Kvennablaðið - 30.11.1915, Qupperneq 1

Kvennablaðið - 30.11.1915, Qupperneq 1
KvennahlaftiA koit- ar 1 kr. 50 au. inn- anlands, erlendis S kr. [66 cent vestan- hafe) */» v«»T(5ging borgist fyrfram, en */» fyrir 16. júli. CTppgöffn ikrifleg bundin viö kra- m6t, ógild nema komin sé til út- geí. fyrir 1. okt 3g kaupandi hati borgað að fullu. 21. ár. Reykjavík, 30. nóvember 1915. M II. Framíiðarmál vor. Eftir því sem nær dregur kosningun- um, koma spurningar fram um það, fyrir hvað konur muni nú aðallega beita sér. Hvort þær hafi hugsað sér nokkra sér- staka stefnuskrá, sem þær ætli sér að fylgja í allri sinni pólitík, eða hvort þær ætli að láta sér nægja með að fylgja þeim vegi, sem karlmennirnir afmarka þeim, og ekkert fara út fyrir hann. Færi svo, að íslenzkar konur skildu sína pólitisku köllun á þann hátt, að þær ættu einungis að fylgja karlmönnunum að málum, án þess að bæta nokkru við frá sjálfum sér, þá verðum vér að álíta, að gagnið af hluttöku þeirra i almennum málum yrði ekki sérlega víðtækt. Með því móti bættu þær engu nýju inn í stjórnmálin, hvorki til að bæta sinn eig- inn hag eða barna sinna. Og það hafa þó konur margra annara landa gert, jafn- vel þótt þær hafi ekki tekið neinn bein- an þátt í pólitíkinni. Hér á Norðurlöndum hafa flest þau lög, sem gefm hafa verið úl á síðari ár- um, og snert hafa aðallega konur eða börn, átt rót sína og framkomu að rekja til kvenna, beinlínis eða óbeinlínis. Fyrir utan frumvörpin um kosningarrétt kvenna og kjörgengi, bæði stjórnskipulegan og í sveita- og héraðamálum, og lög um rétt kvenna til allrar æðri mentunar og em- bætta (sem þær hafa enn þá hvergi fengið fullan að lögum, nema hér á landi), þá hafa ótal mörg góð og nytsöm lög komið fram að tilblutun kvennanna. Má þar til nefna ekkjulögin dönsku, ýms verka- kvennalög, ýms tryggingarlög, t. d. slysa- tryggingar, .mæðratryggingar, ýmsa kalla hjónabands- og barnalöggjafarinnar, fjár- veitingar til hússtjórnarskóla o. s. frv. Þær hafa mikið unnið að því að fá löggjafarvöldin til að koma á fót sér- skólum í iðnaði handa konum, fengið ýms ákvæði um aukið heilbrigðiseftir- lit o. fl. o. fl. Alt, sem miðað hefir að því að auka þekkingu kvenna bæði í verklegum og bóklegum efnum, hefir oftast átt upptök sín að rekja til kvenn- anna sjálfra. Vér heyrum að ýmsir segja, að kon- urnar muni beita sér fyrir landsspítala- málið. Jafnvel þótt svo yrði, sem vér teljum sjálfsagt, þá gæti það ekki heitið neitt sérstætt kvennamál. Engum mun koma til hugar, að konur einar komi spitala upp fyrir alt landið. Til þess hafa þær ekkert fjármagn, enda engin ástæða til að vonast eftir sliku. Því þótt frum- kvæði samskotanna sé aðallega frá konum, þá var sú hluttaka aðallega ætluð til þess að koma hreyfingu á málið. Það er fyrst við kosningarnar, með því að fá þing- mannaefnin til að taka málið að sér, sem konur geta vænt þess að hafa komið því nokkuð verulega af stað. Það er líka sú leið, sem bæði það mál og öll önnur almenn þjóðþrifamál eiga að ganga. En það er líka á þenna sama hátt, sem konur verða að vinna framvegis, að minsta kosti fyrst um sinn. Og það ættu þær að geta með því að bæði utan og innan pólitísku flokkanna að vinna að því, að fá þá til að taka þau mál upp á sínar stefnuskrár, sem þær hafa mestan áhuga fyrir. En til þess að fá áhuga fyrir nokkru rnáli, verða menn að þekkja það og það ástand, sem baita skal. Þvi er það fyrsta skilyrðið, að vér reynum

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.