Dagskrá - 07.01.1897, Blaðsíða 8
svipur og blær yfir dýrinu auðkennist við það starfsvið sem
l>vi er ætlað.
Jeg hef opt sjeð svipi hunda, sauða og annara hrtsdýra
yfir mannsandlitum, enda er slst að undra, þó sífelld húsdýra-
þjónusta mannsins, kyn eptir kyn, kunni að merkja ættina og
bregða hking hins ferfætta stjettarbróður yfir andlitið. — En
það eru þó ekki svo mjög yfirráð manns yfir manni innan
heimilisins sem valda þessu. l'aö er öllu fremur sá ríkjandi
andi í fjelaginu og baráttulag pess gegn þrautum lifsins, sem
sammerkir svo rnargan sköpunarinnar herra við dýr rnerkur-
innar.
Dýrasvipirnir eru margir og breytilegir eins og lííið sjálft.
En þótt allur skepnur sjeu í sjálfu sjer nytsauilegar til J/ess
sem þær cru ætlaðar, er oss þó ekki jafnmikið gefið um öll
dýr, og oss finnst ekki jafn göfugt starfsvið þeirra allra. -
I cinu orði má segja að oss virðist dýrið því óæðra sem það
setur sjer auðsóttara takmark, og þvx óbeinni leið sem það fer
til þess að koma sínu frdm.
Eiturormurinn sem mjakast áfram t ótal hlykkjum til þess
að næla tönnunum í hæl þeirra sem ekki sjá hann af því hann
skríður svo lágt, má þess vegna kallast það lægsta af því lágu;
og sá mannsandi sem er merktur með ímynd nöðrunnar, hefur
sigið til botns í djúp allrar lægingar.
Jeg er enginn ofstækismaður og ekki vanur að vera þung-
orður, en allt sem í mjer er til af vandlæting og viðbjóð við
því sem illt er, rís upp gegn hinni eitruðu, tvíklofnu tungu
höggormanna í mannsliki, og jeg finn hve lærdómsrík hin
djúphugsaða sköpunarsaga er, þar sem hún lætur einmitt högg-
orminn verða vorum elstu langfeðginum til ginningar, og stðan
til eilífrar refsingar.
Jeg sje t anda einar tvær, þrjár nöðruskepnur, flatmynntar
og langkjammaðar með apturbeygð enni, stinga saman txjón-
unurn og brugga eiturskammta af dylgjum og lygum. iker
kjammsa og smjatta yfir ólyfjaninni og sálda eitrinu korn fyrir
korn niður í velluna þangað til bragðið er orðið nógu gall-
beiskt. — Svo flennast ennin aptur á hnakkaleðrið og ranarnir
teygjast enn lcngra fram. Rökkurglóðin glampar í augunum,
búkarnir engjast í hlykki, og öll höfuðeinkenni fyrirmyndar-
innar koma Ijóst fram eins og skuggamyndum sje brugðið upp
á vegg.
Jeg hcyri cyminn af slafrandi, lágróma hvoptablaðri þcss-
ara mannkvikinda. Stundum er eins og tekin sjcu djúp and-
köf, svo mikið er þeim niðri fyrir. Stundum flaumar romsan
upp úr þeirn, stöðvunarlaus og lotulöng, þangað til mvsti
eiturb)'rlari grípur fram í, barmafullur af illkvittni og níði.
Orðaskvaldrið suðar og þýtur við eyru manns eins og mylnuniður,
en innan um allt gjálfrið heyrist eitt orð endurtekið upp aptur
og aptur í öllum lygaþulunum, hyernig sem þær byrja og
hvcrnig sem þær enda. Þetta orð cr: >;ku’« —
Það »ku’« vera svo og svo! Hún »ku’« gjöra þetta og
þetta! Hann »ku’« koma þar og þar!-------
Hvað er að sjá mjúkbrýnda hundssvipi eða snoppuþykk
og augnaglcið hrossandlit hjá nöðrutrýnunum? — Hundarnir
geta verið bæði of auðmjúkir og of grimmir, en þeir eru
tryggir og þakklátssamir sje [xeirn gjört gott. — Hcstarnir
kunna ekki að leggja byrðina á aðra, þeir kunna að
eins að bera hana sjálfir; cn þeir eru kappsamir og dyggir
í þjónustu þeirra sem yfir þá eru settir. En nöðrurnar! Þær
eiga enga dyggð til, og enginn getur verið ugglaus, sem [ xer
komast nærri, — nema brotnur sjeu úr þeim tennurnar.
Hörður.
Vel reiknings'fær og æl’ður skrifari- [helst ógiptur),
getur fengið atvinnu frá miðjum janúar. Ritstj. vísar á.
Höfuðböð! Höfuðböð!
Munið eptir Mfuðböðunum. Þau
fást í baðhúsi Reykjavíkur. — Þau hreinsa hársv'órðinn.
Varðveita hárið. Anka hárv'óxtinn. Kosta afteins
o.2j aura. Vottorð frá nterkum læknum um nytsemi
höfuðbaðanna er hægt að sýna.
TÍmbUPhÚS einloptað, til íbúðar fyrir eina
familíu helst með kálgarði cða túnbletti óskast til kaups
og afsals fyrir næsta vor. Menn snúi sjer til ritstj.
C. C. DREWS
Elektropietverksmiöja
34 ðsíergade 34 Kjöbenhavn K.
frambýður borðbúnað í lögun eins og danskur silfurborðbún-
aður venjulega er, úr bezta nýsilfri með fádæma traustri silfur-
hú'ð og með þessu afarlága verði:
V2 kóróna og turnar
I CCD II CCD iii ccd|iv ccd
Matskeiðareða gafflar tylftkr. 12 15 iS 21 25
MeOaistórar matskeiðar eða
gaftlar - — — — — IO 13 IÓ 18 22
Dessertskeiðar og dessert- gafflar 9 12 14 IÓ 18
Teskeiðar stórar 6 7 8,5° IO 12
do smáar 5 6 7,5° 9 II
Súpuskeiðar stórar stykkið 5 6 7 8 9
do minni 3.5° 4,5° 5-5° 6,5° 7,5°
Full ábyrgð er tekin á því að við daglega brúkun í
, prívathúsum endist » » 10 ár 15 ár 20 ar
/ 1 _ ’ w 111 1 j 111 —
einstök stykki fást nöfn grafin fyrir 5 aura hver stafur
A minnst 6 st. — — — — 3 aura — —
Hlutirnir eru sendir strax og borgunin er komin. Menn
geta einnig snúið sjer til herra stórkaupmanns Jakobs Gunn-
lögssonar Cort Adelersgade 4 Kj'óbenhavn K, sem hefur sölu-
umboð vort fyrir Island. — Verðlisti með myndum fæst ókeypis
hjá ritstjóra þessa blaðs og hjá berra kaupmanni Birni Ivrist-
jánssyni í Reykjavík.
GÓðuP Sð3 er til sölu*.
Afgreiðslustofa Dagskrár í prentsmiðjuhúsi blaðsins (fyrir
vestan Glasgow). Opin allan daginn. — Utanáskript: Dagskrá,
Reykjavík.
Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson.
Prentsmiðja Dagskrár,