Kvennablaðið - 15.06.1911, Side 6

Kvennablaðið - 15.06.1911, Side 6
38 KVENNABLA.ÐIÐ. getum framleitt, sem þolir samkepni stór- þjóðanna, svo mér finst við ekki mega sleppa þvi, að hagnýta okkur það, sem við stöndum betur að vígi með — eins og með þetta — og því er sjálfsagt að róa að því öllum árum að koma þvi á erlendan mark- að, eða að minsta kosti framleiða það, sem landið þarfnast, í stað þess að flytjá inn lélegri vöru, dýrum dómum. Það sem sannfærir mig um yfirburði ís- lenzka kjötseyðisins er það, að það hefir staðist próf þeirra, sem bezt vit hafa á að dæma í þeim efnum, en það eru þær húsmæður og matreiðslukonur, sem notað hafa hvorttveggja, sem undantekningar- laust hafa mælt með þvi íslenzka. Eg er þvi sannfærð um, að sú húsmóðir, sem einu sinni hefir reynt það, kaupi það frem- ur hinu, ef kostur er á, eða sú hefir reynzl- an verið með þær konur, sem hafa keypt mitt kjötseyði, þær hafa viljað fá það aftur og aftur. Það sem ég hefi selt, hefi ég selt í Kaup- mannahöfn og ég hefi ástæðu til að gera mér von um góðan markað fyrir það þar. Ef ætti að framleiða seyðið í stórum stýl, þyrfti auðvitað jafnframt að útvega markað fyrir kæfu — en ég skil ekki í, að það mætti ekki takast, það hefir svo lítið verið revnt. Tilgangur minn með að láta þetta litla sýnishorn á sýninguna er sá, að það sé borið saman við »Libigs«-kjötseyði af þar til kjörinni nefnd, svo ganga megi úr skugga um, hvort betra sé. Og tilgangur minn með þessari grein er að láta almenning njóta þessarar litlu reynzlu .minnar, og gefa þessa bendingu, ef þær gætu komið einhverjum að notum. Ég veit að þetta litla sýnishorn er svo ofur mjór visir, já, að eins frækorn, sem háð er þeim jarðvegi, sem það fellur í, hvort það geti borið ávöxt, eða visnað út, eins og svo sorglega margt annað, sem komið gæti að notum. En guð gefi því þann ávöxt sem ég af heilum hug óska. Lovise Jensen. Talssími aOÓ Pösthólí lí. 14. Arni Eiríksson ^A.ast«i’sti*íjeti O Reyjavíli. Vefnadaryörur. fll Hreinlíetisyörur. Mikið úrval af öllu pvi, er hverl heimili þarfnast af þeim vörum. f Vandaðar vörur. — Odýrar vöurr. Kitthvaö til íyrir alla. Cjri'eiö aígreiösla. Vill eiga viðs/iifli við alla. Samsæti 17. júní verða haldin á Hótel Reykjavík, 1 Inðaðarmannahúsinu og Good-Templarahúsinu kl. 9. e. h. — Aðgöngumiðar kosta 1 kr. 75 a. og last meðan húsrúm leyfir í Hótel Reykjavík, hústjórnarskólanum fyrir iðnaðarmannahúsið og á Hólel ísland fyrir Godd-Templarahúsið. Rorðhald og dans á eftir. Skrúðgaugan 17. jiiní hefst frá Austurstræti kl. 1V* stundvíslega.

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.