Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 07.01.1897, Blaðsíða 2

Dagskrá - 07.01.1897, Blaðsíða 2
’74 Aukaþingið kostar okkur peninga, á pappírnum. Þessvegna skulum við ekki hafa neitt aukaþing! Þeir hugsa ekkert um það, hvort nokkuð fæst í aðra hönd. — Allir siðaðir menn eru varkárir við það að meta frelsi sitt og andlega hæfilegleika tii peninga, með krónu og aura virði. En á íslenska þinginu er allur fjöldi til af grunnhyggnum pólitiskum fleiprurum, sem standa með auratöfluna i annari hendi og stjórnmálasögu Is- lands í hinni án þess að þeim detti í hug að leyna því hve lágt þeir leita niður á við eptir ástæðum til þess að svíkjast undan merkjum í frelsisbaráttu sinnar eigin þjóðar. En látum svo vera að pólitiskt frelsi og andleg menning íslendinga yrði metin til peninga, eins og sauða- kjöt og saltfiskur. — Því þurfa þá fulltrúar vorir að reikna svo herfilega rangt? — því þurfa þá mennirnir að gleyma því að aukaþingin fyrst og fremst geta ver- ið þjóðinni til margfalds peningahagnaðar, og í öðru lagi eru ekki líkt því svo kostnaðarmikil sem menn láta í veðri vaka. Aukaþingin geta verið Islendingum til beins hagn- aðar, svo lengi sem löggjöf vor þarf umbóta við, og svo lengi sem það borgar sig fyrir oss að hafa l'óggef- andi þing. Allar hinar sömu ástæður sem knúð hafa þessa þjóð, og aðrar þjóðir með, til þess að fá löggjaf- aratkvæði í opinberum málum, er einnig rjett að bera fram til meðmæla með aukaþingunum. Hinn reglulegi þingtími er of stuttur. Bæði eru tveir mánuðir, annaðhvort ár, harla stuttur vínnutími í sjálfu sjer, enda kann alþingi einnig lítt að því að nota tíma sinn vel, enn sem komið er. Það er auðgert að sýna fram á, að eitt einasta velhugsað lagaboð, um sveita- málefni, atvinnuvegi, kennslumálefni, eða hvað semjvera skyldi af opinberum málum, getur borgað kostnaðinn af öllum þeim aukaþingum sem vjer þurfum að halda til þess að fá endurskoðun stjórnarskrárinnar leidda til lykta. Og væri það svo, að vjer værurn sú einasta þjóð í heimi, sem-ekki er þess verð, að neinu sje kost- andi til rjettarbóta fyrir hana, mundi það þá einnig verða sönnun þess að hin reghilegu þing sjálf borguðu sig ekki fyrir Islendinga. En svo langt hefur þó eng- inn auravílsgasprari þorað að fara enn. Enginn af þeim hefur haft djörfung til þess að meta starfsemi hinna reglulegu þinga í krónur og aura. Og svo eru aukaþingin ofan á allt saman mikið kostn- aðarminni heldur en þau sýnast vera, eptir þeim reikn- ingi sem settur er upp á pappírinn. 011 útgjöld er leiða af þinginu, ienda í vösum landsmanna sjálfra. Sumir af þeim sem starfa við þingið, mundu að vísu geta haft annað fyrir stafni, aðrir mundu ef til vill alls ekki hafa neina atvinnu, cða þá arðminni. Ferðakostnaðarreikn- ingar þingmanna ganga opt með litlum afföllum til landsmanna. Reykjavíkurbær hefur á líkan hátt arð af hverri þingsamkomu o. s. frv. Það er leiðinlegt að þurfa að fara út í slíkan reikn- ing; en úr því menn grafa sig svo djúpt niður í smá- munina og blinda sig svo fyrir því sem mestu varðar, er þó ekki nema rjett að sýna fram á hvort reikningurinn er rjettur eða rangur. Það væri þess vert að samþykkja stjórnarskrár- breytingu á hverju reglulegu þingi, þó ekki væri nema einungis til þess að fá aukaþing kallað saman annað hvort ár. Svo langt er frá því að auravílið út af auka- þingskostnaðinurn hafi neina skynsemi við að styðjast — auk þess sem það er þjóðinni til sannkallaðrar minnkunar. Betur er farið en heima setið. Nú fram á klungróttan fjalla-veg’ — fót minn ljettu nú, viljinn sterki! Jeg vil vera jeg og jeg vil þá að jeg sje vopnberi’, er hörfi’ ekki’und sannleikans merki. Þótt leiðin sje illfær í einstigi þröngu og ófærð í skörðunum, bratt og grýtt, jeg hvetja skal sporið og herða nú göngu — hvað sem nú mætir, jeg kæri mig lítt! Jeg veit það, að dagleiðir verða’ ekki langar, því velta þarf mörgum steini’ úr braut, það tálma mjer hnullungar, tálma mjer drangar, toríærar gjár og illviðra-þraut. Það hræðir mig samt ekki framsókn frá, fyrri’ en dimmir eg kemst upp skarðið; jeg hlakka svo mjög til þess, hjeruð að sjá fyrir handan hið ysta barðið. En dagurinn líður, það dimmir svo fljótt. Er dagsbirtan svikui, að læðast frá mjer? Nei, til þess að nota’ hana þrýtur mig þrótt, — er það hennar sök? Nei, sú skuld hvílir á mjer. A brúninni mætir mjer bylur og nótt. Jeg er samt kominn upp. — Nú gengur það greiðara, grjótið er sljettara, loptið er heiðara; þar er kalt, en svo hreint er þar loptið og ljett, —— þar leikur sjer bylur við ísbarinn klett og tröilanna kaldrana-bros er þar breiðara. Jeg er alls ekki hræddur við hríðina á fjöllunum, jeg hræðist ei gnýfengnu lætin í tröllunum. Já. komdu nú, móti, ef þú þorir, jeg þreyta við þig skal leikinn og stefnu’ ekki breyta!

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.