Kvennablaðið - 15.06.1907, Blaðsíða 5

Kvennablaðið - 15.06.1907, Blaðsíða 5
KVENNABLAÐIÐ. 45 mikla þökk iyrir að hafa komið honum á fót, ætti að gangast fyrir breytingu á lögum fétagsins t þá átt. Ekkert meðal væri betra til að vekja fé- lagslega samvinnu meðal unglinganna. Auk þess ætti það að gera drengina kurteisari og prúðari í framgöngu og stúlkurnar frjátslegri og ófeimn- ari. Sameiginleg félög og samskólar ættu að skapa prúðari karlmenn og frjálslegri konur. Utan úr heimi. I tilefni af símakeyti því, sem Kvenréttinda- félagið sendi héðan fyrir hönd allra kvenfélaga í Reykjavfk til finnskra kvenna, hefur ritstýra Kvbl. fengið svo hljóðandi bréf frá helzta kvenfélagi þeirra, sem komið hefur 4 konum að, til þing- mennsku við kosningarnar í vetur, þ. 15 til 16. marz: „Til kvenréttindafélagsins í Reykjavík. Um leið og vér sendum yður þakklæti vort fyrir heillaóskir yðar til finnskra kvenna, sem oss voru birtar af ritstjórn tímaritsins „Nutid“, óskum vér yður heillaríks árangurs með baráttu yðar fyrir velferð íslenzkra kvenna. Mætti hin áhuga- mikla starfsemi íslenzkra kvenna þarna norður undir heimskautinu fyrir framförum og velferð systra sinna krýnast með sigri! Með hjartanlegri kveðju! Kvenréttindafélagið „Unionen". Annie Furuhjelm. p.t. form. Anna Lundström, ritari". Svfþjóð. Par heflr ríkisþingiö samþykt nýlega, að rýmka um réttindi kvenna í ýmsum atvinnumálum, og samþykt þá breytingu á grund- vallarlögum ríkisins, sem heimila konum rétt til að gegna læknaembættum og kennaraembættum við háskólana, en ekki mega þær gegna guð- fræði og lögfræðisembættunum ennþá. Sömu- leiðis mega þær gegna embættum við vísinda- stofnanir, og alls konar listastofnanir. — Litið er betra en ekki neitt. I Noregi er frumvarp um pólitiskan at- kvæðisrétt kvenna, fyrir Stórþinginu. Ýmsir eru því meðmæltir, en meiri likindi eru þó til, að það gangi ekki fram að þessu sinní. Ungland. Par hafa konur nú í síðast- liðnum marzmánuði enn á ný mótmælt aðför- um Parlamentisins, með kosningarréttarmál kvenna, og voru þá um 30 konur teknar fastar og settar í mánaðar fangelsi. Illar sögur fara af meðferð á þeim. Og merka tímaritið »Rewiew of Rewiews« segir með berum, að það sé áreiðan- lega sagt, að ýmsar þeirra hafi verið teknar nauðungartaki í fangelsunum, þótt blöðin þori ekki að geta um það. Sjálfum þeim sé málið svo viðkvæmt, að þær geti naumast talað um það opinberlega. — En hvernig sem þessu er farið, þá er það víst, að kosningarrjettarmál- inu hefir við þessa hluttöku kvenna flej'gt áfram, svo að nú eru allar stéttir manna á Englandi orðnar þvi velviljaðar. Og forstöðukona aðal- félagsins, Millicent Fawcett, sem í fyrstu var ekki með þessum aðförum, gekk þegar i lið með þeim, og sagði i vetur, að »Suflragetterne» hefðu nú á 12 vikum þokað málinu lengra á leiðis, en við hefðum annars gert á tólf árum. Haiidavinna. Þessi mynd er af einum af hinum svokölluðu „reformkjólum", sem þykja mjög þægilegir við vinnu. Þessi kjóll er ágætur morgunkjóll og við vinnu, ef hann er dálítið styttri. Ekki þarf held- ur að hafa tvo fellingabekkina neðan um hann. efni getur verið eftir vild. Snið fást í afgreiðslu Kvbl. og kosta 25 aura.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.