Kvennablaðið - 30.09.1907, Blaðsíða 2

Kvennablaðið - 30.09.1907, Blaðsíða 2
66 KVENNABLA-ÐIÐ. fundunum, að tær hafa verið þar um 80%, eða miklu fleiri en karlmennirnir. Þetta ætt- um vér vandlega að athuga. Oss væri það til mjög mikils heiðurs, ef vér fjölmentum svo í vetur til kosninganna, að vór yrðum hlutfallslega ekki færri en karlmennirnir. Á þann hátt sýndum vér bezt, að vér hefðum náð svo miklum þroska, að óhætt væri að veita oss bæði stjórnarfarsleg réttindi og önn- ur borgaraleg réttindi jafnt og karlmönnum, því vér kynnum að meta þau, og mundum nota oss þau. Enn þá er ekki hægt að segja, hvað marg- ir kvenkjósendur verða í vetur, af því engin kjörskrá er til eftir þessum nýju lögum. En nokkuð má fara nærri um það, þegar niðurjöfn- unarskráin verður lögð fram, þótt hún sé ekki einhlít, þar sem gjald er lagt ámarga, sem ekki hafa aldur til þess að hafa kosningarétt og kjör- gengi. Sömuleiðis eru giftar konur þar ó- taldar. En menn þeirra eru taldir, og má þá fara nærri um þær. Hver einasta kona ætti að hafa áhuga á þessu máli. Sómi vor liggur við, að vér rek- um af oss það ámæli, að vér séum alment áhugalausar um þessi mál. Sumar konur eru þeirrar skoðunar, að oss varði ekki um þau. Þau snerti ekki oss og heimilin. En það er mesta villa. Lögin snerta alla, bæði þau, sem löggjafarvaldið veitir, sem tekur yfir alla landsbúa, og eins hin sérstöku lög og ákvarð- anir, sem bæjarstjórnir, sveitastjórnir og sýslu- stjórnir ákveða. Þau ákveða gjöld, skyldur og réttindi innan síns umdæmis. Þau skifta sér af börnum vorum, uppeldi þeirra og kenslu. Þau setja ossreglur um daglega hátt- semi Yora. Hús vor og híbýli, götur vorar og stræti verða að vera eftir þeirra höfði. Yfir höfuð eiga þessir fulltrúar að standa á verði fyrir allri vorri daglegu velferð, og barna vorra. Skyldi oss þá ekki koma við, hverjir væru valdir til þess? En enginn er öðrum sjálfur. Og einmitt reynslan sýnir, að karlmennirnir hafa aldrei hingað til tekið eins mikið tillit til hagsmuna, hæfileika og óska vor kvennanna, eins og sjálfra sín. Og það er af þeirri einföldu á- stæðu, að sá veit bezt hvar skórinn kreppir, sem ber hann. Þeir hafa hvorki þekt hæfi- leika vora, né tilfinningar. Þeir hafa afmark- að oss verksvið, sem vér höfum ekki mátt fara út. fyrir, og sagt, að þetta eitt gætum vér unnið, til þessa eins hefðum vér hæfi- leika. En eins víst og það er, að karlmenn- irnir sjálfir hefðu eflaust getað jafnvel og vér þvegið gólf og búið til mat, eins víst er það, að vér hefðum getað leyst mörg hin svokölluðu 'störf þeirra jafnvel af hendi og þeir, ef vér hefðum haft þeirra æfingu. Yór erum íult svo nærgætnar og fuit svo fljótar að sjá hags- munahliðina á hlutunum. Yér erum betri mannþekkjarar, og fljótari að finna ráð i ýms- um kringumstæðum. Því munu bæði karlar og konur græða á samvinnunni og bæta hvort annað upp í mörgum greinum. Kvenfrelsi. Flestir vita hvað venjulega liggur í orð- inu kvenfrelsi: lögheimilað jafnrétti karla og kvenna. En í orðinu frelsi liggur önnur og dýpri merking en lögheimiluð róttindi. í því feist að vera fijáls andlega og líkamlega, og h'tið þýðir að hafa frelsi í orði en ekki á borði. Til lítils er að hrópa hátt á frelsið, en binda sjálfan sig jafnframt á klafa tildurs og tízku. Er það að vera frjáls, að geta ekki lyft svo hendi eða fæti, að ekki fljúgi í hugann: „Ætli það sé kvenlegt?" Er það að vera frjáls, að geta ekki hnýtt á sig slifsi eða klætt sig í fat, án þess að spyrja sjálfa sig, hvort það só í samræmi við tískuna ? Eg neita því fastlega. Enginn er frjáls, sem iætur gamlar venjur og hleypidóma stjórna hverju sínu fótmáli. En furða er það ekki, þó að við íslenzku stúlkurnar breytum svona. Um aðra tala eg ekki. Þekki að eins ísland og íslendinga. Frá því að við vorum svo ungar, fyrst, þegar við munum eftir okkur, hefir verið sagt við okkur: „Þú mátt ekki fljúgast á við strák- ana. Það er svo ókvenlegt!" „Ósköp var á þér að koma ríðandi berbakað heim í hlaðið. Þú áttir að fara af baki ofan við garðinn,

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.