Kvennablaðið - 15.06.1907, Page 2
KVENNA.BLA.ÐIÍ).
ætti það líka að vera með vinnufólkið. Það
ætti bæði að vera fært um, að leysa verk
sín vel af hendi og gera það líka, án þess að
húsbændurnir þyrftu að eyða t.ima sínum til
að standa yfir því og segja því fyrir.
Þetta á þó einkanlega við vinnukonurnar.
Þær eru mjög oft alveg óvanar öllum þeim
störfum, sem þær hafa tekið að sér fyrir fult
kaup. Þar af leiðir, að þær geta ekki leyst
þau sæmilega af hendi, nema með því að
húsmóðirin eyði tíma sínum til þess að standa
yfir þeim til að kenna þeim verkin. En þeg-
ar menn ráða sig upp á full laun, þá eiga
verkin að vera sómasamlega af hendi leyst.
Þetta er aðalástæðan fyrir því, að vinnu-
konustaðan er ekki alment virt eins og aðr-
ar iðnaðargreinir. Enginn annar iðnaðarmað-
ur eða kona lætur sér detta í hug að taka
að sér verk, sem hann eða hún ekki kann
nokkurnveginn. Ef vinnukonur sýndu nokk-
urn áhuga á, að fá stétt sína virta og við-
urkenda, sem iðnaðargrein, þá yrðu þær fyrst
og fremst að heimta af hverri einustu stúlku,
sem vistar sig upp á full laun, að hún væri
fær um að leysa verk sín vel af hendi og
gerði það iíka, svo ekkert yrði með sanngirni
út á þau sett.
Því þetta er jafnrétti. „Yerður er verka-
maðurinn launanna", segir máltækið. En
launin eiga að fara eftir því, hvernig verkin
eru af hendi leyst. Auðvitað eru í öllum
stéttum fólk, sem leysir verk sín misjafnlega
vel og samviskusamlega af hendi. En það
verður venjulega kunnugt, og laun þess og
álit fara oftast þar eftir.
Þetta eru vinnukonur farnar að skilja
annarsstaðar í heiminum. Bæði í Danmörku
og Finnlandi hafa vinnukonur risið upp, sem
hafa sett sér það hlutverk, að fá stétt sína
viðurkenda sem iðnaðargrein, og þær virtar
sem annað iðnaðarfólk, sem hefði ákveðna
tímavinnu á dag. En þær hafa lika ákveðið
fyrir sína og stéttarsystra sinna hönd, að á
þessum ákveðna tíma skyldu öll dagleg verk
vera vel og samviskusamlega af liendi leyst.
Þær hafa stofnað vinnukonufélög og vinnu-
konuskóla, og vakað yfir, að stúlkur þær, sem
í þessum félagsskap væru, ieystu verk sín ó-
aðfinnanlega af hendi. Til þess að gera þær
færar um það, hefir forstöðukona félagsins í
Kaupmannahöfn, sem sjálf er og hefur verið
vinnukona, stofnað vinnukonuskóla þann, sem
getið er um á öðrum stað hér í blaðinu.
Þetta er ávinningur fyrir báða parta. Vinnu-
konurnar íá styttri vinnutíma en sumstaðar
hefur verið áður. Þær hafa áskilið sjer 12—14
tíma vinnu, og að þær hefðu á þeim tíma
lokið ötlum venjulegum heimilisverkum. Ef
þær ynnu lengur einhver verk, sem fram yfir
væru, t. d. að kvöldboðum o. s. frv., þá fengu
þær sérstaka borgun íyrir það. Og húsmæð-
urnar fá verkin gerð á réttum tíma og mikið
betur af hendi leyst. Þær eiga heimtingu á,
að engin verk séu geymd frá einum degi til
annars, heidur öilu því lokið á hverjum degi,
sem honum heyrir til.
Þegar vinnukonurnar hafa komist svo
langt, að geta leyst öll heimilisverk sóma-
samlega af hendi, hjálparlaust frá húsmóður-
innar hendi, og um leið hafa lært að þjóna
sér og halda fötum sínum og sjálfum sér hrein-
um og í góðu lagi, þá hafa þær fullan rétt
til þess, að stétt þeirra só álitin iðnaðargrein.
Og sú iðnaðargrein verður í margra augum
meira verð en flestar hinna kvenlegu iðnaðar-
greina. Að minnsta kosti hygg eg að pilt-
arnir viiji fult eins vel eignast þá konu, sem
er vel að sér í öllum heimilisverkum og get-
ur staðið hjálparlaust fyrir þeim, eins og stúlk-
ur, sem standa í búðum eða hafa tekið fyrir
einhverjar aðrar atvinnugreinar. Líkurnar til
að þær verði góðar og sparsamar húsmæður
eru langtum meiri.
--- m • m--------
„Janni aumingi“.
Eftir Cecilia Milow.
(Frh.). ------
Eftir nokkrar mínútur lauk hann upp ver-
andarhurðinni og sagði:
„Húsbóndinn biður þig hjartanlrga velkomna
í sín lítilfjörlegu húsakynni. Hann lítur út fyrir
að vera einstaklega viðkunnanlegur maður! —
Komdu nú inn, Betty?“
Hún fór hálf hikandi inn.
„Enn hvað þetta er skemtilegt herbergi!“
sagði hún og gekk beint að speglinum til að laga
á sér fötin. „En sú ljómandi útsjón hjeðan, og
hvað villan er inndæl".
Ojá, hún er ekki sem verst. En bygginga-
meistarinn hefir þó ekki verið sérlegt gáfuhöfuð,
því maður verður nærri því að snúa hálsinn úr
liði til þess að geta séð fossana þarna yfir frá.
Nei, eg skyldi hafa haft útskotsglugga hérna.
Það hefði litið alt öðruvfsi út.