Kvennablaðið - 24.04.1907, Blaðsíða 3

Kvennablaðið - 24.04.1907, Blaðsíða 3
KVENNABLAÐIÐ. hefir verið venja, að kvenmaðurinn heflr borið svo miklu minna úr býtum fyrir störf sín, sem þó oft eru engu minna virði en karlmannsins, og einatt að þær ganga að sama verkinu og karlmaðurinn, og hafa engu síður lagt fram krafta sína til þess, en þeir. Það er von, að hverjum tilfinning- arsömum kvenmanni sárni slíkt. Hvort ætli sé betra að slá, eða raka í rigningu á sumrin? Eg bvst við, að flestir karlmenn kjósi heldur að taka orfið, en hrífuna, enda er mikill munur á því starfi. Það er margur steinn í götu kvenþjóðarinnar ís- lensku, sem kasta þarf á burt, og við verð- um að vera samtaka í að ryðja hana, bæði fyrir okkur sjálfar og dætur okkar. I’að er margt enn, sem eg gæti minst á, en tím- inn leyfir mér ekki í þetta sinn að fara lengra út í þau efni. Eg vil að endingu benda hinúm íslenzku konum á, að íhuga alvarlega málefni það, sem »Kvennablað- ið« berst fyrir. Það er ekkert hégómamál, ekkert barnahjal. Það er velferð okkar allra, yngri sein eldri, fyrir ókomna tíð. Við megum ekki láta það afskiftalaust, og láta eirta konu ur okkar flokki leggja fram krafta sína í þarfir okkar, án þess að veita henni lið. Við verðum að vakna og byrja, að feta okkur áfram að þvi stigi, sem við eigum að stauda á. Eg veit, að mörg kona hikar sér við að rita i blaðið, og láta þann- ig skoðanir sínar í ljósi opinberlega, en slíkt er skökk sköðun. Við komum engu til leiðar með því að þegja. Eg 'er viss um, að það eru flestar konur, sem hafa meiri ástæðu til að láta skoðanir sínaríljósi, en eg, því eins og eg tók fram áður, er eg frjáls að öllum mínum gjörðum, úti og inni, svo eg kýs það ekki betra. Eg vona því, að þær konur, sem hafa erfiðari kring- umstæður, láti til sín heyra, og hafi þrek í sér til að byrja, þá muni fleiri á eftir fara. Eg óska, að íslenzka kvenþjóðin horfi fram, en ekki til baka. M. E. (húsmóðir). „Jaoni aumingi(í. Eftir Cecilia Milow. (Frh.). En Betty vék sér undan áframhaldinu. »Janni, jeg þarf að ljúka við kjólinn minn«, sagði hún í bænarrómi, svo Janni settist aftur niður, þægur og hlýðinn eins og vant var, við saumavélina. »Má eg vera með ykkur?« spurði hann svo alt í einu. Betty varð alveg ráðalaus. Engum hatði kom- ið í hug að bjóða Janna að vera með, og nú sat hann þarna, og starði á hana með slíkum bæn- arsvip í andlitinu, að henni gekkst hugur við. „Já — sjáðu nú til — það er svoleiðis, að — að —sagði hún og fór ( ráðaleysi að tægja upp ullartusku. — „Það er svoleiðis, að það eru að eins vinir skjalaritarans, sem eru boðnir með, og — og þú tekur það ekki sem móðgun, þótt — þótt — eg sé hreinskilin?" spurði hún óróleg. „Getur hreinskilnin nokkurntíma móðgað?" spurði hann. „Já, — stundum. Jeg skal segja þér, að það er venjulega við svona tækifæri, að karlmennirnir bjóða kvenfólkinu að fara sér til skemtunar spottakorn með gufubátunum upp Gautaborgar- skurðinn, og svo sjá þeir um að hafa v(n, söng, hljóðfæraslátt og þess konar skemtanir og það kostar alt peninga, skal eg segja þér“. „Svo?-og eg gæti ekki verið með af því eg gæti ekki lagt fram tillagið?" „Þú vildir víst ekki koma með á annan hátt, Janni", sagði hún áköf og beit í sundur saum- þráðinn og fleygði tuskunni burtu. „Eg vildi þú litir ekki svona fyrirlitlega á mig«, sagði hann lágt, en ákaft, „því pad móðgar". „Eg — eg bið afsökunar. Eg ætlaðist ekki til þess — en —«. „Nei, nei, engar afsakanir", sagði hann glað- lega. „En ætli ég gæti ekki fengið að vera með eins og þjónn eða skutilsveinn. Eg hefi hvort sem er verið sama sem hlaupadrengur alla mína æfi. Eg gæti borið sjölin og yfirhafnir kvenfólks- ins, róið ykkur um skurðina, dregið upp kampa- vínsflöskurnar og —“ „Attu þá ekkert sjálfsálit til, eða sjálfsvirðingu, Janni?" kallaði Betty upp með leiftrandi augnaráði. „Hvernig geturðu viljað vera slíkur aumingi?" „Vinnan er eins góð og peningar; það hefi eglært í Ameríku", svaraði Janni og reigði höfuðið, sem varsvo fallega lagað, drembilega aftur á bak. „Það getur oft borið við, að sá, sem þjónar, sé minni aumingí en hinn, sem þjónað er“.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.