Kvennablaðið - 24.04.1907, Blaðsíða 6

Kvennablaðið - 24.04.1907, Blaðsíða 6
30 KVENNÁ BLAÐIÐ. mæta allar í fylkingu, og eru miklu fleiri en karlmennirnir. Hér kemur gömul, lotin kerling, sem styðst við staf, þarna kemur gild og feit kona af meðalstéttinni, hérna ung verkastúlka o. s. frv. Allar kunna þær að meta hin nýju réttindi sin. Sumum skjátlast i að koma á réttan kjörstað, og þegar þær hafa beðið 4—5 kl.st. og loks fengið að vita um þetta fara þær þangað. Sumar vita ekki, hvað þær eiga að segja, þegar röðin kemur aö þeim, og nefna þá hvaða póli- tiskum flokki þær fylgja, í staðinu fyrir að segja nafn sitt. Þarna kemur fram kona, sem gætir Qár á bóndabæ og vön er að vera óhrein og illa klædd. Nú hefir hún þvegið sér og greitt og klæðst i sparifötin til að fá að vera með. Þegar hún hefir kosið og er komin fram segir hún kjökrandi: »Nú finn eg fyrst, að eg er líka manneskja eins og hinir«. Að hálfum mánuði liðnum verður búið að telja saman atkvæðin. En við vitum þó svo mikið, að kvenkjósendur hafa verið fleiri en karlmennirnir. Helsingfors 15. marz 1907. Maikki Friberg, dr. phil. Fimáand. Par fóru fram kosningar til þingsins (Landdagsins) þ. 15,—16. marz sl. og tóku konur almennan þátt í þeim samkvæmt nýju lögunum frál.oktsl. Þar hlutu 19 finsk- ar konur kosningu til að sitja á þingi, og er það í fyrsta sinni hér í álfu, sem konur sitja á löggjafarþingi þjóðanna. I tilefni af þessum mikilsverða sigri finnskra kvenna, sendu öll íslenzk kvenfélög í Reykja- vik þeim svohljóðandi samhygðar símskeyti: íillamingju og velgengni óskum vér ftnnsku sgstrunum. Pökk /yrir vel unnið mikið starf i kvenréltindam álin u. í umboði níu íslenzkra kvenfélaga í Reykjavík. )>Kvenréttindafélagið««. ----—» • i------ Móðar. vera »útitreyja, með sléttum »skinke«-ermum, en uppslög og kraga af öðru efni, ef vill, eða með snúru leggingum. Uppslögin og kraginn geta þá verið t. d. af hvítu klæði eða þeim lit, sem bezt á við efnið. Ef kjóllinn er úr þunnu efni, eins og hér i blaðinu, þájmá skreyta hann á hvern þann hátt, sem bezt líkar. Uppslögin og kraginn geta þá verið úr fínuefni.t. d. silki- taui, og ýmiskonar skrautá treyjunni t. d. hnapp- ar o. s. frv., ásamt fínum blúndum í ermunum, sem þá eru oft hálfermar. XJti-l< j 11 kvenna. I þetta sinn flytur Kvbl. mynd af fallegum nýtýsku-útibúningi kvenna. Treyjan, sem er hin svo kallaða »spanska«-treyja er mjög »móð- ins« bæði sem yfirjakki úti, yfir ljósum, þunn- um blúsum og við fína kjóla inni. Pilsiðerhið svokallaða »beltis«-pils. En ef það líkar ekki, þá má klippa bekkinn af því sem nær upp fyr- ir mittið. Pilsið fer vel á vel vaxnar konur og stúlkur, en betra er að fóðra það, þótt það sé úr þykku efni, Treyjan er, þegar hún á að Klæöi - Kjólatau - Silki. Hvergi fáið þjer eins gódar vörur og ódýrar, sem hjd Egill Jacobsen’s vefnaðarvöruverzlun. Telefén 111».

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.