Kvennablaðið - 15.07.1917, Síða 7

Kvennablaðið - 15.07.1917, Síða 7
KVENNABLAÐIÐ 47 gert gagn, bæði í orði og verki. Vér erum þjóðfélagsborgarar, samfélagar og sam- verkamenn karlmannanna. Vér viljum taka vorn skerf bæði af réttindum, skyld- um, vinnu og ábyrgð. Vér viljum ekki vera hlutlausir áhorfendur, vér viljum vera starfandi ineðlimir, við hlið karlmannanna bæði á góðu og vondu dögunum. Barnið. (Pýtt). »Da, da« — bablaði barnið og reyndi til að hreyfa sig. En litli líkaminn var of þungur fyrir fæturna, svo bann seig alveg niður á gólfið, og þar sal hún hlæjandi og baðandi út báðum feitu handleggjunum. Fröken Inga fann ein- hverja óvanalega hlýju vakna innvortis, sem var alveg ólík þeim íáleika, sem hún ætlaði að sýna Önnu. Fetta litla, saldausa barn, með sitt rósrauða andlit og mjúku, litlu handleggi — það lireif hana á alveg undrunarverðan hátt. Hún sótti ýmsa smámuni, sem stóðu á hillu inni í salnum, sem hún hélt að barnið mundi liafa gaman af og fékk þvi þá. Svo fékk hún því litlu postulinsmyndirnar, sem hún sjálf liafði dáðst svo mikið að, þegar hún var barn, og síðast settist hún sjálf á gólfið hjá barninu, tók af sér breiða nýja gull-armbandið sitt, og veifaði því í kring. Barnið hljóðaði af aðdáun, og hrifsaði þennan glóandi gjdta hlut og fór að leika sér alveg hugfangið að því. Pá mundi Inga loks eftir móðurinni: —»Seztu niður Anna, og segðu mér hvernig þér líður núna. Pú ert líklega ekki lengur í vist?« sagði hún vingjarn- lega. — Anna settist gætilega á yzta hornið á stórura og djúpum eikarstól: — »Nei, fröken, það get eg ekki vegna telpunnar. Hver ætti þá að gæta hennar?« — »Getur þú ekki komið henni fyrir hjá ein- liverjum og geíið með henni?« — »Nei, fröken. Ekki fer eg að skilja hana við mig, hvað sem í boði væri. Eg reyni að baslast áfram með hana svo vel sem eg get. Hver veit hvernig aumingjanum litla liði hjá öðrum. Hún er mín einasta ánægja, þótt eg liafi þolað mikið hennar vegna. — »Elsa, komdu til mömmu, komdu! —hún rétti út hendurnar eftir barninu, sem hélt dauðahaldi báðum höndum um gylta armbandið, en var þó að bysa við að reisa sig á fætur á gólfinu. — En þegar henni tókst ekki strax að ná jafnvæginu, þá tók hin unga móðir hana upp og lyfti henni hátt upp yfir höfuðið á sér, setti liana svo ofan á kjöltu sína og fór að gera sér tæpitungu við hana. Telpan hló og bablaði, og baðaði höndunum út í loftið, en Inga sat enn á gólfinu og horfði á mæðgurnar hýr á svip. — »Hvað hefir þú nú fyrir stafni, Anna? Hvernig vinnur þú fyrir þér? spurði hún. — »Eg slétta lín, og svo þvæ eg líka. Eg bý með annari stúlku. Hún hefir böð. Pað er beztá stúlka, og svo er hún mjög góð við Elsu, og þykir vænt um hana. Eg skal segja frölteninni, að nú er eg miklu vinnusamari en þegar eg var hérna. Eg hefi svo mikið að gera með því að halda Elsu litlu hreinni og fötum hennar í góðu lagi og svo þjóna sjálfri mér. Matinn sýð eg meðan eg er að slétta léreftin. í fyrstu hafði eg lítið að gera. Eg var svo kvíðandi fyrir því, livernig mér mundi ganga með telpuna. En þegar eg svo loksins fékk þvottinn herranna, kammerherrans og landshöfðingjans þarna uppi í steinhúsinu, þá fór það að ganga betur. Kammer- herrafrúin kom líka einu sinni til mín og sagði að eg gerði þetta vel. Hún gaf mér líka við og við föt handa Elsu. Og hún mælti með mér við aðra, sem létu mig svo fá vinnu. Nú gengur mér vel, og vist er um það að Elsa er mér til gleði og ánægju, þótt eg hafi grátið mörgum tárum hennar vegua.« — Fröken Inga hafði staðið upp og sat nú í legubekknum. Henni fanstþetta altsaman undar- legt. Hún mintist Önnu, eins og hún var fyrir tveimur árum. Allir voru þá svo hrifnir af snotru innistúlkunni þeirra, sem jafnan var svo snyrti- lega klædd og bar hvíta kappann sinn svo til- haldslega á vel greidda hárinu sínu. Hún var svo liðleg í hreyfingum og ágæt að ganga um beina í salnum. Grófari verkin féllu henni ekki, og hún kom sér á allan hátt hjá þeim. Nú stóð liún allan daginn við þvottabalann eða við lín- sterkjuborðið og kvartaði ekkert yfir því. Hárið hennar, sem hún áður gerði lirokkið á hverj- um morgni með heitu hrökkjárni, lá nú slétt greitt yfir enninu og niður með vöngunum; hún var 'líka í svörtum kjól og var orðin al- varleg á svip. Pað var slík ástúð og umhyggja í öllu hennar viðmóti við barnið, og hóglátur virðuleiki, sem var algerlega ólikt hennar fyrra eigingjarna tildri. Enginn feimnissvipur eða skömmustublær. Var þetta þá Önnu bara gleði og hamingja? Petta, sem annars er vant að hafa fátækt og lítilsvirðingu í för með sér. — »Og faðir barnsins — hvað gerir hann?« spurði fröken Inga eftir stundarþögn. — »Eg held hann vinni við sögunarmylnuna«, svaraði Anna rólega.

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.