Kvennablaðið - 15.07.1917, Síða 2

Kvennablaðið - 15.07.1917, Síða 2
42 KVENNABLAÐIÐ Verndun barna. Kvenréltindafélag íslands, sem er eitt af félögum þeim á Norðurlöndum, sem bundu með sér bandalag siðastliðið haust, hefir nú sent Alþingi eftirfylgjandi erindi, um að brej'ta barnalöggjöfinni og að þingið hlutist til um að landsstjórnin undirbúi það mál fyrir næsta alþingi. Flutningsmenn þessa máls á alþingi eru þeir þingmennirnir Einar Arnórsson og Gísli Sveinsson. Hafa þeir gert tillöguna víðtækari að því leyti að þeir vilja einnig fá hjónabandslöggjöf- ina tekna með, að minsta kosti kaflann um lijónaskilnaðinn. Vér konur megum vera ánægðar með að hafa fengið svo góða flutningsmenn að þessu máli eins og þessir tveir þingmenn eru, og vonum að þeir sjái um, að það verði hvorki svæft né geymt um óákveðinn tíma, heldur verði það rækilega undirbúið af stjórninni og tekið svo fyrir til meðferðar og gagngerðrar endurskoð- nnar á næsta þingi. »Paö er alkunnugt, að nú um nokkur ár, hafa landsstjórnir og löggjafarþing Norðurlanda haft gagngerðar breytingar á hjónabands- og barnalöggjöfinni til meðferðar. Þau hafa því í sameiningu sett sameiginlega lögfræðislega nefnd frá öllum þessum þremur löndum, skip- aða konum og körlum, til að rannsaka og at- huga þessi vandamál. Á tillögum þessarar nefndar hafa svo hinar sérstöku lögfræðislegu nefndir í hverju þessara ríkja, bygt breytingar- tillögurnar, sem gerðar hafa verið á þessum lögum, og lagðar hafa verið fyrir löggjafarþing- in í frumvarpsformi. Um þessi frumvörp hafa síðan landsstjórnirnar óskað umsagnar ýmsra kvenréttindafélaga bæði í Noregi og Danmörku, og þar með viðurkent hinn ómótmælanlega rétt kvenna, að leggja fram sínar tillögur, þeg- ar um uppeldi og velferð þeirra sjálfra og barn- anna væri að ræða. Kvenréttindafélag íslands hefir frá fyrstu stofnun álitið þessi mál vera einkum þau mál, sem konum bæri nauðsyn til fyrst og fremst að fá breytt í réttlátari og frjálslegri átt. Pað hafði fyrír nokkrum árum gert ráðstöfun til að þessu máli yrði hreyft á Alþingi og fengið flutningsmann að því, en af sérstökum ástæð- um (vegna anna Alþingis) fórst það fyrir. Pví miður eigum vér islenzku konurnar ekki enn þá neina færa löglærða lconu, sem geti skýrt þessi mál og flutt þau frá vorri hendi. En þrátt fyrir það, hafa konur fylgst það með, í um- ræðum þeim, sem orðið hafa um þau í ná- grannalöndunum, og af allri hinni sorglegu og löngu reynslu um hve allsendis óhæfilegt og ranglátt margt í þessari löggjöf er, sem vér verðum ennþá að búa við, að þeim er öllum ljóst, að þau þurfi hinna gagngerðustu umbóta við, og að þau séu orðin á eftir tímanum í mörgum mikilsverðum atriðum. Sér i lagi vilj- um vér taka fram barnalöggjöfina og þá eink- um lögin um óskilgetin börn, réttindi þeirra og alla afstöðu þeirra og mæðra þeirra, og þau lög sem standa í sambandi við þau. Vér erum þess fullvissar að flestar islenzkar konur og karlar munu oss sammála um það, að þessi löggjöf ætti svo mikið sem unt væri að vernda óskilgetnu börnin, sem standa oftast svo miklu ver að vígi með öll lífsskilyrði, þar sem sjaldnast nokkur heimili standa þeim op- in til verndar, og alloft að foreldrarnir hvorki geta né vilja annast um uppeldi þeirra. Pessi raunalegu örlög, sem óskilgetnum börnum eru ósjálfráð, ætlu lögin svo mikið sem unt væri að milda og bæta, en ekki með sérstökum á- kvæðum að búa þeim æfilanga óhamingju og bágindi, eins og hingað til hefiroft átt sér stað. Kvenréttindafélag íslands sér ekki betur en að nú sé einmitt hentugur tími til að þessi mál verði einnig hér tekin til athugunar og umbóta, þar sem menn nú geta haft til stuðnings og hliðsjónar tillögur og lagabreytingar nágranna- þjóðanna í þessum málum, sem innihalda marg- ar og mjög mikilvægar réttarbætur í þeim frum- vörpum, sem öðlast hafa lagagildi eða liggja nú fyrir löggjafarþingunum. Kvenréttindafélag ísiands leyfir sér því virð- ingarfylst að skora á hið háa Alþingi að hlut- ast til um: Að landsstjórnin taki alla barnalöggjöfina, og þá einkum lögin um óskilgetin börn og mæður þeirra, til undirbúnings og breyt- inga fyrir næsta Alþingi, og leggi fyrir það frumvarp til laga um þessi mál. Að mcð þessum lögum verði óskilgetnum börn- um meðal annars, sérstaklega tryggður sami réttur til arfs og nafns föðursins og föður- frænda og skilgetnum börnum. Ad þeim sé með lögunum tryggður fullur upp- eldiskostnaður frá föðursins hendi með nauðsynlegum þvingunarráðstöfunum, þeg- ar þess þarf með, og að meðlag föðursins með barninu og tillag hans til móðurinnar fyrir og eftir fæðingu barnsins greiðist af opinberu fé, án þess að reiknast fátækra-

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.