Kvennablaðið - 01.10.1896, Blaðsíða 5

Kvennablaðið - 01.10.1896, Blaðsíða 5
77 en þú getur víst hjálpað mjer, pabbi, því þú veizt víst meira en skólafrökenin. Veiztu ekki meira?“ „Það er eftir því hvað það er“, sagði hann og brosti lítið eitt. „Láttu mig bara heyra það, drengur minn“. „Já, veiztu, pabbi, að engir menn þurfa að vera ógæfusamir?“ „Svo“, sagði faðir hans. „Nei, allir geta orðið farsælir“. „Hvernig á að fara að því?“ „Við lásum um einhvern, sem var svo fátækur, veikur og átti svo bágt og enginn skeytti um. Hann lá í sjúkra- húsi, og þá var líka vor, og þá horfði hann á bláan himininn út um gluggann og sólskinið, og svo varð hann glaður, þó hann ætti svo bágt. Það var heldur ekkert undarlegt, fyrst hann sá sólina; var það það, pabbi? En nú skal jeg segja þjer nokkuð, pabbi. Einn morgun þegar hann vaknaði, var hann orðinn blindur, ó, pabbi, alveg blindur“. Augu Victors litla fylltust af tárum. — „Átti hann ekki ósköp bágt?“ „Jú, það átti hann“, sagði faðirhans undarlega þreytulega. Honum fannst sem barnið segði sjer þarna æfisögu sína. Fyrst berserksgangur æskunnar við fá- tækt og fölnaðar vonir, en þó með gleði í hjartanu, því hugsjónirnar, eða æfisól hans, var enn þá ekki birgð af skýj- um. Svo komu fullorðinsárin með sína stöðugu baráttu fyrir daglega brauðinu. Hann sá ekki sólina lengur, ekki einn einasta vonargeisla. Hann var alblindur. „Viltu ekki heyra meira, pabbi?“ „Jú, haltu áfram, drengur minn“. „Þá var haun spurður að, hvort ekki lægi mjög illa á honum, en hann sagði: ,Nei, því þó jeg sjái sólina ekki lengur, þá er hún í hjarta mínu‘. Hvað meinar hann með því, pabbi?“ „Nú, og það gat frökenin ekki sagt þjer nákvæmlega?“ „Nei, hún komst ekki til þess, því þá var hringt. En mjer gjörði það ekk- ert tU, því jeg vissi að þú vissir það, pabbi. Hún sagði bara, að þannig gætu allir verið farsælir, sem geymdu sólskin í hjartanu. Hvernig er það, pabbi?“ Faðir hans horfði á hann með sorg- bitnu og innilegu augnaráði. Nei, í þessu var hann víst ekki fróðari en frök- enin. Hann klappaði á höfuð drengsins og gekk hljóðlega inn í sitt herbergj, en Ijet hurðina vera í hálfa gátt. Hann vissi að Victor yrði ekki ánægður fyr enn hann fengi útskýringu. — Ætli Ragna reyni það? Hann heyrði að Victor sagði hálf- skælandi: „Mamma, pabbi vissi ekkert; getur þú sagt mjer, hvernig á þessu stendur ?“ GHsli sá hvernig Ragna tók dreng- inn upp í kjöltu sína, og beygði sig ást- úðlega ofan yfir hann og sagði: „Jeg skal segja þjer, barnið mitt, hvað pabbi sagði mjer einu sinni þegar jeg sat svona í kjöltu hans“. „Varstu þá svona Jítil“, spurði hann. „Nei, jeg var nokkuð stærri, en auð- vitað langtum minni eun hann. Hann var svo stór í raínum augum“. „Nú, nú, mamma mín“. „Þá kyssti pabbi mig svona og sagði: ,Hve dimmt sem lífið kann að sýnast, þá

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.