Kvennablaðið - 30.11.1907, Page 7
KVENN A.BLAÐIÐ
87
settu verðlaun fyrir. Stúlkurnar áttu að
senda myndir af sér og eftir þeim átti að
dæma, Chicago vann. Þá tóku blöðin
málið að sér og hétu fegurstu Amerísku
stúlkunni háum verðlaunum. Fátækri
stúlku frá New-York að nafni Margarethe
Fry voru dæmd verðlaunin. Hún vinn-
ur í verksmiðju, en er nú orðin fræg um
allan heim, og blöðin syngja lof um lát-
leysi hennar og allar dygðir.
Ritstjóri eins stærsta blaðsins i Chicago
sendi nú flestum þjóðum Norðurálfunnar
tilboð um að taka þátt í þessari kepni.
Blaðið »Idun« í Stockhóhni hefir tekið
þetta mál að sér fyrir Svíþjóð, og lætur
Ijósmynda hverja stúlku ókeypis sem vill
láta það hafa mynd af sér í þessu skyni.
Nú í des. verður dæmt um allar innsendn-
ar myndír og ákveðið hver er fríðasta
sænska stúlkan.
Útgefandi: 1 íi-íot Bjnrnhéðinsdóttir
Prentsm. Gutenherg,