Kvennablaðið - 31.08.1911, Blaðsíða 6
62
KVENNABLAÐIÐ
eftir, baAi dálitið rjóð og feimuleg, þá var kom-
inn heimferðatimi.
Storm tók i báðar hendur Efraims og sagði:
»Velkominn aftur«.
Og frú Antonía klappaði honum á kinnina.
En þegar Efraim kom út á götuna og hafði
skilið við félaga sina, pá fór hann að hlaupa.
Og hann hljóp fram hjá húsunum út allar göt-
urnar og út á sveitaveginn, og þegar hann var
kominn langt pangað út, pá fór hann að stökkva
og dansa og svo komu honum tár í augu, liann
vissi alls ekki hvers vegna.
Pað var eins og brjóst hans ætlaði að
springa. En svo varð hann alt í einu alvar-
legur, hægur og stiltur.
Og hann gekk hægt heim með hnarreist
höfuð — nýjar ákvarðanir, og nýjar framtíðar-
fyrirætlanir brutust um í höfðinu á honum, og
og upp úr þeim öllum gægðist svolítið bros-
andi, svartlokkað telpuhöfuð, sem sagði: »En
hvað þú ert góður«.
Ja, )'iann skyldi að minsta kosti verða pað.
Utan úr lieimi.
ingarréttarfélagsins »í mesta flýti, en með
miklum fögnuði« frá Mihvaukee í sænska
kvenréttindablaðið Dagný 3. ágúst sl. —
Peim fer að fjölga ríkjunum í Ameríku,
sem veita konum pólitísk réttindi. Og það
er eftirtektarvert að það sýnist einmitt vera
barátta systra þeirra í Englandi, sem hefir
komið málinu á nýjan rekspöl í Ameríku,
eins og hún hefir gefið því byr undir báða
vængi þar heima, og víðar liér i Norður-
álfunnni. Það fer fleirum vitrum mönnum
sem síra Sigurði Stefánssyni frá Vígur á
Alþingi hér heima i vetur, þegar hann sagði:
»að þótt hann héldi að alt hefði staðist
þóttt blessað kvenfólkið hefði enn beðið
nokkur ár eftir þessum réttindum, þá væri
það nú orðið svo hávært að heimta þau,
að engin ástæða eða réttur væri til að fresta
því lengur.— »Knýið á, og mun fyrir yður
upplokið verða!«
Nýjar sigurfregnir.
Nýtt frumvarp um pólitískan kosninga-
rétt handa konum hefir verið samþykt nú
i sumar bæði í efri og neðri málstofunni í
ríkinu Wisconsin í Bandaríkjunum, og feng-
ið meðmæli ríkisstjórans.
Kalforniuríkið hefir einnig veitt kon-
um politiskan kosningarrétt með stjórnar-
skrárbreytingu, sem nú á að leggjast undir
almenna atkvæðagreiðslu 10. sept. n. k.
konurnar eru mjög glaðar, og gera alt sem
í þeirra valdi stendur til að frumvarpið
verði samþykt.
»Nú er kosningarréttarfrv. í Wisconsin lagt
undir alþjóða atkvæðagreiðslu. Konunrar
í Wisconsin geta liklega fengið að kjósa
1913. Það undrunarverða atriði heíir
borið við, að liið fyrsta ríki, af gömlu rikj-
unum liefir skotið kosningarréttarmálinu
undir atkvæði kjósendanna. Frumvarp vort
gekk í gegnum neðri deild með nær því
þremur atkvæðum gegn einu, og í gegnum
efri deild (senatið) með átta atkvœðum
gegn einu. Bráðum verður Mihvaukee að-
albardagastaðurinn. Vortheróp er: »Wiscon-
sín það sjötta«, Þannig skrifar ritari kosn-
Edinborgar bezta
ráð, bíðið eftir
útsölunni
mestu.
\