Kvennablaðið - 31.08.1911, Side 4

Kvennablaðið - 31.08.1911, Side 4
60 KVENNABLAÐIÐ. sagði Efrairu, og settist við borðið áður en móðir hans gat svarað. »Hvað er þetta?« sagði hann, þegar hann sá læstan bréfmiða á diskröndinni. — »Frá stúlku?« — og hann hló framan í móður sina. Pau geymdu engin leyndarmál hvert fyrir öðru. Svo reif hann uþþ umslagið og las: »Skólapiltur Efraim Lundström er vinsam- lega boðinn til miðdagsverðar 5. maí 1911, kl. 5 síðdegis. Antonia og Leonard Storm. Þannig var presturinn vanur að orða heim- boð sín. Efraim hló og veifaði spjaldinu. »Mamma, veiztu hvað það er? Gettu«. Mamma gat ekki getið upp á það.—»Borð- aðu súpuna áður en hún verður köld«, sagði hún. »Eg vil ekki hafa neina súpu«, sagði Efraim og skaut stólnum aftur á bak, en rak boðsbréfið beint framan að móður sinni. »Nú, nú«, sagði hún, »líttu á, þarna er eitt- hvað skrifað á bakhliðinni«, hún snéri spjald- inu við. Á bakhliðinni stóð ritað: »Efraim er vinsamlegast beðinn að taka með sér eitthvað af teikningum sínum — af því það væri gaman að fá einusinni að sjá eitthvað af þeim«. Efraim blistraði — skotin! »Eg fer þangað«, sagði hann. Einni mínútu fyrir 5 stóð Efraim með teikningaveskið sitt undir hendinni við húsdyr Storms, og hringdi dyrabjöllunni. Hann hafði beðið eftir seinustu mínútunni, því hann vildi ekki vera með þeim fyrstu. Að hitta prestinn gat verið fullóþægilegt samt. Storm kom sjálfur fram til að ljúka upp. Hann gat ekki dulið furðusvipinn á sér, því hann hatði talið sjálfum sér trú um að Efraim myndi ekki koma. En svo bauð hann Efraim vingjarnlega velkominn, og Efraim hneigði sig og beygði, og hengdi húfuna sína upp á snaga i forstofunni. Veskið lét liann síga hljóðlega ofan á stól. Nú iðraðist Efraim eftir að hafa þegið boð- ið. Petta var skárri klemman — líklega var þó einhver inni til að tala við. — Og svo gekk hann inn i salinn, gegn um stóru tvíbreiðu dyrnar. En þar var ekki svo mikið sem köttur Efraim lá við að tala ljótt —hann var sá fyrsti. En Storm, sem nú kom ekki framar fram sem kennari, bauð honum sæti, og hvarf svo skyndi- lega inn i eitthvert hinna herbergjanna. Efr- aim leit í kring um sig — fínir gólfdúkar, mjúk- ir stólar, dyratjöld og borð, sem á voru bækur í skrautbandi. Á veggjunum voru málverk með fangamarki alþektra listamanna. — Efraim var djúpt sokkinn ofan í að skoða málverk af sjó, þar sem sólin var að ganga undir, þegar hann fann að tvö augu störðu á hann. Augunum fylgdi lítíð, laglegt, hálf þrjósku- legt og glettulegt stúlkuandlit, umkringt af hrafnsvörtum lokkum, heldur laglegur og mjór háls, og grannvaxinn líkami, í hálfsiðum hvítum kjól, með kniplingum á. Efraim snéri sér við og hneigði sig. »Góðan daginn«, sagði Ludovica, og gekk þrjú spor áfram yfir hinn rósrauða gólfdúk. »Eruð það þér, sem lieitið Efraim Lund- ström? Pað er ljótt nafn, sem þér berið«. Hún hallaði undir flatt og virti hinn liá- vaxna ungling fyrir sér, sem ekki var vitund feiminn, heldur leit glaðlega og djarflega út. »Já, eg er Ludovica — hérna sjáiðþér þernu yðar« — bætti hún við og hneigði sig svo gal- gopalega og krosslagði hendurnar á brjóstinu. Petta var þeirra fyrsta kynning. — Efraim sagði: »Koma ekki fleiri hingað? Klukkan er orðin 5«. »Jú«, sagði Ludovica. »Hann kemur lika liann Gustaf Krook, þessi með síða hárið, Sveinn Bengtson, sem leikur guðdómlega á pi- anó, Oscar Norrén, sem syngur fyrsta tenor og skrifar í »Félagann« og svo hann Iíalli málari. Pér eruð víst lika listamaður?« sagði liún. í sama bili heyrðist mikið hark frammi í anddyrinu og inn ruddust 4 stórir skóladrengir hneigjandi sig djúpt í dyrunum. Ludovica, sem var þeim öllum kunnug, tók 1 hönd þeirra allra og »koketteraði« gletnislega við þá alla, hvern og einn út af fyrir sig, svo engum skjddi finnast hann vera hafður útundan. Efraim sagði í hjarta sínu — »þetta er sæt stelpa«. Á eftir drengjun- um sást nú séra Storm,og frú Antíonía sveif nú inn um dyrnar í fínum og alt of unglegum klæðum. Pegar hún hafði heilsað öllum fjórum drengjunum, gekk hún til Efraims, og rétti hon- um hendina. »Velkominn hingað. Maðurinn minn hefir oft minnst á yður við mig«. »Já, er það satt að þér brúkið altaf háls- bindin hans pabba«, tók Ludovica frammí, sem gerðiþáalla,seminni vóru.mjögvandræðalega. En þá skellihló séra Storm — og Efraim leit upp blóðrauða, skömrnustulega andlitinu, þakklátlega framan í prestinn. »Þetta skal eg launa þér Ludovica«, hugsaði liann, og fanst að hún mundi sjá hvað hann hugsaði. Nú var dyrunum að matsalnum lokið upp og menn settust til borðs. Efraim fékk Ludo- vicu til vinstri hliðar, og Kalla málara til hægri. Pjónninn var dökkhærður laglegur piltur,

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.