Kvennablaðið - 01.02.1896, Side 8

Kvennablaðið - 01.02.1896, Side 8
16 voru þvegnir, svo trjákvoðan, sem festir blaðið í skaftinu, bráðnar úr. Við það má gjöra með þvi að fá sjer trjákvoðn og fylla hnífskaftið með henni, gjöra svo tangann af blaðinn vel heitan í eldi og reka það í flýti inn í skaftið, og snerta hnífinn svo ekki fyr enn hann er orðinn vel kald- ur. Pá er blaðið orðið fast og hnífurinn jafn- gðður. Glyserína-áburður er ágætt meðal við ýmsum hruflum og sprungum í höndum og fótum, kulda- bðlgu, sárum o. s. frv. Hann gjörir hendurnar mjúkar og er ómissandi fyrir kvenfðlk, sem er oft með hendurnar í kulda og vatni. Bræða skal 160 grömm af sætri möndla-olíu, 30 gr. spermaeet og 5 gr. hvítt vax. Síðan eru 30 gr. glyseríns sett saman við og hrært vel í, en ekki má hitinn vera ofmikill. Hræra verður í, þangað til áburðurinn er kaldur. — Lát ofurlítið af sápu í vatn, sem línsterkja skal leysast upp i. Þá verður meiri gljá á lin- inu og línsterkjan festist ekki við járnið. — Hægra er að bursta ofna og þeir verða fagr- ari, ef þeir eru nuddaðir vel með lepp, sem sápa er í, áður enn borið er á þá. Síðan eru þeir burstaðir vel með bursta, eða sje hann ekki til, þá með ullarlepp. Sm ælki. Hann: Elskan mín, í dag höfum við verið gift í 10 ár. Hún: Já, gðði minn. Hann: Þegar við giftumst varstu 24 ára. í dag segir þú mjer, að þú sjert 31 árs gömul. Hún: Ó, hvað tíminn líður fljðtt, þegar mað- ur er ánægður. Móðirin (kembir Haraldi, sem skælir og ber sig illa). „Gðði Halli minn, vertu ekki svona 6- þekkur, heyrir þú mig nokkurntíma bera mig svona illa, þegar jeg greiði mjer“. „Já, enn þitt hár er heldur ekki fast á höfðinu, æ, æ“. Kænska. „Hvers vegna færir þú inn hnapp- ana í frakkanum? Nú verður hann of víður“. „Já einmitt þess vegna gjöri jeg það. Þá heldur maðurinn minn, að hann sje að leggja af, og svo lætur hann mig fá meiri peninga til heim- ilisins". Skrautvefnadur. Vegna þess, að ýmsar konur hafa sent mjer fyrirspurnir um, hvar og hvern- ig tilsögn fáist í skrautvefnaði, læt jeg hjer með almenning vita, að fröken Ingi- björg Bjarnason í Reykjavík kennir alls- konar skrautvefnað. Sýnishorn (Mönstre) af skrautvefnaði fást hjer ekki, en panta má bækur, danskar og sænskar, sem segja fyrir honum og sýna uppdrætti með lit- um. Bækur, sem heizt hafa hjer verið notaðar, hafa kostað 2,50—3 kr. Vefa má slíkan vefnað í íslenzku vefstólunum, en þeir eru stærri og óþægari með- ferðar. Útgef. Kveunablaðsius. Tvær myndarlegar sveitarstúlkur geta fengið vist á góðu heimili í Reykja- vík 14. maí næstkomandi, önnur til að gegna herbergisstörfum, enn hin til að vera við matreiðslu. Útgef. ,Kvennablaðs- ins’ gefur nánari upplýsingar. Krennablaðið kemur út einu sinni í mánuði, 12 blöð á ári, og kostar 1 kr. 50 aur. — Þriðj- ungr verðsíns borgist fyrirfram, en 1 krðna í júlímánuði. Segi nokkur upp blaðinu, láti út- gefanda vita skriflega fyrir 1. október. Sölulaun 7,. Afgreiðsla: Þingholtsstræti 18, Reykjavik. Sendið sem allra fyrst fyrirframborg- unina fyrir „Kvennablaðið“. Útgefandi: Brfet Bjarnhjeðinsdöttir. FJelagsprentimiðJan,

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.