Kvennablaðið - 10.06.1910, Page 7
KVENNABLAÐIÐ.
39
Barnaskólinn.
neir sem vilja fá ókeypis kenslu fyrir börn yngri en 10 ára í
barnaskóla Reykjavíkur næsta skólaár, sendi umsóknir um það til
liorgarstjóra fyrir 15. ágúst næstkomandi.
Skólanefndin.
unum gætilega upp, og þuklaði á vínflöskuröð-
unum.
Hún var inni í búri og eldhúsi, tók á öllu
og aðgætti alt. Hún rétti út hendina og kvaddi
alt á heimili sínu.
Seinast gekk hún inn í íbúðarherbergin. I
matsalnum þreifaði hún um hengifjölina í stóra
matborðinu, og sagði:
»Margir hafa étið sig metta við þetta borð«.
Hún gekk í gegnuni öll herbergin. Hún
fann að hinir löngu og breiðu legubekkir voru
þar sem þeir áttu að vera. Hún studdi hönd-
unum á köldu marmaraborðin, sem studdust
við gjdta dreka og báru stóra spegla, í umgerð-
um af dansandi gj'ðjum.
wÚetta er ríkisheimili«, sagði hún. Agætis-
maður var hann, sem gaf mér alt þetta til
umráðaa.
I salnum, þar sem dansinn var nýlega af-
staðinn, stóðu stólarnir i stífum röðum út við
veggina.
Hún gekk að hljóðfærinu, og sló hægt einn
tón. »Ekki vantaði heidur gleðina og skemtan-
irnar hérna á meðau eg réði«, sagði hún.
Svo gekk hún inn í gestaherbergið innar
af salnum. Par var kolamyrlcur. Majórsfrúin
þreifaði fyrir sér, og strauk einmitt hendinni
um vangann á vinnukonunni, sem allur var
votur af tárum.
»Grætur þú?« spurði liún, því hún fann að
hendin varð vot.
Þá brast hin unga stúlka í grát og sagði:
»Ó, frú mín! ó! frú mín, þeir eyðileggja þetta
alt. Pví fer frúin min frá okkur og lætur Herr-
ana herja heimili hennar?« (Frh.).
Kaupendur Kvennablaðsins eru viö-
samlega beðnir að afsaka drátt þann, sem
verið hefir á útkomu síðustu tölublaðanna,
sem komið hefir af j'msu annríki og erfið-
um ástæðum útgefanda.
Útgef.
Fréttir úr I >oi"” iimi.
^arzlunin „<Jjrcióa6li/íu
Lækjargötu ÍO 15-
er að sögn þeirra, sem þar hafa
komið, orðin ein með allra f jöl-
breyttustu n ý 1 e n d u-
v ö r u b i r g’ ð u ni i borg-
inni. Af vörubirgðum og verði
þar, fer einnig mjög mikið orð.
Xaupenður Kvennablaðsins,
sem skifta um heimili eru beðnir að láta
útgefanda vita það hið fyrsta.
Xanpenður Xveunablaðsins,
sem skulda fyrir blaðið í fleiri ár, eru vin-
samlega beðnir að gera nú reikningsskil í
sumar.