Kvennablaðið - 30.09.1907, Blaðsíða 5

Kvennablaðið - 30.09.1907, Blaðsíða 5
KYENNABLADIÐ. 69 þessi tvö hundruð augu sáu þau, þá gullu við fagnaðarópin og lófaklöppin. Pví það er fagurt að sjá tvö ungmenni sýna ástarsæluna. Enginn gat haldið annað, en að þessir kossar þeirra væru sjónleikur. Engan grunaði, að senoran skalf af feimni og riddar- inn af óróleika. Enginn gat haldið annað, en að þetta alt saman ætti að vera í sýningunni. Loksins komust þau út fyrir baktjöldin. Hún strauk á sér ennið og sagði: »Eg skil ekki sjálfa mig«. »Svei! Skammistþér yðar fröken Marianna«, sagði hann og gretti sig. »Að kyssa Gústa Berling; svei, svei, en sú smán!« Maríanna gat ekki stilt sig um að hlægja. »Allir vita, að engin kona getur staðist Gústa Berling. Mér hefir ekki orðið meira á en öðrum konum«. Og svo komu þau sér í mesta bróðerni sam- an um, að láta sem ekkert væri, til þess að eng- an grunaði neitt. »Má eg Vera viss um, að þetta berist aldrei út, herra Gústi?« spurði hún, þegarþau ætluðu að ganga niður til áhorfendanna. »Pað megið þér, fröken Maríanna. Riddar- arnir geta þagað, þá ábyrgist eg«. Hún lét augnalokin síga ofan yfir augun og brosti einkennilega. »Og ef sannleikurinn kæmist upp, hvað ætli fólk héldi þá, herra Gústi?« »Pað mundi ekki halda neitt; það mundi vita að þetta væri ekkert að marka. Pað mundi ætla, að þér lifðuð að eins í því hlutverki, sem þér voruð að sýna og þetta væri áframliald«. »En livað mundi herra Gústi halda sjálfur?« spurði hún hljóðlega, án þess að líta upp. »Eg held að fröken Maríanna sé ástfangin í mér«, sagði hann gletnislega. »Það skuluð þér ekki halda«, sagði hún bros- andi. »Þá yrði eg að reka yður í gegn með spanska tigilknífnum mínum til þess að sýna, að herra Gústi hefði á röngu máli að standa«. »Dýrir eru kvennakossar«, sagði Gústi. »Kostar það lífið, að vera kystur af fröken Maríönnu?« Þá leit Marianna á hann með svo leiftrandi og hvössu augnaráði, að það gekk í gegnum Gústa Berling og sagði: »Eg vildi sjá hann Gústa Berling dauðan, dauðan!« Þessi orð tendruðu gamla þrá í blóði skáldsins. »0«, sagði hann, »að þessi orð væru meira en eintóm orð, ó, að þau væru örvar, sem kæmu hvínandi af boganum, eða rýtingur eða eitur, sem gætu eitt þessum vesala likama og veitt sálu minni frelsi«. Maríanna var aftur stilt og brosandi. »Barnaskapur«, svaraði hún, tók arm hans og gekk niður á milli gestanna. Þau voru um kveldið i hinum fögru spönsku búningum, og fengu aftur lófaklapp, þegar þau komu ofan til gestanna. Allir dáðust að þeim. Engan grunaði neitt. Dansinn hófst nú aftur, en Gústi flýði burtu frá danssalnum. (Framh.) ALFA ber með réttu nafnið »liið beztaa. Brúkið þessvegna ALF A MARGARINE Konur og' meyjar! Lítið á niinn skínandi fallega skófatnað Reynið minn lialdgóða skófatnað Kaupið minn ódýra skófatnað. Ávalt fyrirliggjandi ótal tegundir af Boxcalf-, Chevreaux-, Lackleðurs-, Hestaleðurs-, Brúnel-, Striga- og Flókaskóm og stígvélum, að ógleynidum mínuni gullfallegu, léttu og sterku SKÓHLÍFUM, verð frá kr. 1,75. Virðingarfyllst LÁRLS ». LIJÐFÍGSSOK. Ingólfsstræti. 3.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.