Kvennablaðið - 01.02.1896, Side 5

Kvennablaðið - 01.02.1896, Side 5
13 ekki vegna matarins eins, sem hún og systkini hennar hlökkuðu svo óvenjulega til hverra jóla. Nei, það var þessi helgi hátíðarsvipur á öllu, sem gagntók þau og henni fannst, að hún enn þá gæti ekki misst. Á Þorláksmessu fór hún snemma í búðina og tók fóður og annað, sem til jakkans þurfti. Hún kepptist við sem hún gat, að Ijúka við störf sín og jóla- undirbúning um daginn, og um kveldið fjekk hún sjer stúlku til að vaka með sjer fram eftir nóttunni til að sauma jakkann. Á aðfangadagsmorguninn vaknaði hún í býti eftir 3 tima svefn, og fór aftur að sauma. Hún hugsaði með sjer, að þetta yrði kærasta jólagjöfin, sem hún gæti gefið manninum sínum, en herða mætti hún sig, ef hún ætti að geta lok- ið við jakkann með öðrum verkum sínum fyrir jóladagsmorguninn. Þegar maður hennar og barnið vökn- uðu, mátti hún hætta saumum og fara að gegna sínum venjulegu störfum. „Þú verður að vera þolinmóður, þótt þú fáir ekki jakkann fyrr enn í fyrra- málið, enn þá skal jeg reyna að hafa hann til“, sagði hún við mann sinn, þegar þau voru að eta morgunverðinn. „Jæja, betra er seint enn aldrei. Jeg fer samt líklega í kirkju í kveld“. KrÍ8tín kepptist við að sauma um daginn, og fór því í seinna lagi að hugsa um matinn. Telpan hennar tafði líka fyrir. Þegar þeir bræður komu heim klukkan 3, færði hún þeim brosandi kafíi og kök- nr og sagði: „Þetta verðið þið nú að vera ánægðir með fyrst um sinn. Seinna bíð jeg ykkur eitthvað betra“. „Já, enn við ætlum nú í kírkju í kvöld, og þangað er ekki til neins að fara seinna enn kl. 5, ef maður á að komast inn“, sagði Ólafur. Kristín fór nú að klæða telpuna sína í sparifötin, kveykja og laga til inni. Síðan bar hún föt bræðranna inn og lagði þau kyrfilega sín á hvern stað, sótti handa þeim þvottavatnið og fór að því búnu fram til að gegna eldhússtörfum sínum, Hún var að hugsa um hvað það væri gaman, að þau gætu nú haldið jólin sam- an öll fjögur. Henni þótti nærri því eins vænt um Jón og dóttur sína. Og hún hlakkaði til, þegar þeir komu úr kirk- junni og sæju, hvað hún væri búin að gjöra fínt og hátíðlegt í litlu stofunni þeirra. Hún flýtti sjer að laga til í svefn- berginu, þegar þeir voru farnir, breiddi hreinan dúk á kommóðuna og þurkaði af því, sera lauslegt var inni. Að því búnu tók hún upp jólagjafirnar. Það var brúða handa telpunni hennar, fáeinir vindlar ásamt tóbakspípu handa manninum og bók, sem Jón hafði lengi óskað sjer, handa honum. Hún vafði þetta inn í pappír og skrifaði utan á handa hverjum fyrir sig. Þegar hún bjóst við að kirkjufólkið færi að koma, breiddi hún dúk á borðið og ljet diskana inn. Það voru ekki neinar dýrar krásir á borðum hjá þeim daglega, enn í kveld ætlaði hún að gæða þeim á graut og steik, eins og svo margir aðrir gjöra. Hún var svo glöð yfir því, hvað hún væri mátuiega búin, svo hún gæti sjálf verið búin að hafa fataskifti áður

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.