Kvennablaðið - 28.11.1910, Side 3
KVENNABLAÐIÐ
83
konur verja eða mæla með nokkrum þeim
aðgerðum, sem ekki þoldu dagsbirtuna.
í Idaho höfum vér konur í héraða-
og ríkisembættum. Umsjónarmaður al-
þýðufræðslumálanna í ríkinu heíir um
langan tíma verið kona. Nálega í hverri
borg eru konur í ýmsum embættum. Og
nálega í hverju fylki er fylkisumsjónar-
maðurinn kona, og gjaldkerinn kona, og
þær hafa ætíð leyst öll sín opinberu störf
ágætlega af hendi. Og eftir að allar
sannanir bæði með og móti tiltögunum
um kosningarrétt kvenna eru vegnar sam-
an, þá finst mér að hver réttsýnn maður
ætti að vera fús að veita konu sinni, móður
og sýstur, sem hann ber mikið traust til i
sérhverju öðru máli, sem snertir hans við-
kvæmustu mál, sömu réttindi til sam-
þykkis eða ósamþykkis á mönnum og lög-
um, og liann hefir sjálfur. Hvort sem lög-
in reynast góð eða ill, þá ganga þau jafnt
yfir konur og karla, og þær líða jafnt við
ókosti þeirra og karlar. Ef sérhverri
spurningu um rétt eða rangt í lögnm vor-
um, væri unt að skera úr með atkvæðum
meiri hluta kvenna vorra, þá væri hagsæld
og öryggi þjóðfélags vors og stofnana þess
borgið. Eg er afdráttarlaust meðmæltur
kosningarrétti kvenna.
James H. Brody
landstjóri í Idaho Baise 17. okt. 1910.
Eftirfylgjandi bréf var sent af landstjóran-
um i Colorado:
Til
borgarafundar kosningarréttarkven-
flokksins í New York.
Þótt að sú skoðun, sem er með al-
mennum kosningarrétti kvenna sé stöðugt
að ryðja sér meira og meira til rúms, og
sé nú orðin miklu almennari, að eg hygg,
en síðast þegar eg var í New York, þá
geri eg ráð fyrir, að þér munuð berjast á
móti þeirri úreltu kenningu, að konur
þurfi ekki kosningarréttar við. Þessari á-
stæðu, sem notuð er við hvert tækifæri.
Má eg svara bréflega þessari mótbáru, sem
kveðju til fundar yðar.
Ef meiri hluli manna í einhverju
landi eða í Bandaríkjunum léti sig engu
skifta um kosningarétt sinn, mundi þá
mótstöðumenn kosningarréttar kvennanna
vera ánægðir með að vera sviftir honum?
Það er satt, að menn hafa skopast svo
mikið að þeim konum, sem barist hafa
fyrír almennum kosningarrétti kvenna, að
það hefir haft áhrif á margar konur. Þó
hefir þetta mál tekið undursamlegum fram-
förum á síðustu 60 árum. Spyrjið kon-
urnar í Colorado hvort þær þarfnist ekki
kosningarréttarins. Leggið þessa spurn-
ingu fyrir sérhverja þá konu þar, sem lief-
ir reynt kosningarréttinn, og engin ein-
asta kona þar mun greiða atkvæði á
móti kosningarréttinum. í Colorado liafa
konur haft kosningarrétt í 16 ár, og
hefir það reynst þjóðinni mjög bless-
unarríkt í alla staði.
John F. Shafroih
landstjóri í Colorado, Denver, 28. okt. 1910.
Landstjórinn i Wyoming ritar:
Til
Kosningarréttarflokks kvennanna í
New York.
Almennur kosningarréttur lcvenna hef-
ir verið við lýði í ríki þessu, (og meðan
það var nýlenda) í meir en 40 ár, og
reynst mjög happasæll í öllu tilliti.
Konur greiða liér jafnfrjálslega og
skynsamlega atkvæði sin og karlar, og
virðast hafa meðfædda svo góða dóm-
greind, sem gerir þær oft færari um að
komast að réttari ályktun viðkomandi
ýmsum stjórnmálum en karlar.
Löggjafarvald ríkis vors hefir við þrjú
mismunandi tækifæri samþykt ályktanir,
sem lýsa þvi yfir, að kosningarréttur
kvenna vorra hafi haft mjög heillaríkar
afleiðingar, og mælt með því að hann
verði veittur öllum konum í Bandaríkj-
unum.
Mér virðist að ekkert það ríki, sem
þekkir sögu kosningarréttarins í Wyoming