.