Kvennablaðið - 01.04.1896, Side 1
Kvennablaðið.
2. ár.
Reykjavík, apríl 1896.
Nr. 4.
ísleuzk listakona,
|f§P að er fátítt hjer á landi, að menn
leggi stund á listir, jafnvel þótt líklegt
sje, að íslendingum sé ekki varnað nátt-
úruhæflleika í þeim greinum fremur en
frændþjóðum þeirra.
En vegna fátæktar
og fámennis munu
að vísu þau listaverk
lítt þrífast hjer, sem
að meira eða minna
leyti eru miðuð við
hugsjónir, svo sem
ýmisl. myndasmíði
og trjeskurður o. s.
frv., en aftur á móti
er oss einkar-áríð
andi, að rækja þær
listir, sem snerta
meira eða minna flest
hið verklega, en þær
höfum vjer einmitt
vanrækt fremr flestu
öðru. Þannig er
teiknun að kalla má
ókunn menntagrein
hjer á landi og varla
kennd svo í lagi sje á nokkrum skóla
hjer, og má þó óhætt fullyrða, að fáar
námsgreinir í skólum eru jafn menntandi
í verklega átt. Tveir íslendingar eru nú
að læra myndhögg erlendis, og einn mun
vera fullnumi í trjeskurði, en naumast
getum vjer búizt við að hafa annað gagn
af þeim, en að þeir geti orðið landinu til
sóma í útlöndum, sem bregðast má til
beggja voua.
Öðru máli er að
gegna um listakonu
þá sem Kvennablað-
ið flytur nú mynd af.
Það er frú Krist-
ín Jakobsson í Kvík,
dóttir þeirra merkis-
hjónanna alþingism.
Páls Yídalíns (f 1874)
og konu hans frú
Elínborgar Friðriks-
dóttur, sem nú er
kona prófasts Bene-
dikts Kristjánssonar.
Frú Kristín Ja-
kobsson er hin fyrsta
og einasta íslenzk
kona, sem lært heflr
á listaháskólanum
(Kunstakademiet) í
Kaupmannah. Hún
hafði óvanaiega hæfi-
leika til dráttlistar og málaralistar, og
málaði hjer heima mynd eftir annari mynd,
sem einn af frægustu málurum Dana og
prófessor við listaháskólann hafði gert.