Kvennablaðið - 19.03.1913, Blaðsíða 3

Kvennablaðið - 19.03.1913, Blaðsíða 3
KVENNABLAÐIÐ 19 konur héldu stóra innifundi, þær ættu að | sýna alvöru sína með þvi að halda stórar skrúðgöngur í opinberu skemtigörðunum og hvar sem væri, eins og karlmennirnir hefðu gert. Ef þær gerðu það, þá yrði kröfum þeirra sint. — Þessi eggjan var þegar í stað tekin til greina. Feykistór skrúðganga var haíin um helztu götur Lundúnaborgar til Hyde Park 17. júní 1908. (Framh.). Sannleikurinn um kosningarréttinn í Kina. Eftir Carrie Chapman Catt. I. Margt hefir mér dottiö í hug um framfarir okkar kvennanna og frelsi frá gömlum præl- dómshlekkjum, sem bundið hat'a okkur all- staðar í heiminum. En aldrei liefi eg i mín- um djörfustu draumum, málað fyrir mér kvöld- veizlu i Peking, veitta þar af kvenréttindafélagi, handa fulltrúum Alþjóða kvenréttinda sam- bandsfélagsins. Og pó kom einmitt petta lyrir okkur. Hún hófst með fundi, par sem vóru yfir púsund af eftirtektasömum og samhygðarfullum áheyrendum, sem komu pangað einungis til að hlusta á okkur. En viðburðirnir og sagan, sem hrundu þessum fundi af stað, eru lika eflaust einir af einkennilegustu og raunalegustu við- burðum veraldarsögunnar. Undirbúuingnr stjórnarbyitingarinnar. Fyrir hér um bil 15 árum stofnaði hinn al- kunni dr. Sun Yat Sen, sem allir blaðalesendur þekkja, leynilegt félag í Tokyo, sem kallaðist »Tung Ming Hui«. Tilgangur pess var að reka Manchueana frá völdum, sem í 500 ár höfðu ríkt yfir Kinaveldi, ogsetja aðra stjórn til valda, sem væri eftir kröfum nútimans. Eitt af grund- vallaratriðum pessarar nýju stefnuskrár var það, að karlar og konur skyldu fá jafnrétti, ekki einungis sem meðlimir i félögunum, heldur einnig í þeirri stjórn, sem ætti að mynda þegar takmarkinu væri náð og pví var skorað á kon- ur að ganga i félögin sem starfandi meðlimir. Kínverskir stúdentar i Tokyo voru fyrstu læri- sveinar pessarar nýju kenningar, og engir voru einlægari endurbótarvinir, en kínversku kven- stúdentarnir. Höfuðstaður Japans varð nú ekki að eins byrjunarstöð og agitationsstöð pessa félagsskapar, bæði fyrir meðlimina og starfend- urna, heldur lítur út fyrir, að paðan hafi allar aðaitilraunir og fyrirskipanir félagsins verið leiddar. Hér urðu mörg hundruð ungar kin- verskar konur fyrir áhrifum pessarar kenning- ar og þeirra, sem hana fluttu. Konnrnar verða starfandi verkamenu. Pessi stjórnarbyltingarhreyfing var yfir höf- uð hreyfing frá stúdentunum, og í öllum áskor- unnm frá foringjunum var tekið fram, að í hinu nýja Kinaveldi, sem ætti að koma, ættu kon- urnar að vera jafnfrjálsar karlmönnunum. Kon- urnar, sem voru hrifnar af sömu föðurlandsást og karlmennirnir, voru settartil starfa, í þeirri von, að kyn peirra, sem svo lengi hafði mátt pola ánauð og réttleysi, mundi nú fá uppreist. Pær urðu ekki dauðir eða þegjandi meðlimir. Pær urðu áhugasamir og ötulir fortölumenn þessarar nýju stefnu, pær söfnuðu fé, juku með- limatöluna, sfofnuðu ný félög og stráðu út flug- ritum. Pær tóku á sig alla ábyrgð og allar skyldur, pær blésu sarna lifandi áhuganum í brjóst nýju meðlimanna og neituðu engum störf- um eða hættum, vegna kynferðisins. Engir af spámönnum hins nýja Kínaveldis urðu mælsk- ari, en sumar pessara kvenna, né rneira sann- færandi í ræðum sinum og engir voru betri að leiða slík félög og fyrirtæki. Margir inistn höfuðin. Menn verða vel að muna eftir pví, að alt petta starf varð að framkvæmast með hinni mestu leynd, pví höfuðin féllu undan sverði Manchustjórnarinnar við hvern minsta grun. »Tung Ming Hui« varð fljótt uppvist og tilgang- ur pess kunnur. Fé var lagt til höfuðs dr. Sun, ásamt ýmsum öðrum helztu foringjum, sem pess vegna urðu að fara af landi burt og búa er- lendis. En þessar liættur komu ekki konunum fremur til að hætta við störf sín, en karlmönn- unum. Og þegar dró aö uppreistarbyrjuninni og undirbúningurinn stóð sem hæst, þá urðu fjöldamargar konur flæktar við það, að hafa laumað inn i landið vopnum og skotfærum frá Japan. Pegar einhverjar orðsendingar voru of hættulegar til pess að mætti trúa símanum eða póstinum fyrir þeim, pá urðu konurnar að vera sendiboðar og þannig ferðuðust pær um alt Kínaveldi í pessum erindum. Pær óltuðust engar hættur og ferðuðust með ferðaskrinur sínar og körfur, fullar af skammbyssum og sprengikúlum, óhræddar frá einum stað til ann- ars. Pær lærðu líka hvernig skyldi búa til sprengikúlur og hjálpuðu til við pað. En nú voru #Manchuarnir« orðnir árvakrir og leynilög- reglan tók fasta nokkra af foringjunum og lét drepa þá. Pað voru 72 »píslarvottar« af þessu tægi og par á meðal allmargar konur.

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.