Kvennablaðið - 10.06.1910, Blaðsíða 4

Kvennablaðið - 10.06.1910, Blaðsíða 4
36 K VENN ABLAÐIÐ. Margoft hafa meyja-hendur minnisblómum prýtt þess krans. Undir brúnum ennþá brenna arfsins hnoss hjá sveini og snót. — Gleði er það, hjá þér að kenna þessi góðu œttarmót. Lyftu hátt í list og gengi landsins frœgu tignarmynd. Mundu það, að lýsa lengi list þin skal sem fyrirmynd. Láttu yfir iþrótt þina íslands tinda geislum slá; láttu þar í litum skína Ijómann þinni bernsku frá. Oskir beztu allrar þjóðar yfir hafið fylgja þér; vonir bjartar, vonir góðar, vor og œsku far þitt ber. Láttu í þinum listum brenna Ijóssins boð og fylgdu því, breiddu orðstír Islandskvenna yfir heimsins lönd á ný. 6. M. Félagsskapur kvenna. Það sem nú á timum einkennir og sýnir bezt hiun vaknandi áhuga kvenna fyrir ýmsum þjóðfélagsmálum eru hin mörgu félög sem þær liafa stofnað. Eins og gefur að skilja hafa öll þessi félög sitt sérstaka markmið, eða stefnuskrá. En stefnuskráin, eða tilgangur þessara félaga hér á landi er mjög einhæf; þau eru að mestu leyti góðgerðafélög í einhverri mynd. Eað er eins og ísl. konurnar eigi örðugt með að eygja neitt það verkefni, sem geti komið í veg fyrir bág- indin. Mennirnir sýnast fyrst vera verðir um- hyggju þeirra og aðstoðar, þegar þeir eru orðnir ósjáifbjarga. Og þó er það ólikt meira verkefni ogánægju- legra að f\7rirbyggja bágindin, en að taka þau uþþ á sína arma, þegar þau eru orðin svo djúþ að úr þeim getur varla orðið bætt. Oiíkt meira hvetjandi, og gefur meiri vonir um góðan ár- angur, að byrja á þvi að gera menn sjálfbjarga og sjálfstæða. til þess að sem sjaldnast þurfi að koma til að þeir verði annara handbendi. Þetta ættu kvenfélögin að hafa meira fyrir augum, en þau virðast alment hafa haft hingað tíl. Pau ættu að verja fremur kröftum sínum til að haida mönnum á upþréttum fótum, en einungis að binda sig við þá, sem einhverra hluta vegna ekki geta staðið. Kvenréttindafélögin eru einu kvenfélögin, sem í stefnuskrá sinni hafa eingöngu þetta fyrir augum. Pau vilja gera konurnar sterkar, áhuga- miklar og sjálfstæðar. Pau vilja kenna þeim að sjá orsakirnar til þess, að þeim veitir enn þá svo örðugt að standa á eigin fótum. Pær séu að kenna áhugaleysi þeirra, þekkingarleysi og afskiftaleysi um almenn mál og almenna vel- ferð. Meðan konurnar haíi ekkert að segja um hin stærri mái þjóðfélagsins. meðan þær hafi ekkert atkvæði um landsstjórnina eða Qárveitingarnar til almennra þarfa, i stuttu máli: meðan þær hafi ekkert atkvæði um iöggjöf landsins, þáverði þær jafnan iitilsvirtar, ósjálfsstæðar ogþekking- arlausar. Atkvæði þeirra í stjórnmálunum: póli- tíski kosningarrétturinn og kjörgengið opni þeim alla vegi. Með honum einum fái þær sína fullkomnu sérskóla, með honum fái þær aðgang að öllum embættum, iðnaðargreinum og atvinnu ; þá fyrst geti þær hugsað til að keppa við karla, bæði i þekkingu og atvinnu: því þá hafi þær sjáifar lykilinn að völdunum í hönd- um, með því að kjósa þá einafulltrúa á þingið, til að fjalla um fjárhag landsins og önnur á- hugamál, sem beri hagsmuni kvenna fyrír brjósti I og unni þeim fullkomins jafnréttis við karl- mennina. Allar þær umbótakröfur á högum kvenna, sem ekki setja þólitísku réttindin efst á stefnuskrá sína, og framfylgjaþeirri kröfu, fyrst af öilu, að konur fái þau full og óskert, eru að eins kák eitt, bót á gamalt fat, sem aldrei getur haldið nema ör- stutta stund og eru meira til að tefja fyrir, heldur en nemi þvi gagni, sem þær gera. Pví þótt eitt þing, eða meiri hluti eins stjórnarflokks sé málum kvenna velviljaður og sýni það með ýmsum frjáisiyndum réttarbótum, þá eru stjórn- málamennirnir svo valtir í sessi, að hinir geta næsta dag tekið við taumunum sem eru þvert á móti. Því verða konurnar sjálfar að taka þátt löggjöfinni. Pær verða að hafa sín eigin atkvæði þar, til að tryggja sér að hagsmuna þeirra verði þar jafnan gætt, hvernig sem stjórnmála- stefnur breytast að öðru leyti. Eins og hver stétt mannaþykist þurfa fulltrúa á Alþingi tii að gæta hagsmuna sinna, svo þurfa konurnar það, og það miklu fremur. Meðan vér erum í því ómyndugleika ástandi, sem vér erum enn í, að aðrir ráði fyrir oss lögum og lofum, og hlægi að eins að oss ef vér erum óánægðar með ráðs- mensku þeirra, þá er oss engra verulegra fram- fara auðið. Áhuginn vaknar ekki meðan vér höfum hvorki völd né ábyrgð. Það er eins og

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.