Kvennablaðið - 30.11.1915, Qupperneq 4

Kvennablaðið - 30.11.1915, Qupperneq 4
«4 KVENNABLAÐIÐ óháðari en konur viða annarstaðar i Norðurálfu, hefir einnig þetta mál verið ofarlef>a á dagskrá hjá öllum kvenrétt- indafélögum. Samkvæmt kröfum sinum um fult jafnrétti, bæði pólitiskt og borg- aralegt, við karlmennina, hafa þær einnig verið fúsar til að taka á sig þær skyldur og ábyrgð, sem slikum léttindum f^'lgja. Og því hafa þær bæði ritað og rætt um á hvaða hátt þær bezt gætu gert ælt- jörðu sinni gagn, og hvernig þeirra þegn- skylduvinnu ætti að vera háttað. Auðvitað er sjúkrahjúkrunin nauðsyn- leg og sjálfsögð að vera samfara land- vörnum og stríðum. Enda hafa rikin nú silt fasta kvenna hjálparlið í þeirri grein, þar sem »Iiauða kross«-félagið er, sem teija má sem l'ast landvarnarlið, bæði á friðar- og ófriðartímum. En konurnar hafa brátt komist á þa skoðun, að ekki þyrfti á aðstoð hverrar einustu konu að halda til þeirra starfa. En einmitt þau störf, sem nauðsynlegt væri að hver kona gæti leyst vel af hendi, ættu að vera gerð að þegnskylduvinnu kvenna. í Svíþjóð og Noregi hafa nú á nokkr- um síðustu árum komið fram tillögur um, að konurnar skyldu hafa sitt þegn- skylduár á aldrinum 15—25 ára. Þessi þegnskylda þeirra skyldi vera innifalin i þvi, að hver einasta ung stúlka lærði heilt ár alt, sem lyti að því, sem hús- móðir og móðir þyrfti að kunna til að geta sljórnað heimili sinu sem bezt og alið börn sín upp til að verða heilbrigða, dugandi og siðferðisgóða borgara. Það var fyrst árið 1907, sem tillaga þessi var borin fram á stórum kven- réttindafundi í Karlstad, af frú Gerðu Hellberg, sem lagði til að ríkið setti þessa skyldukenslu á fót handa öllum ungum stúlkum. Margir tóku þessu mjög vel og blöðin fylgdu því eindregið. Þau hafa líka venjulega sagt, að heimilið væri aðalverksvið kvenna, og gátu naumast verið þessari tillögu mótfallin. í rökfærslu sinni fyrir þessari tillögu, segir frú Hell- berg: »Ákjósanlegasta hugsjónin er það, að ríkið fastsetti eitt kvennaár sem nokk- urskonar skyldu-námskenslu um mæðra- skyldur og mæðrastörf. Það er: konur, sem væru fyltar af ábyrgðartilfinningu, og fullvitandi nm það, að þjóðfélaginu er lif og heilsa barnanna nauðsynlegt ekki síður en annara meðlima þess. Þessi kensla ætti að skapa mæður, sem gera má kröfur til og sækja ráð til, þegar um uppeldi hinna nýju þjóðfélagsborgara er að ræða, sem ekki standa ábyrgðarlaus- ar, skilningslausar og ráðalausar yfir öll- um þeim mörgu vandamálum, sem r>ýir tímar hafa í för með sér. Við verðum að hætta að reikria alt út eftir ástæðum efnaða fólksins, sem er í minni hlutan- um. Við verðum að líta á ástæðurnar frá sjónarmiði verkafólksins. Væri mæðr- unum i þeirri stétt kendar mæðraskyld- ur og mæðrastörf og þær aldar upp til að hafa ábyrgðartilfinningu, þá yrðu þær bandamenn og liðsmenn okkar í barátt- unni gegn vínnautn, saurlifi og stóreigna- vinnuiðnaði, sem eyðileggur lífskraftinn í æskulýðnum, og er versti óvinurinn gegn endurbætlri þjóðarheilbrigði (Rase- hygien)«. Önnur sænsk kona hefir líka gerst tals- maður þessa þegnskylduvinnuárs kvenna. Það er dr. Karolina Widerström. Hún mintist á tillögurnar um að konur skyldu læra hjúkrunarfræði, en áleit það ekki fullnægjandi, heldur vildi að þær skyldu læra sem þegnskylduvinnu, alt sem liti að þeirra tilvonandi móður- og hús- móðurskyldum. — Meðal þess sem kent væri, skyldi vera heilsufræði, persónulegt hreinlæti og meðferð á líkama sinum og' heilsu, bústaðar- og þjóðfélagsheilbrigð- isreglur, meðferð barna og praktiskan og hollan malartilbúning. Þegnskyldutím- ann hafði hún hugsað sér eitt ár, á 18 til 20 ára aldrinum, að minsta kosti íyrir 25 ára aldur. Tillögu um þetta bar hún fram á fundi í Iívenréttindafélagi Stock- hólms 1910, sem þar var einnig sam- þykt. Auðvitað átti ríkið að kosta þessa

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.