Kvennablaðið - 01.04.1896, Síða 3

Kvennablaðið - 01.04.1896, Síða 3
27 álíta sjálfsagt, að mannseðlið sje með öllu óbreytilegt, og að með því sama skap- ferli, sem hver fæðist, hljóti hann að deyja; það verði ekkert lagað til. En er það nú alveg áreiðanlegt, að menn geti ekki breytt skapferli sínu? Því verður ekki neitað, að þeir, sem fæðast með ljettri og glaðri lund, miklu þreki og starfslöngun, hafa fengið yfir- burði og skilyrði til að komast áfram, fram yfir þá, sem frá fæðingu eru þung- lyndir og seingjörðir, sem jafnan skapa sjer áhyggjur og geta svo örsjaldan sjeð sólskinið og gleðina í lífinu, fyrir kvíða um, að bráðum komi sjálfsagt eitthvert jelið, eitthvert óhappið, sem þeir verði að vera viðbúnir að fyrirbyggja, svo þeir raegi aldrei gefa sjer neina hvíld, heldur strita og slíta sjer út án þess að á- rangurinn verði verulegur. En það er líka víst, að ef þeir litu ekki á lífið með þessu „svarta bliki", sæju ekki allt í gegn- um dökk gleraugu, mundu þeir ekki taka sjer allt jafn nærri. Þeir mundu sjá, að það væri heimska, að búa sjer til áhyggj- ur löngu áður en almenn dauðleg augu sæju líkindi til að þær ættu sjer stað, og svo mundu þeir læra að vinna þann- ig, að stunurnar og stritið minkaði, en árangurinn yrði meiri, og þeir færu ekki alveg á mis við hvíld og gleði. Þeir mundu sjá, að öll þessi armæða og á- hyggjur eyða Iífskraftinum og skapa and- lega auðn og frost í kringum sig. Jeg hefi þekkt tvö heimili með tveim- ur slíkum húsmæðrum. Önnur þeirra var embættismannskona í sveit, bjó fjarska stóru búi, átti fjölda barna, og hafði að segja yfir mörgu fólki. Þangað kom fjöldi gesta daglega og heimilisfólkiðvar milli 20 og 30 manns, auk daglauna- manna. Þessi húsmóðir hafði auðvitað næg efni, en mörgum mundi sýnast hún hefði getað haft miklar áhyggjur og mundi vera oft þreytt. En hún var sí- glöð, allt gekk vel á heimili hennar, hún hafði mjög gott lag á að nota fólk sitt án þess að þurfa að ganga með því í allt sjálf. Hún var höfuðið, sem skipaði fyr- ir, fólkið vóru hendurnar, sem fram- kvæmdu skipanir hennar. Hún hafði jafnan tíma til að borða á vissum tím- um inni með manni sínum, og við gesti sína var hún mjög skemtin. Hún sýnd- ist hafa tíma til alls. Einu sinni erjeg kom þangað, voru þar 18 daglaunamenn, er allir átu miðdagsverð í daglegri stofu þeirra hjóna. Jeg sagði við hana, að það mætti vera leiðinlegt fyrir hana, hvaða fyrirhöfn það væri, að halda her- bergjum hreinum eftir svo marga menn; en hún hló og sagði: „Já, það tek jeg mjer ekki nærri, því ef jeg gjörði það, þá hefði jeg nóg til að gremja mig af hvern einasta dag. Þetta verður svo að vera, og jeg reyni að fá það bezta út úr því“. Og hún fjekk líka það bezta ’út úr því’. Heimili hennar var almennt við- urkennt stjórnsemdarheimili, án þess að hún eyddi tíma og peningum í óþarfa- ’nostur’; hún var sálin í því, og gestir hennar kváðust hvergi koma, sem þeim liði betur; þeir sáu aldrei, að þeir tefðu fyrir eða væru óvelkomnir, og þó gekk öll vinna sinn vanalega gang. Annað heimili hefi jeg þekkt, þar sem líka voru nóg efni, enn mjög fátt fólk og eitt einasta barn. Þar gekk búskap-

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.