Dagskrá - 28.09.1896, Page 1
Verð árg. (œinnBt 104 arkir)
3 kr., borgist fyrir janúarlok;
erlendis 5 kr., borgist fyrirfram.
lUppsögn skrifleg bundin vi8
1. júll komi til útgefanda
fyrir októberlok.
D A 6 S K R A.
I, 25. I
Reyk.lavík, mánudaginn 28. september.
1896.
Stjórnarskrármálið.
(Framh.) Eptir því sem komist verður næst af hinni
óskipulegn og óglöggu framsetning höf. virðist hann ætla
sjer að halda sambandinu við hið danska ríkisráð einn-
ig í sjermálum landsins, og þó láta alia „stjórnarráðs-
fundi verða haldna hjer í íslandi“. — Eptir almennum
hugmyndum um „stjórnarráð", „ríkisráð“ eða „landsráð“,
verður nú konungsvaldið sjálft eða erindreki þess, auð-
vitað að sitja á þessari samkomu hins innlenda ráða-
neytis, og sjest þá ekki yfir hverju höf. er að kvarta
um „afskipti ríkisráðsins af sjermálum íslands, sem hafi
mesta þýðing frá theoretisku(I) sjónarmiði“. — Hann
stingur reyndar upp á því að einn af hinum innlendu
ráðgjöfum sæki konungsfund til Kaupmannahafnar til
þess að flytja hin sjerstöku mál fyrir hann. — En þó
slíkt fyrirkomulag að vísu væri mjög óhentugt, yrðu þó
sjermálin ekki háð ríkisráðinu með því.
Aðalhnúturinn í allri þeirri flækju sem ofinn hefur
verið utan um þetta mál, og sem þm. V.-Skaptfellinga
hefur ánetjast í, er það atriði, hvernig dgi að sJcipa Jion-
ungsvaldinu erindreka eða umboðsmann í Jiinu innlenda
stjórnarráði. Stofnun slíks valdsaðila er ekki einasta
möguleg og nauðsynleg heldur einnig hin aðgengilegasta
fyrir þá sem vilja „fullnægja þörfum og kröfum íslend-
inga, án þess að raska landasambandinu“ (sbr. sama
höf. ísaf. 38. tbl.), og er ákvæðið „konungur eða land-
stjóri“ í stjórnlagafrumv. síðustu þinga, hið langhyggi-
legasta sem komið hefur fram í þá átt að leysa úr þess-
um vanda: að halda ríkissambandinu en hafa þó inn-
lenda stjóm í sjermálunum. — En vjer höfum ekki átt
því að fagna, að endurskoðunarflokkurinn gerði annað-
hvort að fylgja þessu fram eindregið eða þá sýna fram
á annað stjórnskipulega mögulegt fyrirkomulag, sem
væri hentugra í sjálfu sjer. Hvorugt hefur verið gjört.
— Fleiri eða færri nýjungamenn af líku tagi og þm.
V.-Skaptfellinga, hafa verið til taks að raska þessum
aðalgrundvelli alls samkomulags í endurskoðunarmálinu
á undanfarandi þingum, án þess að þeim tækist nokk-
urntíma að sýna fram á annað en það eitt, að þeirra
eigin tillögur um annað fyrirkomulag, voru raeð öllu
vanhugsaðar og óframkvæmanlegar. Nú vill höf. hafa inn-
lent ráðaneyti, innlenda stjórnarráðsfundi, innlendan ráð-
gjafa við hlið konungs í Höfn, og þó eptir alltsaman
láta afskipti ríkisráðsins af sjermálum vorum haldast. —
Þetta „þýðingarmikla spor“ sem hann svo kallar skilst
oss ekki hvernig hann hugsar sjer að verði stigið. —
Vjer höfum heyrt því haldið fram að ísland eigi kröfu
til sjálfsstjórnar í sjermálunum, með þingbundinni kon-
ungsstjórn, eða takmörkuðu einveldi, samkyns eins og
Danir og ýmsar aðrar Norðurálfuþjóðir búa við, en
slíkt einsdæmis hrófatildur sem höf. hjer fer fram á,
sjáum vjer ekki hvernig ætti að geta samrýmst við grund-
vallarskipun ríkisins.
Þessi nýi boðskapur sem höf. flytur, að því er snert-
ir löggjöf og æðstu stjórn í sjerstökum málum íslands
er nátengdur við aðra nýja uppástungu hans um rjettar-
far í ábyrgðarmálum gegn ráðaneytinu. — Þar leggur
hann til að hæstirjettur fjalli, enn sem áður, um mál
út af brotum gegn stjórnarskránni, en að landsdómur
dæmi önnur politisk mál, erhöfðuð kynnu að verða gegn
ráðgjöfunum. — Hvernig hann hugsar sjer slíkt sam-
einanlegt við „afskipti ríkisráðsins af sjermálum íslands“
virðist ekki ljóst; úr því að hin helstu stjórnmál og lög-
gjöfln á ekki að liggja undir fullnaðaratkvæði konungs
eða konungsfulltrúa ásamt innlendu stjórnarráði, sjest
ekki að neinn vegur sje til þess að skipa alinnlent pólí-
tiskt dómsvald yfir öll önnur pólitiskmál. Afskipti hinn-
ar dönsku ráðgjafasamkomu af sjermálunum verða ekki
lögð undir hinn íslenska dómstól, nema með því að
breyta grundvallarlögum Dana sjálfra, og því hefur höf.
þó víst ekki dottið í hug að koma til leiðar. í þessu
eins og hinu veldur það villunni að höf. vill stofna svo-
kallað innlent ráðaneyti, án þess að sjermálin verði að
öllu leyti leyst undan afskiptum ríkisráðsins. En þar
er engínn meðalvegur mögulegur. Meðan þessi mál eru
lögð undir ráðaneyti Dana verður innlend yflrstjórn fyr-
ir íslendinga ekki til, hverju nafni sem menn kunna að
vilja nefna æðstu völd vor eða löggjafa innan lands.
Það er „algerð uppgjöf“ á stjórnarbótakröfum vorum
um undanfarin ár að víkja eina hársbreidd frá þessu: að
leysa sjermálin algerlega frá ríkisráðinu danska. — Og
eins og það var lögleysa og formlegt glappaskot af allra
skaðvænasta tagi, þegar alþingi í fyrra leyfði sjer að
skora á stjórnina að semja frumvarp til grundvallarlaga
fyrir landið, í stað þess að neyta eigin frumkvæðisrjett-
ar og frumkvæðisskyldu sinnar í því máli, eins er sjálft
meginmál hinnar alkunnu þingsályktunar þ.tnnig vaxið
að stjórnin hlýtur, að öllu athuguðu, að hafa rjett til að
skilja hana svo, sem algerður aðskilnaður á ríkisráðinu