Kvennablaðið - 07.10.1907, Page 5
KVENNABLAÐIÐ.
77
sem hafa fengið háskólatitilinn Ph. D. eða aðra
sæmilega háskólatitla, pær geta orðið háskóla-
kennarar. Launin eru góð, í samanburði við
laun kvenna i Evrópu. — Ung stúlka í ýmsum
þessum embættum getur fengið 120 pd. sterling
í árslaun, og þau geta hækkað upp í 520 pund
sterling um árið. — Pótt þessi launaregla sýnist
há, þá hafa þó karlmenn miklu hærri laun,
því hafa konur í New-Yorlc heimtað jöfn laun
og karlmenn. Lagafrumvarpið um það, gekk
í gegn á fylkisþinginu, en féll við það, að
borgarstjórinn greiddi atkvæði á móti því.
Ameríka er það eina land, þar sem konur eru
ríkisfjárstjórar, bankastjórar, víxlakaupmenn,
verzlunar-agentar o. s. frv., og álit þeirra og
hæfileikar í þeim sökum liafa nú fengið fulla
viðurkenning. Pær eru og farnar að reka allar
atvinnugreinar, sem karlmenn hafa áður rekið
einir, auk þeirra atvinnugreina, sem þær hafa
áður einar unnið við, uema við sjóherinn og land-
lierinn. Skýrslan telur 185 konur, sem reka
járnsmíði, 45 vélfræðinga og kyndara, 43 öku-
stjóra, 31 fást við að brenna víðarkol, ofnkol
(coks) og kalk, og jafn-margar eru hjólastöðvarar,
10 farangurs burðarkonur (við járnbrautir og af
skipi), 8 gufukatlasmiðir, 7 eimvagnastjórar og
sporvagna) og 5 hafnsögumenn.
í þrjátíu og þremur af þessuui atvinnu-
greinum vinna yfir 5000 konurí liverri atvinnu-
grein. — Tölur þeirra kvenna, sem skýrslan
getur um, eiga að eins við þær konur, sem eru
sjálfstæðir atvinnurekendur.
I'lestar eru þær konur, sem hafa heimilis-
störf á hendi, þær eru yfir ein miljón að tölu.
Meiri hluti þeirra eru annað hvort innflytjend-
ur, svertingjar eða kynblendingar. Pví Ameríku-
konum þjrkir sér það ekki samboðið, að vinna
hjá öðrum, sem vinnukonur, enda bjóðast þeim
margar aðrar stöður, sem þeim eru geðfeldari.
Næstar vinnukonunum, að tölu, eru daglauna-
konur, sem vinna á bæjum upp til sveita. —
Pær eru '/* miljön. Pá koma saumakonurnar,
sem eru mesti fjöldi, og fá þær all-vel borgaða
vinnu sína.
Fjöldi kvenna veitir alveg heimilum for-
stöðu, þar sem maðurínn hefir strokið frá öllu
saman, eða er veikur eða dauður.
Yfir höfuð fjölgar atvinnugreinum kvenna
árlega, og álit manna á samvizkusemi og hæfl-
legleikum þeirra fer að sama skapi vaxandi.
New York Times gat þess nýlega, að þegar
mikilsverður háskóli gerði konu að formanni
í lítfærafræði, þá væri það svo ótvíræð viður-
kenning um samvizlcusemi og hæfileika kvenna,
að það hlyti að vekja viðurkenningu og undrun
almennings lika.
Peir litsölunienn og kaupendur
Kvennablaðsins, sem kynni að hafa fengið
ofsent i, 2—5 tbl. af því 1906, eru beðnir
að senda mér þau sem fyrst aftur.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir.
Það eru mikil veðhlaup
milli fjölda innlendra og útlendra reiðhjólaverzlana, sem öll liafa meira eða minna góð-
ar vörur að bjóða. Samkepnin er mikil og fólk er oft gint til að kaupa ódjTr, óþekt
reiðhjól, sem kaupandinn fær ónóga tryggingu fyrir. Hver sem vill kaupa reiðhjól,
ætti fyrst að biðja um verðskrá með myndum um hið danslca Multiplex-reiðhjól.
Verksmiðjan ábyrgist grindina og »Lejet« í 5 ár, og hringana í 1 ár. Þessi trygging
verður borguð samviskusamlega og áreiðanlega hverjum reiðhjóls-kaupanda.
Fjöldamörg meðmæli víðsvegar frá allri Danmörku eru til sýnis. Reiðhjóla-
sali lögregluliðsins í Danmörku.
— ókeypis verðskrá. —
Utsölumenn eru teknir þar sem þeir eru ekki áður.
MULTIPLEX IMPORT IvOIVII^OiNI
AKTS.
Gamrael Kongevej 1. C. Köbenhavn 13.
Ulgcfandi: Bríet —
Prentsm. Gutenberg.