Kvennablaðið - 15.07.1917, Page 5

Kvennablaðið - 15.07.1917, Page 5
K V E N N A B L A i) I Ð 45 sýna líka vel hvaða anda menn vilja láta vera ríkjandi í verkmannabústöðunum. Leigandinn skuldbindur sig til: 1. Að án leyfis félagsstjórnarinnar taki hann engan vandalausan til að búa með sér í herbergjunum. 2. Að trufla ekki reglusemi, góða siði og þrifnað með ósiðlegu framferði, drykkjuskap, hávaða eða öðrum ó- spektum. 3. Að sjá um að börn skrifi ekki á veggi eða stiga, rífi veggfóður, klíni, skemmi eða óprýði eignina á neinn hátt. Sömu- leiðis að þau noti ekki forstofur, Stiga, bakdyraganga eða stéttir til leika, eða samkomustaða. Frk. Lagerstedt er umsjónarkona þess- ara húsa. Hún hefir sett á fót verzlun í einu af þessum húsum, þar sem leigjend- urnir geta fengið allar nauðsynjavörur keyptar, jafnvel líka nauðsynlegt efni í hversdagsföt ótilbúin, eða jafnvel tilbúin, handa sér og börnunum. Mjólk og brauð fæst þar einnig og ódýrar kökur, bollur, vínarbrauð o. s. frv. Allur ágóðinn skiftist á milli viðskiftamannanna, sem eru leig- endurnir, svo þelta er eiginlega samlags- verslun. Matvörurnar eru allar af bestu tegund. í þessum búsum, minsta kosti sumum þeirra, er einnig nokkurs konar »Kinder- garten« eða vinnustofa barna. Það er her- bergi fyrir smábörn, sem bæði er leikstofa og börnunum einnig kent ýmislegt smá- vegis, pappa-»slöjd« og að linoða allra- handa myndir úr leir o. s. frv., byrja að sauma og svo leika sér, syngja o. s. frv. Eru það hclst upgar efnaðar stúlkur utan úr bænum sem kenna þetta ókeypis. Þarna geta smábörn verkakvenna, sem vinna úti, verið óhult þangað til móðirin kemur heim. Félagstiifinninguna meðal leigendanna leilast frk. Lagerstedt við að vekja með því að sjá um reglubundna fundi bæði fyrir eldra fólk og yngra, og á þeim eru svo rædd ýms sameiginleg velferðarmál þeirra og teknar ályktanir um þau. Þessir fundir eru haldnir í sérstökum samkomu- sal í húsinu, sein til þess er ætlaður af félaginu. Hann er líka notaður sem leslr- arsalur, bókasafn, vinnustofa og leikstofa fyrir börn leigjendanna í húsinu á öllum aldri. Til þess að börn fátækustu leigjendanna geti um Iengri tíma á sumrin fengið tæki- færi að vera upp í sveit, sér til hressingar, hefir hlutafélagið komið á fót skólaleyfis- nýlendu, þar sem 25 börn á bverju sumri fá að vera 10 vilcna tíma, sér til heilsu- bótar og styrkingar undir skólann. Hlutafélagið, sem hefir reiknað sér að eins 4°/o ágóða af höfuðstólnum, ver þessum ágóða til skólaleyfisins handa börn- unum, einungis af áhuga fyrir þessu máli. Fröken Lagerstedt býr sjálf í tveimur látlausum herbergjum í einu af þessum búsum, mitt á meðal þessa fátæka fólks. Auk þess hefur hún skrifstofu, þar sem allir geta fundið hana og borgað henni gjöld sín, eða leitað ráða til hennar í öllu tilliti. Með sinni næmu þekkingu á mönn- unum og kringumstæðunum og sínum djúpa skilningi á þörfum þeirra og öllum ástæðum hefir hún náð trausti og hylli þeirra svo þeir skoða hana sem sinn besta vin og ráðgjafa, miklu fremur en umsjón- armann eða húsbónda. Þess skal getið að ein af útbyggingar- ástæðunum er sú, ef leigan er ekki greidd um lengri tíma. En það hefir sjaldan komið fyrir. Hvers vegna eru konur ekki valdar í dýrtiðarnefndirnar? Það fyrsta sem konur heyrðust selja út á aðgerðir stjórnarvaldanna í dýrtíðarmál- unum, var einmitt þetta: Hvers vegna vel- ur ekki landsstjórn og bæja- og sveitar- stjórnir konur með karlmönnunum inn í dýrtíðarnefndirnar? — Og hvernig stendur á því að hér í Reykjavík slculi þetta líka algerlega gleymast? — Hér, þar ,sem eru 12—14 kvenfélög, auk allra annara kvenna

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.