Kvennablaðið - 15.07.1917, Page 4
44
KVENNABLAÐIÐ
atvinnu og var reiðubúin í öllu að bæta
alt ástand þeirra. Með þessu ávann liún
sér tiltrú, vináltu og traust þeirra, þvert á
raóti því, sem vant er með umsjónarmenn
leiguhúsa.
Árangurinn af þessu varð sérlega góður
með því að nú skifti alveg um, og þetta
hverfi, sem áður var annálað fyrir að vera
hæli versta skrílsins í borginni, hafði nú
að eins heiðarlega og reglusama ibúa.
Eftirspurnum að húsunum fjölgaði altaf,
þótt þar vantaði mörg þægindi, t. d. vatns-
leiðslur, skólpræsi o. s. frv.
Til þess að hæta nú úr skortinum á
ódýrum og hollum hýbýlum stofnaði frk.
L. árið 1890 hlutafélag með áhugasömu og
velviljuðu fólki, til þess að byggja bústaði
handa reglusömum og duglegum verka-
mönnum. Það var kallað »Akliebolaget
Stockholms Arbetarehem«. Meðlimirnir í
félaginu voru af öllum stéttum inanna,
frá efnaðri verkamönnunúm og upp að
konungsfólkinu. Höfuðstóllinn má vera
minst 100,000 kr., mest 500,000 og skiftist
i 500 króna hluti.
Að tilhlutun félagsins voru nú bygð
nokkur stór ibúðarhús við Síbyllugötuna
og Jungfrugötuna í Stokkhólmi.
í þessum húsum voru íleiri hundruð
smáíbúðir, ællaðar efnaminna fólkinu.
Lóðirnar keypti félagið af bænum með
mjög góðum borgunarskilmálum, þannig
að skuldagreiðslan fer fram með árlegum
innborgunum, sem er 4% af öllu inn-
kaupsverðinu þar af 3°/o rentur og l°/o
afborgun.
Flestar íbúðirnar í þessum húsum eru
1 stórt herbergi og lílið eldhús, nokkrar
eru 2 herbergi og eldhús, svo eru nokkrar
ibúðir 1 stórt herbergi með eldunarofni og
fáein slök herbergi handa einlileypum,
sem leigð eru með húsbúnaði og oftast
búa i 3—4 menn. Við bygginguna og út-
búnað herbergjanna hefir tvent verið haft
aðallega hugfast; að skapa sem vistlegust
og þægilegust heimili handa leigendunum,
og að lækka leiguna um leið sem unt væri.
Til þess að ná þessu tvöfalda markmiði
hafa menn neyðst til að byggja húsin án
alls óþarfa skrauts og iburðar, en útbúa
þau með öllu því, sem til þæginda og þrifn-
aðar heyrir, til þess með þvi að skapa
verulega viðkunnanleg og þægileg heimili.
Þannig fylgir öllum íbúðunum fataskápur,
búr, eldhússkápur, eldiviðarkassi, vatns-
leiðsla, skólpleiðsla og suðugas. Þessum
björtu, viðkunnanlegu og þægilegu ibúðum
fylgir líka hverri fyrir sig lítil forstofa út
frá sameiginlegum gangi, kjallaraherbergi,
og litið loftgeymsluherbergi. Ennfremur
sameiginlegur þvottakjallari fyrir hvert hús,
sem fjölskyldurnar skiftast á um, eftir röð,
bakarastofa með bakaraofni, og bað-
herbergi. Leigan er langt fyrir neðan hið
alkunna dýra húsaleiguverð í Stockhólmi.
Þannig kostar ein ibúð, sem er tvö stór
herbergi og eldhús, með öllum hinum áð-
urnefndu þægindum 340 kr. um árið. Eitt
stórt herbergi og eldhús etc. kostar 230 kr.
ef að eldhúsið er venjulega stórt (þau eru
öll mjög lítil miðuð við eldhús liér). Ef
það er eldhússkot, sem kallast þar, en þó
með vatni og gasi og skáp, þá kostar sú
íbúð 160, og herbergi með suðuofni 150
kr. Loks kostar 1 herbergi með húsgögn-
um 240 kr. um árið. Eins og áður er sagt
eru garðsvæði með hverju húsi, sem ætl-
uð hafa verið fyrir leikvelli handa börn-
unum, sem eru mjög mörg í þessum
húsum.
Eftirspurnin eflir þessum íbúðum hefir
verið mjög mikil og ætíð pantað upp
löngu áður en losnar, því liefir verið unl
að velja úr. Til þess að fá inntöku hafa
menn þurft að hafa meðmæli húseigenda
þeirra, sem. leigendurnir hafa áðnr leigt
hjá, vinnuveitanda, verkmeistara o. s. frv.
og auk þess hefir umsjónarkonan frk.
Lagerstedt sjálf kynt sér lieimilin áður og
heimsótt þá, til þess að sannfærast um, að
fjölskyldan hefði ekki neilt það fólk, sem
á einn eða annan hátt gæti haft skaðleg
áhrif á grannana. Samningarnir, sem gerðir
eru nfilli hlutafélagisns og leigjendanna